Morgunblaðið - 30.07.2015, Blaðsíða 20
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. JÚLÍ 2015
GÁMA-SALA
27.-30. JÚLÍALLT AÐ
50%
AFSLÁTTUR
HJÓLA-OGSPORTVÖRUVERSLUNIN · FAXAFENI 7 · REYKJAVÍK · SÍMI 5 200 200
VERSLAÐU Á
WWW.GÁP.IS
SÍÐASTI DAGURINN Í D
AG!
AÐ
EINS
D
A
G
A
R
TIL STE
FN
U
!2
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Farþegaþotur í langflugi milli Evr-
ópu og Ameríku fljúga enn beint yfir
Heklu, þrátt fyrir viðvaranir Páls
Einarssonar, prófessors í jarðeðlis-
fræði við Háskóla Íslands. Hann
skrifaði Samgöngustofu fyrir um ári
síðan og varaði við því að farþega-
þotur leggi leið sína yfir eldfjallið.
„Ég reyndi að vekja athygli á því
að það væri óþarfa áhætta tekin með
því að flugvélar fljúgi þarna beint yf-
ir,“ sagði Páll.
„Það fljúga þarna
yfir 20-30 flug-
vélar á dag. Þær
eru í hættu að
lenda í stróknum
þegar hann kem-
ur. Hekla þarf
ekki að eyða
neinni orku í að
bræða sig upp í
gegnum jökul
þannig að mökk-
urinn mun rísa strax með fullri orku
og fara upp í tíu kílómetra hæð, upp
að veðrahvörfum.“ Páll sagði að það
myndi nægja að færa flugleiðina um
fimm kílómetra frá Heklu til að
minnka áhættuna mikið. „Það sár-
grætilega er að það virðast ekki vera
nein viðbrögð hjá flugyfirvöldum til
þess að gera þennan sjálfsagða hlut.
Þá yrði þessi hætta úr myndinni.
Það væri alveg hrapallegt ef við
misstum allt í einu flugvél þarna,“
sagði Páll.
Færa þarf vegpunktinn
Hann sagði að svo virtist sem
flugmenn íslensku flugfélaganna,
sem áður flugu yfir Heklu á leið frá
Keflavík til Helsinki og Stokkhólms,
hafi breytt leiðinni og fari ekki leng-
ur beint yfir Heklu. Öðru máli gegni
með langflug frá austurhluta Evr-
ópu og Mið-Austurlöndum til
Bandaríkjanna sem enn fer beint
þarna yfir. Þessar flugvélar nota
Leirubakka sem vegpunkt á leið
sinni. Það þarf ekki meira en að
færa þann punkt til að vélarnar
sleppi við gosstrókinn þegar Hekla
kemur.
Páll sagði að Hekla væri í sömu
sporum og áður. „Hún er til í næsta
slag,“ sagði Páll. „Við fáum ekkert
meiri merki fyrr en hún bara kemur.
Við vitum það. Hekla á næsta leik og
aðdragandinn að honum verður
mjög stuttur. Aðdragandinn að gosi
verður varla meira en hálftími eða
klukkutími.“ Mikill tækjabúnaður er
notaður til að vakta Heklu. Þensla
jarðskorpunnar vegna vaxandi
þrýstings í kvikuhólfinu er hæg.
Djúpt er niður á kvikusöfnunina sem
þýðir að kúlan sem myndast á landið
er umfangsmikil og lág. Merkið sem
kemur er dauft en mjög eindregið,
að sögn Páls. Þróunin undanfarin ár
hefur öll verið upp á við.
En mælir Páll með gönguferðum
á Heklu við núverandi aðstæður?
„Ég myndi ekki fara með hóp á
Heklu,“ sagði Páll. Hann sagðist
myndi ef til vill fara einn en þá
myndi hann gæta þess að halda sig
vindmegin en ekki hlémegin.
Varað við hættunni
Upplýsingaskilti á íslensku og
ensku, þar sem varað er við hættu af
eldgosi, eru við gönguleiðirnar upp á
Heklu. Þar segir meðal annars að
Hekla sé eitt virkasta eldfjall Íslands.
Flest eldgos í Heklu hefjist nánast
fyrirvaralaust með snörpum jarð-
skjálftahrinum, síðan sprengifasa og
tilheyrandi öskufalli og hraungosi.
Forboðar Heklugosa sem urðu árin
1970, 1980-81, 1991 og 2000 sáust á
mælitækjum einungis 30 til 80 mín-
útum áður en gosin hófust.
Sé eldgos yfirvofandi í Heklu eru
send SMS-skilaboð í alla farsíma á
svæðinu. Sé fólk statt á fjallinu þeg-
ar fer að gjósa er það hvatt til að láta
vita af sér með því að hringja í síma
112. Það á að forða sér niður sömu
leið og það kom upp, ef kostur er.
Ráðlagt er að fara þvert á öskufall,
sé það hægt, og að forðast lægðir og
halda hæð vegna hættu á eldfjalla-
gasi.
