Sagnir - 01.06.1999, Blaðsíða 31
30 Sagnir 1999
Vinjar og vín
– Um deilur fræðimanna varðandi Vínland
Benedikt Eyþórsson
Vínland eða Vinland?
Málfræðingurinn Sven Södenberg setti fram kenningu um að
nafn hins nýja lands sem Leifur og félagar komu til hafi verið
Vinland en ekki Vínland eins og menn höfðu gengið út frá í
aldaraðir. Gerði hann þetta í fyrirlestri árið 1898 en kenning-
in birtist ekki á prenti fyrr en 1910, að honum látnum.1 Söden-
berg lagði áherslu á að „...kvikfjárrækt hafi verið ... mikilvæg-
asti búskaparháttur Íslendinga og Grænlendinga. Ef þeir hafi
ætlað að setjast að í nýjum löndum, hafi landið þurft að bjóða
upp á góð beitilönd fyrir kvikfénað
þeirra.“2 Nafnið á Vínlandi hafði upp-
haflega lýsandi merkingu, forskeytið
vin- var gamla norræna hugtakið fyrir
beitiland, engi. Þessi notkun á orðinu
vin var ekkert einsdæmi. Mörg staðar-
nöfn í Noregi nota vin sem forskeyti
eða í enda orðs, svo sem: Vinje, Vinju, Björgvin og Granvin.
Þetta kemur líka fram í Svíðþjóð, á Orkneyjum og Hjaltlandi
en er þó ekki að finna á Íslandi eða Færeyjum. Í hans augum
þýddi það þó ekki að landnemar á Íslandi og Færeyjum hafi
verið hættir að nota það á þeim tíma sem þessar eyjar byggð-
ust. Heldur liggi ástæðan í því að á Íslandi er náttúran öðruvísi
en í Noregi og því hafi það ekki verið notað.3
Að útskýra vin-leysið í staðarnöfnum á Íslandi út frá ólík-
um náttúruaðstæðum, hér og í Noregi, virðist vera nokkuð
hæpið. Þó að löndin tvö séu um margt ólík þá eru það ófár
sveitirnar hér á landi sem hefðu getað
verið kenndar við vin, í merkingunni
beitiland, á einn eða annan hátt. Margir
hafa hafnað kenningunni og komið með
sterk rök gegn henni. Aðrir hafa þó
gripið hana á lofti og talið hana vera
lausnina á Vínlandsgátunni. Norðmað-
urinn Helge Ingstad, sá sem ásamt eiginkonu sinni gróf upp
norrænu rústirnar við L´Anse aux Meadows, tók kenninguna
Áárinu 2000 verður þess minnst að árþúsund er liðið frá því að menn frá Græn-landi og Íslandi hófu landkönnun á meginlandi Ameríku. Frá þessum ferðum ogævintýrum landkönnuðanna segir í tveim stuttum Íslendingasögum, Eiríks sögu
rauða og Grænlendinga sögu. Á grundvelli vitnisburðar sagnanna hefur Leifur heppni
hlotið þann heiður að vera talinn fyrsti hvíti maðurinn til að koma til Ameríku.En um-
ræðan um landafundina hefur ekki verið þrætulaus, hvorki hjá leikum né lærðum. Nær-
tækasta dæmið er rifrildi Íslendinga og Norðmanna um þjóðerni Leifs. Vilja báðar þjóð-
irnar eigna sér hann og nýta sér forna frægð hans sér til framdráttar. Þetta hjákátlega
rifrildi frændþjóðanna er þó ekki eina deila sem tengist þessu efni. Alla þessa öld hefur
töluvert verið ritað og rætt um Vín hafa haldið því fram að upprunalegt nafn landsins
hafi ekki verið Vínland, lands vínsins, heldur Vinland. Forskeytið vin- merki þá beitiland
eða grasland en fyrir misskilning hafi nafnið Vínland fests við landið. Hér á eftir verður
þessi kenning metin og vegin. Einnig verður vandamálið um legu Vínlands skoðað og
reynt að varpa nokkru ljósi á mögulega legu þess.
Nafnið á Vínlandi hafði upphaf-
lega lýsandi merkingu, for-
skeytið vin- var gamla norræna
hugtakið fyrir beitiland, engi.