Skírnir

Árgangur

Skírnir - 01.01.1981, Blaðsíða 209

Skírnir - 01.01.1981, Blaðsíða 209
SKÍRNIR RITDÓMAR 207 eftir eigin höfði. Virðist það hafa tekizt vel. Eðlilegt er að byrja á því að segja frá ströndinni, fjörunni og öllu, sem þar finnst til nytja. Straumar og ísar bera trjávið til landsins og hann er hirtur í fjöruborðinu, — og selurinn er hálfur á landi og hálfur i sjó, á mörkum tveggja veralda. Aðferð höfundar er sú að kanna allar ritaðar heimildir, sem tiltækar eru um sjávarhætti frá landnámsöld og fram á tuttugustu öld. En eins og áður segir hefur hann jafnframt leitað til á fjórða hundrað manna um allt land og fengið þar margvíslegan fróðleik. Framlag þessara heimildarmanna er mikið, og minnir enn einu sinni á nauðsyn þess, að tafarlaust verði hafizt handa um að bjarga frá glötun þeirri vitneskju um atvinnuhætti og al- menna þjóðhætti sem hverfa með þeirri kynslóð, sem síðust lifði við lítt breyttar venjur og siði. Þjóðfræðin, etnografi, er vísindagrein í örum vexti víða um heim. Hún fæst við lifnaðarhætti og menningu þjóða og er mikil- vægur hluti af almennri mannfræði. Þjóðum heims er að skiljast, að á tím- um örra breytinga og byltinga í atvinnulífi og þjóðháttum er nauðsynlegt, að menn geri sér grein fyrir uppruna sínum, og viti hvar rætumar liggja, rætur þjóðmenningar og lífsviðhorfa. Maðurinn er vera sem á sér sögu og finnur tilgang í menningu sinni og heimsmynd. Hver er ég, hvaðan kem ég, hvert fer ég? spyr maðurinn án afláts. Tungumálið gegnir því hlutverki að viðhalda og varðveita heimsmynd og hugarheim okkar sem þjóðar. íslenzk menning er ekki eitthvað sem var heldur eitthvað sem er. Og hún á sér ræt- ur í fortíð og hún visnar ef klippt er á þessar rætur. Ég lít svo á, að eitt helzta verkefni Háskóla íslands eigi að vera á sviði þjóðfræði og sögu, tungu og menningar islenzku þjóðarinnar. Menningarsagan og saga íslenzks þjóð- félags frá landnámsöld fram á okkar tíma á að skipa þar öndvegi. Verkefnin eru óþrjótandi, og nú eru margir búnir að afla sér sérfræðiþekkingar á þessum sviðum. Ég minni á, að verk Lúðvíks leggur okkur þá skyldu á herðar að eignast hliðstæð verk um aðra þætti atvinnusögunnar, og er þar fyrst að geta landbúnaðar. Og að því kemur að menn munu sameinast um það verk að fella i kerfi rannsóknir á sambúð lands og þjóðar í ellefu aldir. Margt hefur vel verið gert á fjölmörgum sviðum, en heildarverkið er enn óunnið. Verk Lúðvíks minnir einnig á hve margt þar kallar á nýjar rann- sóknir. Ég nefni sem dæmi rannsóknir á manneldi, rannsóknir á mikilvægi fjörunytja fyrir manneldi og heilsufar, — og er útilokað að meta þýðingu rekaviðarins fyrir þjóðarbúskapinn? Á hvem hátt var samfélagsgerðin tengd breytingum á veðurfari? Hvernig breyttust hlunnindi einstakra landshluta vegna breytinga á loftslagi, vegna rányrkju eða fyrir hirðuleysi? Hver vora samfélagsleg áhrif eignarhalds kirkna og klaustra á hlunnindum um allt land? Félagsleg áhrif þessara ítaka og jarðeigna er enn litt rannsakað efni. Um ísland er stundum sagt i hálfkæringi, að það liggi á mörkum hins byggilega heims en ekki sé alveg víst hvoru megin markanna það sé. ís- land eins og flest önnur svæði jarðarinnar er á mörkum hins byggilega, og hvoru megin það er ræðst af þeirri tækni, kunnáttu og hyggjuviti, sem íbú- amir ráða yfir hverju sinni. ísland var t. d. ekki byggilegt fyrr en menn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156
Blaðsíða 157
Blaðsíða 158
Blaðsíða 159
Blaðsíða 160
Blaðsíða 161
Blaðsíða 162
Blaðsíða 163
Blaðsíða 164
Blaðsíða 165
Blaðsíða 166
Blaðsíða 167
Blaðsíða 168
Blaðsíða 169
Blaðsíða 170
Blaðsíða 171
Blaðsíða 172
Blaðsíða 173
Blaðsíða 174
Blaðsíða 175
Blaðsíða 176
Blaðsíða 177
Blaðsíða 178
Blaðsíða 179
Blaðsíða 180
Blaðsíða 181
Blaðsíða 182
Blaðsíða 183
Blaðsíða 184
Blaðsíða 185
Blaðsíða 186
Blaðsíða 187
Blaðsíða 188
Blaðsíða 189
Blaðsíða 190
Blaðsíða 191
Blaðsíða 192
Blaðsíða 193
Blaðsíða 194
Blaðsíða 195
Blaðsíða 196
Blaðsíða 197
Blaðsíða 198
Blaðsíða 199
Blaðsíða 200
Blaðsíða 201
Blaðsíða 202
Blaðsíða 203
Blaðsíða 204
Blaðsíða 205
Blaðsíða 206
Blaðsíða 207
Blaðsíða 208
Blaðsíða 209
Blaðsíða 210
Blaðsíða 211
Blaðsíða 212
Blaðsíða 213
Blaðsíða 214
Blaðsíða 215
Blaðsíða 216
Blaðsíða 217
Blaðsíða 218
Blaðsíða 219
Blaðsíða 220
Blaðsíða 221
Blaðsíða 222
Blaðsíða 223
Blaðsíða 224
Blaðsíða 225
Blaðsíða 226
Blaðsíða 227
Blaðsíða 228
Blaðsíða 229
Blaðsíða 230
Blaðsíða 231
Blaðsíða 232
Blaðsíða 233
Blaðsíða 234
Blaðsíða 235
Blaðsíða 236

x

Skírnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.