Morgunblaðið - 30.07.2015, Page 28
SVIÐSLJÓS
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Áform um hótel við Lækjargötu, þar
sem útibú Íslandsbanka hefur verið
til húsa, eru ekki ný af nálinni. Árið
2005 voru kynntar hugmyndir af þá-
verandi aðstandendum verkefnisins;
þróunarfélaginu Þyrpingu, Glitni og
fleiri aðilum, en þær hlutu ekki náð
fyrir augum borgaryfirvalda. Unnar
voru nýjar tillögur 2007, en þá voru
Flugleiðahótelin (nú Icelandair-
hotels) komin að verkefninu. Þóttu
þær hugmyndir of stórtækar og arki-
tektar beðnir að taka meira tillit til
umhverfisins.
Enn tóku arkitektar til við breyt-
ingar, sem kynntar voru skömmu fyr-
ir hrunið 2008. Áformin voru síðan
lögð til hliðar og Íslandsbanki sagði
sig frá verkinu, en forverinn, Glitnir,
hafði hugmyndir um að banki yrði
starfræktur á fyrstu hæð hótelsins.
Þessi þróun á útlitinu sést nánar á
myndunum hér að ofan, en teikning-
arnar voru allar unnar af THG Arki-
tektum, að beiðni Þyrpingar og sam-
starfsaðila félagsins. Til samanburðar
er birt mynd hér til hliðar af tillögu
Teiknistofunnar Glámu-Kím sem bar
sigur úr býtum í nýlegri samkeppni
núverandi aðila hótelverkefnisins, Ís-
landshótela og Minjaverndar.
Tekið upp í skipulagsráði
Júlíus Vífill Ingvarsson, borgar-
fulltrúi Sjálfstæðisflokksins, var for-
maður skipulagsráðs á árunum 2008-
2010 og hefur átt sæti í umhverfis- og
skipulagsráði frá stofnun ráðsins árið
2010. Hann segir athyglisvert hvern-
ig hugmyndir um hótelbyggingar við
Lækjargötu hafa tekið breytingum í
tímans rás. Ýmsar tillögur hafi verið
lagðar fyrir skipulagsráð og hugnast
Júlíusi ekki nýjasta tillagan. Telur
hana ekki taka nægt tillit til þeirrar
byggðar sem fyrir er í miðbæ
Reykjavíkur.
Júlíus hyggst taka málið upp þegar
ráðið kemur úr sumarfríi og vonast til
þess að hótelbyggingunni verði
breytt þannig að hún falli betur inn í
umhverfið. Þá hefur Júlíus óskað eft-
ir því við formann ráðsins, Hjálmar
Sveinsson, að fundað verði með þeim
fornleifafræðingum sem staðið hafa
fyrir uppgreftri í grunni fyrirhugaðs
hótels. Vill Júlíus að hugað verði vel
að varðveislu þeirra muna sem fund-
ist hafa.
Júlíus sat ekki í skipulagsráði árið
2005 en árið eftir settist hann í borg-
arstjórn. „Ég veit að skipulagsráð tók
ekki vel í þessar fyrstu hugmyndir,“
segir hann en svipað var upp á ten-
ingnum 2007. Þá beindi skipulagsráð
því til arkitektanna að láta útlitið taka
mið af næsta umhverfi.
„Gömlu húsin í kring, eins og Iðn-
aðarmannahúsið, Iðnó og Miðbæj-
arskólinn, eru miðað við bygging-
artímann óvenju stór hús en engu að
síður vel gerð og í raun fínleg, eins og
gluggaumgjarðir og annað. Þar er
ákveðinn útgangspunktur sem maður
hefði viljað sjá í núverandi tillögu.
Það er mikilvægt að vel takist til og
að ekki verði unnið í einhverjum asa
undir mikilli pressu. Ég skil vel að
lóðarhafi vilji byggja sem fyrst og
skipulagsráð þarf að hafa það í huga.
Aðalatriðið er þó að vanda sig og við
megum ekki gleyma okkur í ein-
hverjum flýti,“ segir Júlíus Vífill, sem
telur að vinna þurfi vinningstillöguna
í nýjustu samkeppninni mun betur.
