Morgunblaðið - 30.07.2015, Síða 36
36 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. JÚLÍ 2015
www.veislulist.is
Pinnaborð eru afgreidd í öskjum þar sem kaupand
i sér sjálfur um að raða þeim á föt eða tilbúnir á á b
orð á einnota
veislufötum. Sé veislan 150manna eðameira eru a
llar veitingar afhentar á einnota veislufötum.
Hólshraun 3 · 220Hafnarjörður · Símar: 555-1810, 565-1810
Fax: 565-2367 · Netfang: veislulist@veislulist.is · www.veislulist.isSkútan
PINNAMATUR
FYRIRÖLLTÆKIFÆRI
Þú getur lesið allt um
pinnamat og aðra rétti
á heimasíðu okkar
PINNAMATUR
Við val á veitingum þarf að hafa í huga á hvaða tím
a
dagsmóttakan er og hversu lengi hún á að standa.
Í “standandi” veislum er vinsælt að bjóða upp á t.d
fimm til sjö rétta pinnaborð.
Skoðið verðin á heimasíðu okkar
SVIÐSLJÓS
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Nú þegar mannkynið hefur, með
hinum merku ljósmyndum af Plútó
sem geimfarið New Horizons tók
fyrr í mánuðinum, náð að heimsækja
allar reikistjörnur sólkerfisins og
eina dvergplánetu að auki, er ekki að
undra að verið sé að velta fyrir sér
hvaða aðrir möguleikar séu til könn-
unar sólkerfisins.
Í þeim vangaveltum hefur rauða
plánetan Mars oftast verið nefnd og
jafnvel talað um það að mannkynið
komi sér upp nýlendu þar. Holl-
enska fyrirtækið Mars One hefur til
að mynda vakið athygli að undan-
förnu, en það hyggst senda fjóra
geimfara til Mars árið 2027, sem
hefðu það verkefni að búa í haginn
fyrir fleiri „nýlendufara,“ en ljóst
yrði að þeir sem færu ættu aldrei
afturkvæmt til jarðar. Í því skyni
réðst fyrirtækið í viðamikla kynn-
ingarherferð, þar sem auglýst var
eftir hugsanlegum kandídötum.
Miklar efasemdir eru uppi um það
hvort Mars One-leiðangurinn sé
nokkuð annað en risavaxin blekking.
Úrtökuferlið, þar sem væntanlegir
landnemar eru sigtaðir út, þykir til
að mynda ekki upp á marga fiska og
allar áætlanir óljósar.
Þeir eru hins vegar ekki einir um
hituna, en bandaríska geimvís-
indastofnunin NASA hyggst senda
mannað geimfar til Mars einhvern
tímann á fjórða áratug þessarar ald-
ar. Því geimfari er hins vegar ætlað
að snúa aftur til jarðar með alla inn-
anborðs. Kínverska geimferðastofn-
unin hefur svipuð áform á prjón-
unum, en hyggst ná þeim áfanga
fyrr en NASA.
Hvernig komumst við?
Það þarf ekki að efast um það að
verkefnið er risavaxið. Á milli jarð-
arinnar og Mars eru að jafnaði um
225 milljónir kílómetra, en þar sem
reikistjörnurnar eru báðar á hreyf-
ingu getur fjarlægðin styst orðið um
56 milljónir kílómetra. Það er um
það bil 145-föld sú vegalengd sem að
jafnaði er á milli tungls og jarðar, og
því ljóst að hér verður ekki um neinn
sunnudagsbíltúr að ræða.
Raunar myndi slíkt ferðalag með
þeim geimförum sem mannkynið
hefur nú yfir að ráða taka um sjö til
níu mánuði, en það er nokkru lengra
en sá tími sem geimfarar dvelja í
senn í alþjóðlegu geimstöðinni. Þau
sem færu í slíka ferð, sér í lagi ef
ætlunin væri síðan að verða um
kyrrt á Mars, myndu því glíma við
erfiðustu aðstæður sem nokkur
manneskja hefði séð.
Þá er ekki tekinn með í reikning-
inn kostnaðurinn við að senda menn
út í geim, sem meðal annars ræðst af
því að mjög fáar af eldflaugunum
sem nú eru notaðar eru endurnýj-
anlegar. Einkafyrirtækið SpaceX,
sem auðkýfingurinn Elon Musk á,
hefur hins vegar sett stefnuna á þró-
un öflugri eldflauga sem hægt er að
endurnýta, svo þær geti flutt vörur
og fólk fram og til baka frá Mars.
