Morgunblaðið - 30.07.2015, Page 40

Morgunblaðið - 30.07.2015, Page 40
40 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. JÚLÍ 2015 „Yfir sumartímann er jöfn og stöð- ug umferð yfir Kjöl og lítill munur á fjölda þeirra bíla sem koma úr suðri eða fara héðan að norðan. Eða þannig blasir þetta við mér, séð héðan úr eldhúsglugganum,“ segir Birgitta H. Halldórsdóttir á Syðri-Löngumýri í Blöndudal. Best er Birgitta þekkt fyrir skáldsögur sínar, þó ritstörfin séu aðeins aukageta frá daglegum störfum þeirra Sigurðar Inga Guð- mundssonar, eiginmanns hennar, sem reka blandað bú á Löngumýri. Eru til dæmis með allmikið af sauðfé sem rekið er í fjallhaga sem ná inn að Hveravöllum. „Ég reyni að komast upp á heið- ar mjög reglulega. Hveravellir eru staður sem gefur mér ótrúlega mikla orku, þetta er eins konar hugleiðsla. Margir eiga í vitund sinni staði sem búa yfir svona krafti,“ segir Birgitta sem hefur fylgst af áhuga með umræðum um gerð heilsársvegar yfir Kjöl en slík- ar hugmyndir koma upp reglulega. „Ég vil vissulega ekki útiloka neitt í þessu sambandi. Hins vegar þurfum við að skoða hlutina í stóru samhengi, því mikil auðlegð felst í því að halda náttúrunni ósnortinni svo sem því að ekki sé lögð hraðbraut yfir hálendið.“ Ótrúleg er orkan ÓSNORTIÐ HÁLENDI AUÐLEGÐ, SEGIR BIRGITTA Á LÖNGUMÝRI Morgunblaðið/Sigurður Bogi Í Blöndudal Guðbjörg Pálína Sigurðardóttir og móðir hennar, Birgitta H. Halldórs- dóttir. Lengst til hægri er ung frænka þeirra mæðgna, Birta Júlía Þorbjörnsdóttir. Keilan á Bláfellshálsi er eitt margra kennileita á leiðinni yfir Kjöl sem til eru sögur um. Í Kjal- hrauni er hinn frægi Beinhóll, þar sem Reynisstaðabræður úr Skaga- firði með fylgdarmönnum sínum urðu úti árið 1780 þegar þeir ráku norður yfir heiðar sauðfé sem þeir höfðu keypt syðra. Hvað raunveru- lega gerðist við Beinhól fyrir 225 árum og hver var, eins og Jón Helgason orti „beisklegur aldurtili“ manna þar hefur alltaf verið óráðin gáta og leysist varla úr þessu. Atburður þessi varð til þess að ferðir milli landsfjórðunga yfir Kjöl lögðust að mestu af. Margt í málinu þótti tæplega af þessum heimi, rétt eins og margir telja að reimt sé í sæluhúsi Ferðafélag Íslands við Hvítárnes. Slíkt mun þó fjarstæða, en sagan er þó enda góð. Kvika á Hveravöllum Úr Hvítárnesi blasir við stálið þar sem Langjökull fellur fram í Hagavatn. Innar sést Hofsjökull og hvarvetna blasa Kerlingafjöll við, fjallaklasinn fallegi með öllum sín- um tindum, hnjúkum, hvilftum, döl- um og fönnum. Á fjöllunum á síð- ustu árum hefur verið byggð upp góð aðstaða fyrir ferðafólk, enda margt að sjá þar. Norðan vatnaskila og í Húna- vatnssýslu eru Hveravellir, sem bera nafn með rentu. Áberandi þar er Öskurhólhver vegna druna og blísturshljóða. Sá er enn virkur sem hvellandi bjalla og raunar er hvera- svæðið allt stöðug kvika og breytist reglulega. Þá eru á Hveravöllum enn minjar um Fjalla-Eyvind og Höllu sem þar höfðust við í útlegð sinni seint á 18. öld. Annars hefur mörgu verið breytt og annað bætt á Hveravöllum síðustu árin, stígar verið markaðir, gistiaðstaða bætt og nýlega var opnaður veitinga- staður. Ekki fljótfarið Norðan Hveravalla er leiðin greið. Að stórum hluta er ekið á sandflákum og þar er í vegkanti skilti sem vísar á Stórasand, sem er norðan Langjökuls. Á sínum tíma var stundum rætt að stytta mætti leiðina milli landshluta með því að leggja þar veg, það er úr upp- sveitum Borgarfjarðar í Skaga- fjarðardali. Hugmyndin um Stórasandsveg náði aldrei flugi, en meira hefur verið rætt um heilsársveg yfir Kjöl. Þar er ágætur áfangi, því stór hluti leiðarinnar milli Hveravalla og nið- ur í Blöndudal er uppbyggður veg- ur sem Landsvirkjun lét útbúa vegna virkjunar Blöndu fyrir um þrjátíu árum. Því er leiðin greið niður í Blöndudal, en sleppir Kjal- vegi sem stysta en þó alls ekki fljótfarnasta leiðin milli byggða sunnanlands og nyrðra.  Á Geirsöldu á Kili er hringsjá og minnisvarði um Geir Zoëga sem var frægur ferðagarpur.  Stórisandur sem er norðan Lang- jökuls gæti komist í alfaraleið. Sprungin tunga Langjökuls sem fellur fram í Hvítárvatn, sem myndar vatnsmestu á landsins. Morgunblaðið/Sigurður Bogi  Norðurland vestra er kjörlendi hestamennskunnar og í Blöndudalnum tekur stóðið sprettinn. Svona voru trippin rekin, segir alþekkt máltækið. Kynjamyndir í Hveradölum í Kerlingafjöllum vekja athygli.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.