Hekla skapar hættu fyrir flugið
Páll Einarsson prófessor hefur varað við því að farþegaþotur leggi leið sína yfir Heklu Eldfjallið
getur gosið fyrirvaralítið og gosmökkurinn risið allt að 10 kílómetra upp í loftið á skammri stundu
Morgunblaðið/ÞÖK
Hekla Eldfjallið er 1.491 m hátt og eitt það virkasta á Íslandi. Fyrsta eldgos Heklu eftir landnám, og það mesta,
varð árið 1104 og olli miklu tjóni. Síðan hefur Hekla gosið 23 sinnum og getur gos komið með skömmum fyrirvara.
Helstu hættur eldgosa
» Hraunrennsli getur verið
óútreiknanlegt og þungir gló-
andi steinar þeyst langt frá
gígnum.
» Öskufall spillir skyggni og
gerir erfitt um öndun. Gust-
hlaup, brennheit öskuský, geta
ruðst niður hlíðar.
» Þá getur eldgos valdið
vatnsflóðum, skriðum og aur-
skriðum. Hætta á eldingum
eykst nálægt gosmökkum og
undir gosmekki og í öskufalli
verður lítið skyggni. Eldfjalla-
gas leitar í lægðir.
Páll Einarsson
Skagafjörður hefur verið útnefndur Gæða-
áfangastaður Íslands 2015 fyrir verkefnið Mat-
arkistan Skagafjörður. Verkefnið var útnefnt
af Ferðamálastofu í tengslum við EDEN-
verkefnið sem stendur fyrir „European Dest-
ination of Excellence“. Markmið EDEN-
verkefnisins er að vekja athygli á gæðum, fjöl-
breytileika og sameiginlegum einkennum evr-
ópskra áfangastaða og kynna til sögunnar lítt
þekkta áfangastaði og samkvæmt vefsíðu
Ferðamálastofu var þemað í ár matartengd
ferðaþjónusta. Í niðurstöðu valnefndar segir
m.a. að Matarkistan Skagafjörður hafi verið
fyrsta samstarfsverkefni sinnar tegundar hér á
landi og hafi þannig rutt veginn fyrir önnur slík
verkefni. Annað sætið hlaut Skaftárhreppur
fyrir verkefnið Hvað er í matinn?
Skagafjörður er Gæðaáfangastaður 2015
Sauðárkrókur Matarkistan
hefur vakið mikla athygli.
Höggmyndin
Jacqueline með
gulan borða eftir
Pablo Picasso
verður til sýnis í
Listasafni Ís-
lands til 4. janúar
á næsta ári. Jac-
queline Roque
Picasso, ekkja
listamannsins,
gaf frú Vigdísi
Finnbogadóttur höggmyndina af
sjálfri sér og afhenti Vigdís Lista-
safni Íslands höggmyndina til varð-
veislu 1988. Síðan þá hefur hún ver-
ið sýnd oftar erlendis en hér á
landi, enda talin afar sérstæð.
Picasso-verk til sýnis
í Listasafni Íslands
Jacqueline, verk
Picassos.
30% banaslysa í umferðinni hér á
landi verða vegna þess að ökumað-
ur er undir áhrifum, samkvæmt til-
kynningu frá VÍS. Þar segir að
margir flaski á því að leggja of
snemma af stað eftir að áfengis er
neytt, langan tíma getur tekið að
brjóta niður áfengið og tímalengdin
mismunandi milli fólks. Góð þumal-
puttaregla sé að það taki líkamann
u.þ.b. eina klukkustund að brjóta
niður hvern einfaldan áfengisdrykk
eftir að drykkju er hætt.
Ef vínandamagn í blóði mælist
0,5 til 0,6 prómill, sem er lægsta
gildi sem sektað er fyrir, er sektin
70.000 kr. ásamt sviptingu ökuleyf-
is í tvo mánuði, skv. tilkynningunni.
Ekki leggja of
snemma af stað
STUTT
„Mér sýnast margir einstaklingar ganga þarna upp en
ekki stórir skipulagðir hópar,“ sagði Anders Hansen í
Heklusetrinu á Leirubakka í Landsveit. Hann var spurð-
ur hvort dregið hefði úr Heklugöngum eftir að viðvörun-
arskilti voru sett við gönguleiðir á fjallið. Fólk gengur
þar upp nær daglega, mismargir eftir veðri. Enn er svo-
lítill snjór á Heklu. Gangan upp og niður tekur 5-6 tíma.
„Ef fer að gjósa þá er hver og einn á sína ábyrgð,“
sagði Anders. „En því er ekki að leyna að stundum sýn-
ist manni að fólki finnist meira spennandi að fara upp á
Heklu þegar svona skilti blasir við. Því finnst gaman að segja frá því eft-
irá að það hafi verið á þessum hættulega stað.“
Margir ganga á Heklu
HÓPAR FARA EKKI LENGUR Á ELDFJALLIÐ
Anders Hansen