Morgunblaðið - 30.07.2015, Blaðsíða 48
48 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. JÚLÍ 2015
Laugavegi 7, 101 Reykjavík - Sími: 551-3033
Flottir í fötum
ÚTSALAN
í fullum gangi
40-50% afsláttur
ÚR BÆJARLÍFINU
Skapti Hallgrímsson
Eyjafjörður
Sveitarfélagið Fjallabyggð hefur
selt gamla gagnfræðaskólahúsið við
Hlíðarveg 18-20 á Siglufirði. Því
verður breytt í íbúðarhús.
Það er félag í eigu Þrastar Þór-
hallssonar, fasteignasala og stór-
meistara í skák, sem keypti húsið.
Þröstur á ættir að rekja til Siglu-
fjarðar; faðir hans, Þórhallur
Sveinsson byggingameistari, er
fæddur þar og uppalinn.
Hönnun vegna breytinga á hús-
inu stendur yfir og er gert ráð fyrir
að vinna við þær hefjist síðari hluta
næsta mánaðar.
Búast má við miklum mannfjölda
við Eyjafjörð um helgina; Unglinga-
landsmót UMFÍ fer fram á Akureyri
þar sem einnig er hin árlega hátíð
Ein með öllu um verslunarmanna-
helgi að vanda og á Siglufirði er Síld-
arævintýri á dagskrá.
Allt stefnir í fjölmennasta Ung-
lingalandsmót frá upphafi, að sögn
starfsmanns Ungmennafélags Ís-
lands. Þátttökutilkynningar eru hátt
í þrjú þúsund og gert ráð fyrir að 10
til 12 þúsund komi Akureyrar vegna
mótsins.
Á Unglingalandsmótinu, þar
sem þátttakendur eru 11 til 18 ára,
er keppt í fjölmörgum hefðbundnum
íþróttum en einnig í tölvuleikjum og
stafsetningu og þá fer fram upp-
lestrarkeppni. Þetta er 18. Ung-
lingalandsmót UMFÍ.
Aðstandendur Einnar með öllu
fullyrða að dagskráin hafi aldrei
verið glæsilegri. Fimm stórir
útitónleikar verða um helgina og
fjöldi annarra viðburða í bænum.
Öll dagskráin er á einmedollu.is á
netinu.
Eitt og annað hefur fest sig í
sessi á Einni með öllu. Nefna má
tónleikana „fimmtudagsfíling“ í
göngugötunni sem verður, eins og
nafnið bendir til, í kvöld, kirkju-
tröppuhlaup, samkomuna Mömmur
og muffins í Lystigarðinum og Dyn-
heimaböll þar sem kynslóðirnar,
sem skemmtu sér á þeim góða ung-
lingastað á árum áður, hafa síðustu
ár slett úr klaufunum.
Hljómsveitin Dúndurfréttir
verður með tónleika á Græna hatt-
inum á Akureyri í kvöld og annað
kvöld, Ljótu hálfvitvarnir verða þar
á laugardaginn og hljómsveitin
Maus treður upp á sunnudags-
kvöldið. Páll Óskar verður með ball í
Sjallanum aðfaranótt sunnudags og
sólarhring síðar verða Amabadama
og Úlfur Úlfur á sama stað.
Söguganga verður um verk-
smiðjusvæðið á Gleráreyrum á laug-
ardaginn og á sunnudaginn er árleg
samkoma við Iðnaðarsafnið þar sem
boðið verður upp á eina með öllu,
m.a. rauðkáli og „kók í bauk,“ eins
og Akureyringar segja víst...
Einni með öllu lýkur svo með svo-
nefndum Sparitónleikum á flötinni
fyrir neðan Samkomuhúsið á sunnu-
dagskvöldið, frá klukkan níu til mið-
nættis, þar sem rúsínan í pylsuend-
anum er flugeldasýning sem
björgunarsveitin Súlur sér um. Síð-
ustu ár er talið að 15 til 20 þúsund
manns hafi verið á lokatónleikunum.
Fólk er hvatt til þess, í tilefni
Einnar með öllu, að skreyta bæinn
rauðan „í samræmi við hjartað sem
hefur sett svip sinn á bæinn,“ eins og
það er orðað í tilkynningu. „Því eru
rauðar seríur, rautt skraut eða eitt-
hvað rautt og fallegt það sem á við á
Akureyri um verslunarmannahelg-
ina en veitt verða verðlaun fyrir best
skreyttu götuna.“
Athyglisverð myndlistarsýning,
Staðfesting, hefst í Kompunni, í Al-
þýðuhúsinu á Siglufirði, á laugar-
daginn. Þar sýnir Svava Þórdís
Baldvinsdóttir Júlíusson og er það
fyrsta einkasýning hennar á Íslandi.
Svava fæddist á Siglufirði 1966
en flutti 10 ára til Kanada með fjöl-
skyldu sinni. Hún er nú búsett í Ont-
ario-fylki þar sem hún er starfandi
listamaður. Svava byrjaði listnám
sitt 1993 og lauk Bachelor of Fine
Arts í NSCAD-háskóla 1997 og lauk
svo MFA í York-háskóla í Toronto
2007. Kompan er opin daglega kl. 14
til 17 þegar skilti er fyrir utan húsið.
Fuglahræðum hefur fjölgað
verulega í Eyjafjarðarsveit upp á
síðkastið. Ástæðan: árlega hand-
verkshátíð sem verður um aðra
helgi. Í fyrra skreyttu íbúar sveitina
með óvenjulegum póstkössum, nú
voru þeir hvattir til að setja upp
fuglahræður og margir hafa svarað
kallinu.
Unglingafjöld og fullorðnir synir
Hræðsla Ein fuglahræðanna sem
nú má sjá í Eyjafjarðarsveit.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Tilhlökkun Hluti þeirra krakka úr Ungmannafélagi Akureyrar (UFA) sem tekur þátt í Unglingalandsmóti UMFÍ.
Ál Verk eftir Svövu Þórdísi sem
sýnir í Kompunni á Siglufirði.
Svissneskur ljósmyndari, Walter
Huber, sýnir í Saga Fotografica á
Siglufirði á laugardag og sunnudag.
Huber vann fyrstu verðlaun í
samkeppni svissneskra náttúru-
ljósmyndara á þessu ári og var jafn-
framt valinn ljósmyndari ársins þar
á bæ. Verðlaunamyndina, sem sjá
má hér að ofan, tók hann úr þyrlu
austan við Mýrdalsjökul.
Walter og Ruth eiginkona hans,
sem eru tæplega sjötug, eru sann-
kallaðir Íslandsvinir; hafa sótt land-
ið heim ellefu sinnum frá aldamót-
um, dvalið hér samtals í 19 mánuði á
þeim tíma og Walter verið iðinn með
ljósmyndavélina. Myndirnar sem
Huber sýnir á Siglufirði eru allar
teknar á Íslandi.
Saga Fotografica er á Vetrar-
braut 17 og þar verður opið frá kl. 13
til 16 um verslunarmannahelgina.
Myndir Hubers verða sýndar á skjá
og eru tvær sýningar hvorn dag;
fyrst klukkan 13-14 og aftur 15-16.
skapti@mbl.is
Ljósmynd/Walter Huber
Ísland Verðlaunamynd svissneska ljósmyndarans sem sýnir á Siglufirði.
Svissneskur ljósmynd-
ari sýnir á Siglufirði