Vestfirska fréttablaðið - 15.12.1984, Blaðsíða 11
vestfirska
FRETTABLAEID
11
Fimm af þeim mörgu happasælu skipstjórum sem
stjórnað hafa fiskiskipum Bolvíkinga
Kristján E.
Kristjansson.
Magnús
Kristjánsson.
Bernódus
Halldórsson.
Hávarður
Olgeirsson.
Hannes
Sigurðsson.
Haustið 1977 hljóp svo af
stokkunum í skipasmíðastöð
Marsellíusar Bernharðsson-
ar á ísafirði nýtt skip, mb.
Heiðrún, smíðað fyrir Völu-
stein hf. Skipið var útbúið til
línuveiða, veiða með flot-
vörpu og botnvörpu og loks
til nótaveiða, semsagt fjöl-
veiðiskip. Skipið hefur
reynst vel og aflað vel miðað
við stærð, en það er 350
smálestir.
Hinn 15. júní s.l. bættist
svo nýjasta skipið í flotann,
ms Sólrún Is 1, 300 smálesta
skip sem byggt var í skipa-
smíðastöð Njarðvíkur hf.
Siglinga- og fiskleitartæki
eru að sjálfsögðu af full-
komnustu gerð, en skipið er
alhliða fiskiskip og hefur
sérstaklega verið búið til
rækjuveiða. Á milliþilfari
hefur verið komið fyrir full-
komnum búnaði til vinnslu á
rækju, en þar eru um að
ræða vél sem flokkað getur
rækjuna í 4 stærðarflokka,
suðupott og tvennskonar
hraðfrystibúnað.
Þrjár frystilestar eru í
skipinu og rúma 200 tonn.
FISKIM JÖLSVERK-
SMIÐJA
Árið 1939 keypti faðir minn
litla fiskimjölsverksmiðju úr
togaranum Gylfa frá Pat-
reksfirði. Þessum vélum var
komið fyrir í litlu húsi sem
stóð við brimbrjótinn og var
kallað grútarhús, því þar var
rekin lifrarbræðsla í sam-
vinnu við Bjarna Eiríksson.
En Bjarni Eiríksson var ann-
ar aðalatvinnurekandinn í
Bolungarvík á þessum árum.
Þessi verksmiðja var mjög
afkastalítil, enda vann að-
eins einn maður við fram-
leiðsluna.
Árið 1949 var hafist
handa við að koma upp
annarri beinamjölsverk-
smiðju. Þessi verksmiðja var
í stærra húsnæði og stóð ofar
við brjótinn. Verksmiðjan
var mun afkastameiri en sú
fyrri og um tíma voru keypt
bein t.d. frá Hnífsdal og
Súðavík.
En sumarið 1963 var svo
ráðist í að byggja frá grunni
síldar- og fiskimjölsverk-
smiðju fyrir 200 tonna afköst
á sólarhring.
Svokölluð Suðurlandssíld
hafði veiðst vel, hún var
mikið út af Vesturlandi allt
norður í Víkurál.
Fyrsta skóflustungan fyrir
grunni verksmiðjunnar var
tekin á afmælisdegi föður
míns, 17. maí 1963 og verk-
smiðjan var komin í fulla
vinnslu sex mánuðum síðar.
En svo hvarf síldin af
vesturslóðinni, og þá voru
góð ráð dýr. Síldarverk-
smiðjur ríkisins og fleiri að-
ilar höfðu flutt síld milli
landsfjórðunga í venjulegum
flutningaskipum en allt gekk
það brösuglega. Síldin var
mjög hættulegur farmur
þessurn stóru skipum með
venjulegum lestarbúnaði.
Sú hugmynd kom upp að
leigja tankskipið Þyril til
síldarflutninga og dæla síld-
inni úr veiðiskipunum yfir í
tankskipið. Tilraunin tókst
og skipið kom fjórar ferðir
með fullfermi til Bolungar-
víkur haustið 1964.
Talið er að þetta hafi verið
í fyrsta skipti sem fiski hafi
verið dælt beint úr veiði-
skipum í flutningaskip á hafi
úti.
Eftir þessar tilraunir okkar
tóku aðrir stjórnendur síld-
arverksmiðja við sér og á
næsta ári voru 5 stór tank-
skip í flutningum af síldar-
miðunum.
Við stofnuðum sérstakt
hlutafélag um síldarflutn-
ingana á móti Fiskimjöl hf. á
ísafirði. Hlutafélagið nefnd-
ist Dagstjarnan hf. Það
hlutafélag keypti tankskipið
Þyril. Við gáfum skipinu ýtt
nafn og það fékk sama nafn
og hlutafélagið. Dagstjarnan
var svo í síldarflutningum,
lýsisflutningum og olíuflutn-
ingum milli landa næstu ár-
in.
Sumarið 1976 hófust svo
sumarloðnuveiðar fyrir
Norðurlandi og Vestfjörð-
um. Okkur var ljóst að nú
vantaði stærri verksmiðju.
Við hófumst þegar handa
um stækkun og endurbætur
á verksmiðjunni og seinni
hluta sumars 1977 voru hin
nýju tæki tekin í notkun,
höfðu þá afköst verksmiðj-
unnar aukist um 60% og eru
afköst verksmiðjunnar nú
300 — 400 tonn af loðnu á
sólarhring.
Síldar- og loðnuverk-
smiðjan í Bolungarvík, sem
mönnum fannst djarft fyrir-
tæki upphaflega hefur reynst
fyrirtækinu og byggðarlag-
inu þarft og gott atvinnu-
tæki.
Við vitum að það finnst
ekki öllum Bolvíkingum
loðnulyktin jafn góð og
hressandi. En til fróðleiks get
-------13
Áfangar
r
1
sögu
fyrir-
tækjanna
1941
íshúsfélag
Bolungarvíkur hf. hefur
hraðfrystingu á fiski til
útflutnings.
1945
Tilraunasíldveiðar
hefjast á mb. Bangsa
1946
Hugrún, einn af
Svíþjóðarbátunum
svokölluðu kemur til
Bolungarvíkur á
sjómannadaginn.
Hugrúnin fór fyrst í
flutninga milli
Bolungarvíkur og
Reykjavíkur, en um
sumarið á síldveiðar.
1947
Einar Guðfinnsson
hefur samstarf við
Skafta Stefánsson á
Siglufirði um
síldarsöltun.
Hlutafélagið Völusteinn
stofnað.
1949
Byrjað að reisa nýja
beinamjölsverksmiðju.
1952
Rækjuvinnsla hefst hjá
íshúsfélagi
Bolungarvíkur hf.
1954—55
Tveggja hæð verslunar-
og skrifstofuhús byggt
við Vitastíg 1.
1958
Hlutafélagið Baldur
stofnað um kaup á
tappatogaranum
Guðmundi Péturs.