Sjálfur hefur Musk sett stefnuna á
að koma mönnuðu fari til Mars árið
2027, en hann segist áætla „varlega“
að til þess að slík nýlenda gæti lifað
af þyrfti 100.000 ferðir til og frá
jörðu og obbinn af þeim yrði til þess
að flytja þær vörur sem þyrfti til
þess að halda uppi milljón manns,
sem er það lágmark sem Musk sér
fyrir sér að muni þurfa til þess að
nýlendan geti borið sig.
Hvernig á að lifa af?
Í ljósi hins langa ferðatíma verður
sjálfbærni nýlendunnar eitt af for-
gangsatriðunum sem þarf að huga
að þegar landnemarnir koma til
Mars. Manneskjur og matjurtir
munu þurfa endurnýjanlegar vatns-
birgðir og súrefni sem hvorugt er til
staðar á Mars í dag.
Líklega verður helsta áskorunin
sú að stýra væntanlegu andrúmslofti
innan híbýlanna á Mars þannig að líf
geti þrifist þar, en verkfræðingar við
MIT-háskóla áætluðu að miðað við
þær forsendur sem Mars One-
leiðangurinn hefði gefið sér myndi
fyrsti landneminn kafna um það bil
tveimur mánuðum eftir að geimfarið
lenti, þar sem plöntumagnið sem
þyrfti til fæðuframleiðslu myndi
framleiða of mikið súrefni og gera
andrúmsloftið eitrað.
Það virðast því við fyrstu sýn vera
nokkrar hindranir í vegi fyrir því að
mannkynið geti sest að á Mars, hvað
þá að það gerist á næstu tíu til fimm-
tán árum, líkt og bjartsýnustu menn
vona. Nóbelsverðlaunahafinn og eðl-
isfræðingurinn Gerard ’t Hooft, sem
hefur veitt Mars One-verkefninu
ráðgjöf, segir til að mynda raunhæf-
ara að áætla að hundrað ár séu í það
að mannkynið leggi Mars undir sig.
Engu að síður telur Hooft enga
ástæðu til þess að letja fólk til far-
arinnar, eða til að draga kjarkinn úr
aðstandendum Mars One. „Leyfum
þeim að vera bjartsýnir og sjáum til
hversu langt það fleytir þeim
áfram.“
Verður lífsvon á Mars?
Mannað geimflug til rauðu plánetunnar áætlað á næstu áratugum Metnaðarfullir draumar um
mannvist á Mars Ýmsar hindranir sem þarf að ryðja úr vegi áður en það verður mögulegt
Ljósmynd/NASA
Öflug eldflaug Bandaríska geimferðastofnunin prófaði í apríl nýja gerð af
eldflaugum, SLS, sem er m.a. ætlað að flytja geimfara til Mars árið 2035.
Ljósmynd/Mars One
Svikamylla eða möguleiki? Á þessari tölvugerðu mynd frá Mars One-verkefninu sést hvernig aðstandendur sjá
fyrir sér híbýli landnemanna sem ætlað er að lenda á Mars árið 2027. Miklar efasemdir eru þó um verkefnið.
Mars er ein af þeim reikistjörnum
sem sýnilegar eru á næturhimn-
inum og hefur því verið þekkt frá
því í fornöld. Reikistjarnan er um
helmingi minni að ummáli en jörð-
in, en vegna þess að engin höf eru
á Mars er yfirborð hennar svipað
að flatarmáli og allt þurrlendi á
jörðu.
Líkt og jörðin hefur Mars tvo
heimskautspóla, þar sem íshella
liggur yfir. Hefur því kviknað sú
von meðal geimvísindamanna að úr
þeim mætti vinna drykkjarhæft
vatn fyrir þá geimfara sem myndu
flytja til rauðu plánetunnar.
Þá eru einnig bundnar vonir við
það að landnemarnir gætu unnið
hráefni úr jarðveginum á Mars, en
rauði litur reikistjörnunnar kemur
til vegna járnoxíðs í jarðveginum.
Mars glataði segulsviði sínu fyrir
um 4 milljörðum ára, sem þýddi það
að andrúmsloft stjörnunnar var
óvarið fyrir sólvindum. Það er því
alls óhæft til þess að viðhalda lífi,
og samanstendur nánast nær ein-
göngu af koldíoxíði, eða 96%.
Ljósmynd/NASA
Rauða plánetan Yfirborð Mars er rauðleitt vegna járnoxíðs í jarðvegi.
Mannkynið hefur sent ýmis könnunarför til plánetunnar á síðustu árum.
Vatn og járn til
staðar á Mars
Andrúmsloftið mjög ólífvænt