Morgunblaðið - 30.07.2015, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. JÚLÍ 2015
Í alþjóðlegum fréttum í gær varþað helst að yfirvöld í Afganistan
tilkynntu að þau hefðu staðfestar
upplýsingar um að Mullah Omar, út-
lægur leiðtogi talibana, væri látinn.
Þetta þótti stór-frétt, en vafa-
samara væri að
flokka hana sem
nýja frétt, því í henni
fólst að Omar hefði
látist á sjúkrahúsi í
Karachi fyrir tveimur árum.
Það jók þó nýgildi fréttarinnar aðfyrir rúmri viku hafði birst yfir-
lýsing, sögð frá Mullah Omar, hinum
eineygða, og fjallaði um samninga-
viðræður ríkisstjórnarinnar í Kabúl
og talibana.
Nú er ekki vitað um neinn semhefur séð Omar eineygða síð-
an hann komst undan Bandaríkja-
mönnum fyrir áratug.
Flúði hryðjuverkaforinginn þáfyrst í leigubíl og svo á mótor-
hjóli í næsta áfanga flóttans.
Getgátur eru uppi um að frétt-irnar í gær séu hannaðar af
leyniþjónustum sem leita Omars, til
að beita hann þrýstingi til að senda
rödd sína í útvarpsstöð, eins og
Osama bin Laden gerði, og sanna til-
veru sína. Þá væri glæta að ná hon-
um.
En Mullah Omar er séður og gætií þetta sinn komið sér á milli
staða í líkbíl en ekki leigubíl, sem
myndi gera óvinum hans enn erf-
iðara um vik að ákveða hvort Omar
sé lifandi eða dauður, eineygður á
báðum eða hvort hann búi enn í Ka-
búl, þar sem í innrásarfátinu hafi
hann ekki átt fyrir lengri ferð í
leigubílnum.
Mullah Omar
Gengur hann
eineygður aftur?
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 29.7., kl. 18.00
Reykjavík 12 skýjað
Bolungarvík 15 heiðskírt
Akureyri 9 léttskýjað
Nuuk 8 skýjað
Þórshöfn 7 alskýjað
Ósló 13 skýjað
Kaupmannahöfn 15 léttskýjað
Stokkhólmur 17 skýjað
Helsinki 18 heiðskírt
Lúxemborg 18 heiðskírt
Brussel 17 heiðskírt
Dublin 15 skýjað
Glasgow 16 léttskýjað
London 18 léttskýjað
París 20 heiðskírt
Amsterdam 17 léttskýjað
Hamborg 16 léttskýjað
Berlín 16 skúrir
Vín 22 léttskýjað
Moskva 21 léttskýjað
Algarve 28 heiðskírt
Madríd 37 heiðskírt
Barcelona 28 léttskýjað
Mallorca 31 léttskýjað
Róm 28 heiðskírt
Aþena 32 heiðskírt
Winnipeg 18 skýjað
Montreal 27 skýjað
New York 33 heiðskírt
Chicago 28 alskýjað
Orlando 30 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
30. júlí Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 4:28 22:41
ÍSAFJÖRÐUR 4:10 23:09
SIGLUFJÖRÐUR 3:52 22:53
DJÚPIVOGUR 3:52 22:16
Agnes M. Sigurð-
ardóttir, biskup
Íslands, verður
heiðursgestur á
tveimur hátíðum í
Vesturheimi um
helgina. Hún flyt-
ur hátíðarræðu í
Mountain í Norð-
ur-Dakóta í
Bandaríkjunum á
laugardag og á
Gimli í Manitoba í Kanada á mánu-
dag.
Íslendingar settust fyrst að í
norðausturhluta Norður-Dakóta
1878 og íslenska hátíðin í Mountain,
Deuce of August, fer þar fram í 116.
sinn.
Í október 1875 kom fyrsti hópur
Íslendinga til Gimli og Íslendinga-
dagshátíðin, Icelandic Festival of
Manitoba, fer nú fram í 126. sinn.
steinthor@mbl.is
Biskup Ís-
lands heið-
ursgestur
Agnes M.
Sigurðardóttir
Sjávarútvegs- og
landbúnaðar-
ráðherra hefur
skipað Jón Gísla-
son forstjóra
Matvælastofn-
unar frá 1. ágúst
til næstu fimm
ára samkvæmt
lögum nr. 80/2005
um stofnunina.
Starf forstjóra Matvælastofnunar
var auglýst 6. maí sl. og sóttu níu
einstaklingar um starfið.
Sérstök hæfisnefnd lagði mat á
umsækjendur og gerði tillögu til
ráðherra, samkvæmt frétt á vefsíðu
Matvælastofnunar.
Jón hefur gegnt starfi forstjóra
stofnunarinnar frá því að hún var
sett á laggirnar árið 2007.
Jón áfram
forstjóri
MAST
Jón Gíslason