Morgunblaðið - 30.07.2015, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. JÚLÍ 2015
„Hundurinn minn var búinn að
vera í meðferðum hjá dýralækni
í heilt ár vegna húðvandamála
og kláða, þessu fylgdi mikið
hárlos. Hann var búinn að vera
á sterum án árangus. Reynt
var að skipta um fæði sem bar
heldur ekki árangur. Eina sem
hefur dugað er Polarolje fyrir
hunda. Eftir að hann byrjaði að
taka Polarolje fyrir hunda hefur
heilsa hans tekið stakkaskiptum.
Einkennin eru horfin og hann er
laus við kláðann og feldurinn
orðinn fallegur.“
Sigurlín Birgisdóttir, hundaeigandi
Sími 698 7999 og 699 7887
Náttúruolía sem
hundar elska
Við Hárlosi
Mýkir liðina
Betri næringarupptaka
Fyrirbyggir exem
Betri og sterkari fætur
NIKITA
hundaolía
Selolía fyrir
hunda
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Bændur í Mývatnssveit eru loks
byrjaðir að heyja eftir langvarandi
norðanátt og vætu. Hér má sjá Ara
Rúnar Gunnarsson við sláttinn á
bænum Vogum II. Faðir hans, Gunn-
ar Rúnar Pétursson, segir að sláttur-
inn gangi vel. „Menn eru að byrja
einn af öðrum. Loks er kominn
þurrkur svo þetta er gerlegt,“ segir
Gunnar. Hann segir að flestir hafi
verið búnir í heyskap um svipað leyti
í fyrra. „Það tekur ekki langan tíma
að heyja nú til dags. Þetta getur ver-
ið yfirstaðið á viku, en nú eru margir
bændur sem gera út á verktöku, sér-
staklega við rúllubaggagerð. Það
segir sig sjálft að þegar allir eru að
heyja í einu þá er ekki víst að menn
fái verktaka hér á þessu svæði,“ seg-
ir Gunnar. Hann segir að menn hafi
getað dreift álaginu á milli sín fyrri
ár og heyjað á ólíkum tíma. Hann
segir að nú horfi menn til veðurs og
vonist eftir góðri spá svo að hægt sé
að halda heyskap áfram. Aðspurður
segir hann þetta ekki kaldasta sum-
ar í manna minnum. „Sumarið 1979
voru menn að heyja í september og
október,“ segir Gunnar.
vidar@mbl.is
Slátturinn
loksins
hafinn
Morgunblaðið/Birkir Fanndal
Bændur í Mývatnssveit geta loks heyjað eftir harða tíð
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Heitur lækur hefur myndast austast
á tungu Holuhrauns, nærri fossinum
Skínanda. Landverðir í Vatnajökuls-
þjóðgarði uppgötvuðu nýlega að
hægt væri að baða sig í læknum. Stef-
anía Vignisdóttir, landvörður á svæð-
inu, segir að í fyrstu hafi þau haldið
að lækurinn væri of kaldur til að baða
sig í en það hafi ekki reynst rétt og er
vatnið tæplega 40 gráður þar sem það
er heitast. „Fyrst sáum við heita og
volga potta. Að lokum komum við að
eins konar á, eða straumhörðum læk
sem er heitur,“ segir Stefanía. Hún
segir óljóst hvort vatnið muni kólna
eða hitna meira en orðið er. „Við höf-
um ekki fundið neinn stað þar sem
vatnið er of heitt,“ segir Stefanía.
Hún segir að landverðir og ferða-
menn hafi þegar baðað sig í vatninu.
Sumir velji að baða sig í einskonar
pottum sem eru aðgengilegri en læk-
urinn sjálfur. Stefanía hefur sjálf
baðað sig og segir upplifunina nota-
lega. Hún segir að lækurinn sé ekki
sérstaklega aðgengilegur. „Það
hvorki má né er sniðugt að fara yfir
hraunið af öryggisástæðum. En áður
en komið er að nýja hrauninu er
hægt að vaða yfir kaldan læk sem
nær upp fyrir hné. Svo fer maður yf-
ir nokkrar sprænur sem eru volgar
áður en maður kemur að heita vatn-
inu. Maður gengur í rauninni eftir
kantinum á nýja hrauninu,“ segir
Stefanía.