„Þó að margt sé þarna vel útfært
þá þurfa menn að setjast aftur að
teikniborðinu og koma með nýjar
hugmyndir áður en ég get fallist á
þær. Samkeppnin útaf fyrir sig er
ekki bindandi fyrir umhverfis- og
skipulagsráð,“ segir Júlíus Vífill.
Telur þá fyrstu vera besta
Halldór Guðmundsson hjá THG
Arkitektum segist sjálfur vera hrifn-
astur af fyrstu tillögunni, útfrá sjón-
arhóli arkitekts. Teiknistofan hafi
komið að gerð deiliskipulagstillögu
fyrir Þyrpingu og samstarfsaðila.
Sömuleiðis hafi honum þótt tillagan
frá 2007 verið vel heppnuð.
„Borgarskipulaginu fannst þessar
tillögur hins vegar of stórar og ekki
passa inn í miðbæinn. Við vorum beð-
in að gjörbreyta útlitinu og hafa það
meira í takt við eldri byggingar í
kring,“ segir Halldór, og bendir á að
tillaga þeirra frá 2008 hafi falið í sér
mun stærra hús en núverandi áform
séu um við Lækjargötu. Þá hafi verið
gert ráð fyrir að lóðirnar við Vonar-
stræti 4 og Lækjargötu 12 yrðu sam-
einaðar, vegna áætlana um að fyrr-
nefnda lóðin yrði keypt af borginni.
Halldór og hans stofa tók ekki þátt
í hugmyndasamkeppni Íslandshótela
og Minjaverndar. Hann segist ekki
vilja tjá sig mikið um vinningstillög-
una, hún sé þó ekki mikið í takt við
eldri húsin í kring en með því sé hann
ekkert að segja að tillögur THG Arki-
tekta hafi verið eitthvað betri. Þær
beri keim af þenslunni sem þá var
uppi.
„Á árunum fyrir hrun var allt svo
stórt og mikið og umhverfið allt ann-
að en það er í dag.“
Hóteláform taka breytingum
Borgaryfirvöld hafa fjallað um mismunandi tillögur að hóteli við Lækjargötu Borgarfulltrúi ekki
hrifinn af nýjustu vinningstillögunni og vill breytingar Meira tillit verði tekið til eldri húsa í grennd
2008 Horft suður eftir Lækjargötu, hótelið líkara umhverfinu.
Tölvuteikning/Gláma-Kím
2015 Vinningstillaga Glámu-Kím í hugmyndasamkeppni Íslandshótela og
Minjaverndar um byggingu hótels á horni Lækjargötu og Vonarstrætis.
Ekki er um endanlegt útlit að ræða og umfjöllun er eftir í borgarkerfinu.
2007 Bakgarður hótels við Lækjargötu, eins og til stóð þá.2007 Ný tillaga komin fram og hótelið meira líkt íbúðum.2005 Fyrsta tillagan sem THG Arkitektar voru látnir vinna.
2008 Svona hefði götumyndin við Lækjargötu geta orðið.2008 Útlit sömu hóteltillögu, séð eftir Vonarstrætinu.
Tölvuteikningar/THG Arkitektar
Júlíus Vífill
Ingvarsson
Halldór
Guðmundsson
ÁLÞAKRENNUR
Viðhaldslitlar
Þegar hús eru klædd með „viðhaldsfrírri“ klæðningu
er nauðsynlegt að nota „viðhaldsfríar“ þakrennur
Rennurnar frá Grövík Verk í Noregi eru gerðar úr 0.9 mm áli og tærast ekki,
ryðga né brotna. Fyrsta rennan var framleidd árið 1956 og er enn í notkun.
Litir til á lager: Svartar, hvítar, gráar, rauðbrúnar og ólitaðar.
Seljum einnig varmaskiptasamstæður, loftræstistokka og tengistykki.
Smiðjuvegi 4C
Box 281 202 Kópavogur
Sími 587 2202
Fax 587 2203
hagblikk@hagblikk.is
www.hagblikk.is
HAGBLIKK ehf.
28 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. JÚLÍ 2015