Sagnir - 01.06.1999, Page 19
18 Sagnir 1999
Hver er Andrew Wawn?
Ég er doktor í enskum bókmenntum og kenni nú við háskól-
ann í Leeds. Ég tók eftir því í framhaldsnámi að það er oft
erfitt að greina á milli sagnfræði og bókmennta, þetta eru tvær
hliðar á sama peningi. Á mínu fræðasviði er mikilvægt að vera
sæmilega vel heima í sögu og að sjálfsögðu ýmsum öðrum
greinum. Ég lærði í Háskólanum við Birmingham, varði dokt-
orsritgerðina þar, og var ráðinn til háskólans í Keele. Hvar er
Keele? Ekki í Þýskalandi, Keele er vissulega ekki Kiel. Þetta
ætti nánast að vera frægasti háskóli í Bretlandi í augum Ís-
lendinga, þar sem Keele er rétt hjá „íslenska“ knattspyrnulið-
inu í Stoke City! Stoke-on-Trent og Keele er í sömu borg. Ég
er oft spurður hvar Stoke sé, jafnvel í Bretlandi. Mitt á milli
Manchester og Birmingham er besta svarið, þetta er dálítið út
í sveit og flestir keyra hratt framhjá án þess að gefa háskóla
eða knattspyrnuliði gaum. Í Keele kenndi ég enskar bók-
„Það er ekkert gaman
hér í bullandi sólskini“
– Viðtal við Dr. Andrew Wawn
Óli Kári Ólason
Ájólaföstu 1999 hittu Sagnirfyrir Andrew Wawn þarsem hann sat við blaða-
bunka á Árnastofnun. Wawn gaf
sér tíma fyrir spjall um fræðistörf
sín, feril og helstu rannsóknir.
Wawn er með skemmtilegri mönn-
um, kannski bergmál þeirra tíma
er fáeinir Englendingar komu
Íslands, virkilega kynntust landi
og þjóð og fluttu með sér þekkingu
sína aftur til Bretlands, sá tími sem
Andrew Wawn nú rannsakar.
menntir forn- og miðalda, sögu tungumálsins, stílfræði o.s.
frv. 1983 flutti ég mig yfir til Háskólans í Leeds. Ég skrifaði
doktorsritgerð um Geoffrey Chaucer, en síðastliðin 20 ár hef
ég æ meira lagt Chaucer til hliðar og þess í stað einbeitt mér
að Íslandi.
Af hverju beindist áhugi
þinn að Íslandi?
Tilviljun og örlög. Það var skemmtilegra að lesa fornar ís-
lenskar bókmenntir heldur en þær ensku, og margir lásu þær
sér til skemmtunar í háskólanum. Ég fékk því áhugann á Ís-
landi í gegnum bókmenntirnar. Í þá daga ferðuðust háskóla-