Hún segir að nokkuð sé um ferða-
menn á svæðinu, bæði erlenda og inn-
lenda. „Sumir Íslendingar sem frétt
hafa af þessu hafa komið hingað í
þeim eina tilgangi að fara í lækinn, en
ekki til að skoða t.d. Öskju,“ segir
Stefanía. Hún bendir á að áhrif vatns-
ins á heilsufar fólks hafi ekki verið
könnuð og því hafi engin leið verið
stikuð að því. Fólk verði að fara þang-
að á eigin vegum og á eigin ábyrgð.
Baðstaður við Holuhraun
Landverðir og ferðamenn baða sig í heitum læk sem myndast hefur við Holu-
hrun Vatnið um 40 gráður þar sem það er heitast Fremur erfitt aðgengi
Ljósmynd/Júlía Björnsdóttir
Notalegt Ferðamenn og landverðir hafa baðað sig í heitum læknum.
Jón Birgir Eiríksson
jbe@mbl.is
Ekki er útlit fyrir að sólin láti sjá sig
um verslunarmannahelgina í þeim
mæli sem landsmenn flestir myndu
kjósa, en útlit er fyrir að víða verði
skýjað og lítils háttar rigning öðru
hvoru. Víðast hvar verða hitatölur á
bilinu fimm til fimmtán stig. Hvergi
verður þó áberandi hlýjast og flestir
landshlutar fá sinn skerf af úrkomu
yfir helgina.
Skýjað verður á fimmtudag og
víða skúrir síðdegis, helst á Suður-
og Vesturlandi, auk nokkurs hvass-
viðris á Suðurlandi. Hitinn verður á
bilinu tíu til fimmtán stig.
Á föstudag verður skýjað og úr-
komulítið norðantil en bjart veður
annars staðar á landinu. Hlýjast
verður á suðvesturhorninu, en hitinn
verður á bilinu sex til sautján stig.
Skýjað á sunnudaginn
Á laugardag má búast við súld og
rigningu á Norðurlandi. Skýjað
verður á Suður- og Austurlandi. Hiti
verður á bilinu sex til fimmtán stig
og hlýjast á Suðurlandi. Á Vestfjörð-
um má búast við úrkomu yfir daginn.
Sunnudagurinn verður skýjaður
og má búast við skúrum á stöku stað,
einkum á Vestur- og Norðurlandi.
Hiti verður átta til sextán stig.
Hátíðarhöld fara fram um land allt
eins og venja er. Til dæmis má nefna
Mýrarboltann á Ísafirði, Þjóðhátíð í
Heimaey, Eina með öllu á Akureyri,
Neistaflug í Neskaupstað og Inni-
púkann í Reykjavík.
Skin og skúrir í bland um
verslunarmannahelgina
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Léttskýjað Búist er við bjartviðri
víðast hvar, en stöku skúrum þó.
Veðrið verður
ágætt um helgina
Atvinnuvega-
ráðuneytið til-
kynnti í gær að
starfsemi Fiski-
stofu yrði flutt til
Akureyrar 1. jan-
úar 2016. Eyþór
Björnsson, for-
stjóri Fiskistofu,
sagði í samtali við
Morgunblaðið að
engum starfsmönnum yrði sagt upp
eða settir afarkostir um flutning til
Akureyrar. Ráðið yrði í stöður á Ak-
ureyri ef starfsfólk á höfuðborgar-
svæðinu hættir og því gæti ferlið
tekið 10-15 ár.
Fiskistofa
flutt til
Akureyrar
Eyþór Björnsson
Fer norður 1. jan-
úar næstkomandi