Skírnir

Volume

Skírnir - 01.01.1981, Page 215

Skírnir - 01.01.1981, Page 215
SKÍRNIR RITDÓMAR 213 vitaðrar höfundartilfinningar eins og goðsagnir eru einnig. Þannig telur hann, að skýra megi hið sérstaka tímaskyn, sem frarn kemur í kvæðunum og lýsir sér sem „efniskenndur tími“ eða í öðru sérstöku formi. Að áliti höfundar er hér um að ræða einkenni, sem bókmenntafræðingar hafa veitt of litla athygli til þessa í umfjöllun sinni um þessi fornu kvæði. í þriðja kafla „Kveðskapur fornskáldanna" (bls. 64—92) rekur höfundur nákvæmlega einkenni þessara fornu kvæða, varðveizlu þeirra og lýsir skáld- skaparmáli þeirra. Mest áberandi er þó (miðað við Eddukvæðin), að kvæði fornskáldanna eru árangur meðvitaðrar höfundartilfinningar, en þessi til- finning nær þó ekki til verksins alls, heldur aðeins til forms þess. Fornskáld- in eru því aðeins höfunclar forms, en ekki innihalds verka sinna. f fjórða kafla „íslendingasögurnar" (bls. 93—135) rekur höfundur af mik- illi natni öll atriði, er snerta varðveizlu sagnanna. Hann lýsir einnig inni- haldi þekktustu íslendingasagna og aðstæðunum, sem þær urðu til við. Þessi kafli er ritaður af mikilli og einlægri aðdáun gagnvart íslandi og íslenzkri menningu og er skaði, hve fáir íslendingar geta lesið hann. Einnig er tíður samanburður við nútímabókmenntir vel til þess fallinn að gera lesandanum ljóst í hverju hið sérstaka við íslendingasögurnar er fólgið. Þar kemur glöggt fram það, sem höfundur telur frumlegast við íslendingasögurnar, en það er að gera ekki mun á raunverulegum og skáldlegum sannleika. Skáldskapur sem slíkur er því aðeins fyrir hendi í íslendingasögunum í földu forrni, því að í augum samtíðarmanna þess tíma, er sögurnar voru skráðar og lifðu í munn- legri geymd, voru þessar sögur raunverulegur sannleikur. Þannig verður skiljanlegt, að höfundar séu ekki nefndir, enda myndi það hafa strítt gegn eðli sagnanna, ef einhver hefði farið að telja sig höfund sannrar frásagnar. Öðruvísu er þessu hins vegar varið með konungasögurnar, sem fjalla um ríkisheildir þar sem ákveðinn konungur réð fyrir ríkjum. Þær verða því stig í þróun til sögulegs sannleika, sem síðar meir leiðir til aðskilnaðar á milli sögulegs og skáldlegs sannleika, eins og hann kemur fram í verkum nú- tíma höfunda. Fimmti kafli nefnist „Höfuðdrættir bókmenntalegra vísinda" (bls. 136— 144). Þar sýnir höfundur fram á, að íslenzkar fornbókmenntir falla að mestu leyti utan við ramma þá og flokkunarkerfi, sem tíðkast í bókmenntasögum nútímans. Þessi kafli er ákaflega athyglisverður, því að lesandanum verður ljós andstæðan milli fombókmennta og nútímabókmennta. Sá grundvallar- munur, sem þar er á milli, skýrist sem hluti af heimsskoðun tveggja ólíkra tímabila. í þessu sambandi fjallar höfundur einkum um verk Snorra Sturlu- sonar, sem hann telur millistig í þróuninni frá hinu forna bókmenntavið- borfi til þess sjónarmiðs, sem ríkir meðal nútímamanna. í sjöunda kafla „Dansar" (bls. 156—176) fjallar höfundur um dansa og danskvæði, sem hann telur, að hafi komið fram á sjónarsviðið milli 12. og 14. aldar. í dönsunum kemur fram. að höfundur og framsögumaður eru óað- skiljanlegir. Við hverja framsögn umskapast kvæðið að nokkru leyti, enda er óstöðugleikinn, sem einkennir form danskvæðanna, einkenni alls munn-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196
Page 197
Page 198
Page 199
Page 200
Page 201
Page 202
Page 203
Page 204
Page 205
Page 206
Page 207
Page 208
Page 209
Page 210
Page 211
Page 212
Page 213
Page 214
Page 215
Page 216
Page 217
Page 218
Page 219
Page 220
Page 221
Page 222
Page 223
Page 224
Page 225
Page 226
Page 227
Page 228
Page 229
Page 230
Page 231
Page 232
Page 233
Page 234
Page 235
Page 236

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.