Vestfirska fréttablaðið - 15.12.1984, Qupperneq 30
vestlirska
30
r
rRETTABLASIP
Skjaldborg með
tuttugu bækur
Bókaútgáfan Skjaldborg á Ak-
ureyri sendlr frá sér 20 bækur á
þessu hausti. Þar kennir margra
grasa og meðal þess eru fimm
nýjar íslenskar skáldsögur, fjór-
ar barnabækur, þýddar bækur
og bækur með þjóðlegum fróð-
leik.
blettinn og aðrar nýjar uppgötv-
anir varðandi mannlegt kyneðli.
Algjör metsölubók í Bandaríkj-
unum. Höfundar Alice Kahn,
Ladas, Beverley Whipple, John
Delbert Perry. Þýðandi: Gissur
Ö. Erlingsson. Formáli: Brynleif-
ur H. Steingrímsson, læknir.
læknir þýddi. Þóra Sigurðardóttir
myndskreytti og teiknaði kápu.
Binni vil eignast hund og Binni
fer út í rigningu. — Tvær nýjar
litmyndabækur frá Ravensburg í
Þýskalandi í hinum geysivinsæla
smábarnabókaflokki þeirra, en
ÍSLENSKAR SKÁLDSÖGUR:
Súrt regn — Höfundur: Vigfús
Björnsson, höfundur bókarinnar
Skógarkofinn. Ótrúlega áhrifa-
mikil og stórbrotin saga um ástir,
ómengaða íslenska náttúru, súrt
regn og dapurlegar framtíðar-
horfur heimsbyggðarinnar.
Háski á Hveravöllum — Höf-
undur: Birgitta H. Halldórsdóttir,
höfundur bókarinnar Inga, sem
kom út s.l. ár. Hörkuspennandi
saga, sem enginn leggur frá sér
fyrr en að lestri loknum.
Sumar á Síldarfirði — Höfund-
ur: Eyjólfur Kárason, sem er dul-
nefni. Þetta er bráðskemmtilega
saga og lýsir vel lífinu í sjávar-
plássum á Norðurlandi á síldar-
árunum gömlu og góðu.
Villt af vegi — Höfundur: Að-
alheiður Karlsdóttir frá Garði.
Þetta er hennar 6. bók. Það þarf
vart að taka fram að þessi bók
Aðalheiðar er mjög spennandi
sem hinar fyrri.
Sigrún — Höfundur: ísól
Karlsdóttir, höfundur bókarinnar
Forlagaflækja, sem kom út á síð-
asta ári. Mjög spennandi lífs-
reynslusaga ungrar stúlku.
Þýddar bækur:
Andi— Höfundar: Kai Her-
mann, höfundur metsölubókar-
innar „Dýragarðsbörn," og
Heiko Gebhart. Saga Andis er
gífurlega áhrifamikil og lætur
engan ósnortinn er hana les.
Fjöldi mynda er í bókinni. Þýð-
andi: Veturliði Guðnason.
Kyneðli og kynmök — Um G~
Barnabækur
Flækings-Jói — Höfundur:
Indriði Úlfsson, sem fékk bók-
menntaverðlaun Fræðsluráðs
Reykjavíkur fyrir bók sína Óli og
Geiri, sem kom út á síðasta ári.
Þetta er 18. bók Indriða, sem er
einn vinsælasti höfundur ungu
kynslóðarinnar á (slandi í dag.
Strákarnir sem struku til Skot-
lands — Höfundur: Marinó L.
Stefánsson, höfundur bókarinn-
ar Manni litli í Sólhltð, sem kom út
árið 1982 og hlaut miklar vin-
sældir um land allt.
Símon Pétur — Höfundur:
Martin Næs, sem er Færeyingur,
fæddur 1953. Hann starfar nú
sem bókavörður á Akureyri.
Hann hlaut barnabókaverðlaun
bæjarstjórnar Þórshafnar árið
1981 fyrir bókina Per og ég.
— Bókin Símon Pétur er samin á
færeysku. Þóroddur Jónasson
BfflClSlGUi/ÓSXSON
GÖNGUH
fyrstu 2 bækurnar í flokknum
komu út í fyrra og hétu Lína og
Lalli geta ekki sofnað og Lína og
Lalli fara í afmæli.
Þjóðlegur fróðleikur o.fl.
