Sagnir - 01.06.1999, Síða 72

Sagnir - 01.06.1999, Síða 72
Stjrnmlastefna Slobodan Milosevic Fararsnið á Slóvenum Í mars 1989 kom Milosevic í gegn breytingum á stjórnarskrá Serbíu þar sem sjálfstjórnarréttindi Vojvodínu og Kosovo voru afnumin. Við það juk- ust völd Serbíu til muna í ríkisráðinu, vegna þess að með atkvæðum héraðanna réði Serbía í raun yfir fjórum af átta atkvæðum í ríkisráðinu, þar sem stjórn Svartfjalllendinga var hliðholl Milosevic. Valdajafnvægið í Júgóslavíu hafði þar með breyst í átt til sterkrar miðstýringar undir stjórn Serba. Til að sporna við þróuninni og tryggja framtíð sína lögðu Slóvenar fram breytingartillögur að eigin stjórnarskrá. Þeir vildu binda inn í stjórnarskrána að Slóvenar gætu ef nauðsyn krefðist sagt sig úr sambandsríki Júgóslavíu og lýst yfir sjálfstæði Slóveníu.15 Þegar Serbar fréttu af fyrirhugðum breytingum á stjórnarskrá Slóveníu kröfðust þeir að málefnið yrði rætt í sambandslýðveldunum. En slóvenska stjórnin hafnaði því með þeim rökum að Serbía hefði breytt eigin stjórnarskrá án þess að hin sambandslýðveldin hefðu nokkuð um það fengið að segja. Slóvenar fullyrtu að Serbía hefði gefið öðrum sambandslýðveldum fordæmi með því að breyta eigin stjórnarskrá.16 Deilur Slóveníu og Serbíu um hver staða lýðveldanna ætti að vera innan Júgóslavíu héldu áfram. Sló- venar gagnrýndu Serba einnig harðlega fyrir mannréttindabrot og meðferð þeirra á Kosovo-Albönum. Sambandið milli lýð- veldanna versnaði enn frekar og 1. desember 1989 gáfu serbnesk stjórnvöld út fyrirskipun um að serbnesk fyrirtæki skyldu sniðganga allar slóvenskar vörur. Þessi aðgerð skaðaði ekki bara Slóvena því að serbnesku verksmiðjurnar voru háð- ar slóvenskri framleiðslu, en það virtist ekki breyta afstöðu serbneskra stjórnvalda.17 Atburðir sem gerðust á þingi júgóslavneska Kommúnista- flokksins í janúar 1990 sýndu hversu alvarlegar deilurnar voru orðnar, en þær skerptust frekar eftir að þinginu lauk. Ennfrem- ur þótti hegðun serbneska og svartfjalllenska meirihlutans sýna að viljinn til að finna lausn á deilunum væri ekki til stað- ar. Eftir að öllum tillögum sem Slóvenar, Króatar, Makedón- íumenn eða Bosníumenn lögðu fram var hafnað yfirgáfu Sló- venar þingið. Til merkis um heiftúðlegt andrúmsloftið á þing- inu var hverri tillögu sem vísað var frá fagnað með lófataki og hæðnislegum hlátri af meirihlutan- um. „Samband júgóslavneskra kommúnista er ekki lengur til“ hljóð- aði fyrirsögnin flokksblaðsins Borba í Belgrad eftir þingið.18 Um vorið 1990 héldu Slóvenía og Króatía fyrstu frjálsu kosningarnar í sambandslýðveldum Júgóslavíu en Bosnía-Hersegóvína og Serbía héldu sínar kosningar í lok ársins. Nær allir frambjóðendur stjórn- málaflokkanna lögðu áherslu á þjóðernisstefnu í stefnuskrám sínum. Í blaðaviðtali við þýska tímaritið Der Spiegel svaraði Kucan því til að hættan á borgarastyrjöld hefði aukist þar sem sambandslýðveldin leituðust við að verða fullvalda þjóðríki. Mest væri hún þar sem þjóðernishóparnir byggju hverjir inn- an um aðra, í Kosovo, Krajina og Bosníu-Hersegóvínu. Ef að til stríðs kæmi myndu Slóvenar nýta sér nýja ákvæðið í stjórn- arskrá sinni og segja sig sem fyrst úr ríkjasambandi Júgóslavíu. Enda var Kucan þeirrar skoðunar að pólitík Serba gengi ekki út á sameiginleg örlög sambandsríkisins heldur væri markmiðið að tryggja þá stöðu sem gera myndi þeim kleift að beygja aðra í Júgóslavíu undir efnahagslega og póli- tíska hagsmuni þeirra.19 Tudjman notar króatíska þjóðernishyggju Króatía var næststærsta sambandslýðveldið og hafði fengið viðurnefnið „þögla lýðveldið“ eftir að Tító braut þjóðernis- hreyfinguna MASPOK (Masovni Prokret) á bak aftur árið 1971. Mjög hart var tekið á öllum þeim er tilheyrðu hreyfing- unni eða tengdust henni á einhvern hátt og til dæmis voru króatísk menningarfélög leyst upp og bönnuð.20 Eftir þessa at- burði voru umræður um króatískt sjálfstæði algerlega bannað- ar í Júgóslavíu á dögum Kommúnista- stjórnarinnar. Handtökur giltu sem að- vörun til Króata um að króatísk þjóð- ernishyggja yrði á engan hátt umbor- in.21 Um það bil tuttugu árum síðar fór aftur að bera á leiðtogum MASPOK- hreyfingarinnar. Króatíski lýðræðis- flokkurinn (HDZ) samanstóð að hluta af þeim er voru innan þjóðernishreyfingarinnar, en meðal þeirra var sagnfræðingurinn og fyrrum hershöfðinginn Franjo Tudjman.22 Í ljósi þeirrar þjóðernisstefnu sem Milosevic rak í Serbíu átti Tudjman auðvelt með að afla flokki sínum stuðn- ings. En Tudjman höfðaði, líkt og Milosevic, til þjóðernis- kenndar þjóðar sinnar og ól á hugmyndum um að Króatar hefðu þurft að þola kúgun og óréttlæti af hendi Serba. „Í stað 71Sagnir 1999 Milosevic og Ibrahim Rugova, einn af leiðtogum Kosovó-Albana hittust í apríl 1999. ... Tudjman höfðaði, líkt og Milos- evic, til þjóðerniskenndar þjóðar sinnar og ól á hugmyndum um að Króatar hefðu þurft að þola kúgun og óréttlæti af hendi Serba.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89

x

Sagnir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.