Aldnir hafa orðið,. 13. bindi —
Erlingur Davíðsson skráði. —
Einn stærsti og vinsælasti bóka-
flokkur á Islandi. Þessi segja frá:
Guðni Ingimundarson, Kópa-
skeri, Jóhannes Jónsson, Húsa-
vík, Jónína Steinþórsdóttir, Ak-
ureyri, Skarphéðinn Ásgeirsson,
Akureyri, Steinþór Eiríksson,
Egilsstööum, Sveinn Einarsson,
Reykjavík, sem er nýlátinn, og
Sæmundur Stefánsson, Reykja-
vík.
Göngur og réttir, 2. bindi —
Árnes-, Borgarfjarðar- og Mýra-
sýsla — Bragi Sigurjónsson
safnaði og skráði. Þetta er 2. út-
gáfa aukin og endurbætt. Bókin
er um 480 bls. með fjölda mynda.
Þá er nýr kafli um öll fjármörk á
JÓLASKRAUT
JOLAGJAFIR
Vorum að fá einstaklega
fallegt nýtt jólaskraut
Jólatoppar — Jólakúlur
Allskonar jólaskraut í loft,
á veggi og ájólatré. Þetta
er skraut sem ekki hefur
sést hér áður
NÝ LEIKFÖNG
og svo auðvitað fullt af
öðrum ágætum jólagjöfum
VINNUVER
Mjailargötu 6, sími 3520
Ný bOk eítir K»i Hemvmn, hðtuntí mclsðluboksrinnar
..Dyragerðebðm" og Heifco Gebhardt. Hötundamir eyddu
heitu ari i að safna etniviði i sðgu Andis. Vlnlr hans á
halUerispfönum Hamborgar, a ..runttnum' og á kránum
segja trá. Emnig Irásklldlr loreldrar hans, afl gemli.
Innuveilandi og sjoppuelgandrnn aam rak endahnutlnn . .
islandi og í Færeyjum.
Með reistan makka, 4. bindi —
Sögur um hesta — Erlingur
Davíðsson skráði. Margir lands-
kunnir hestamenn segja frá
hestum sínum. Pálmi Jónsson,
fyrrverandi landbúnaðarráð-
herra, ritar formála.
Á varinhellunni — Bernsku-
myndir frá Langanesströndum
— Höfundur: Kristján frá Djúpa-
læk. Þetta er ekki eiginleg ævi-
saga heldur sjálfstæð minninga-
brot. Yfir allri frásögninni hvílir sú
heiðríkja hugarfarsins, sú góð-
látlega kímni og sá tærleiki máls
og stíls sem skáldinu frá Djúpa-
læk er laginn.
Læknabrandarar — Ólafur
Halldórsson læknir safnaði, en
Óttar Einarsson kennari bjó
bókina undir prentun. Yfir 60
læknar eiga þarna gamansögur
og þá eru allmargir brandarar
sem eru ófeðraðir.
Örlög og ævintýri — Fyrra
bindi — Höfundur: Guðmundur
L. Friðfinnsson á Egilsá. Þetta
eru æviþættir, munnmæli, minn-
ingabrot og fleira. Þetta er ó-
venjuleg bók og vönduð að efni,
með fjölmörgum myndum og
teikningum af bæjum, eins og
þeir litu út á árunum 1890 —
1900 eða jafnvel fyrr.
Búskaparsaga í Skriðuhreppi
forna — Þetta er 3. bindi af rit-
safni Eiðs Guðmundssonar á
Þúfnavöllum. I þessari bók er
mikinn fróðleik að finna og fjöldi
fólks kemur þar við sögu. Árni J.
Haraldsson bjó bókina til prent-
unar.
Gott fólk — Viðtöl cg frásagnir
— Höfundur: Jón Bjarnason frá
Garðsvík, sem löngu er lands-
kunnurfyrirbækursínar. Þettaer
skemmtileg og fróðleg bók og í
henni eru margar myndir.
Ilmvötn í miku úrvali
Bestu tegundir
DIOR TURBULENCE
JONTUE HALSTON
CHARLIE AFTER DARK
ANAIS ANAIS BLASÉ
FIDJI NINA RICCI
LE JARDIN WHITE FLOWER
ísaíjarðar apotek ÁSBJÖRN SVEINSSON ■ SÍMI 3009 OSE O.FL. ■ PÓSTHÓLF 14 ■ 400 l'SAFIRÐI
ER
EKKI
TIL-
VALIÐ
að líta inn á Hótel ísafjörð,
mitt í jólaönnunum og
ylja sér á jólaglöggi eða
heitu súkkulaði?
Verið velkomin
HÓTEL ÍSAFJÖRÐUR