Morgunblaðið - 30.07.2015, Page 50
50 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. JÚLÍ 2015
BAKSVIÐ
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Landsnet hefur lagt fram drög að
kerfisáætlun fyrir tímabilið 2015-
2024. Þar er kynnt áætluð þróun
notkunar og framleiðslu raforku
tengdri flutningskerfinu, auk þeirr-
ar uppbyggingar sem fyrirhuguð er
á meginflutningskerfinu. Telur
Landsnet að tenging yfir hálendið,
með öflugum flutningslínum til norð-
urs og austurs, sé besti valkosturinn
til að byggja upp meginflutnings-
kerfið til framtíðar, með stöðugleika
að leiðarljósi.
Einnig hefur Landsnet gert til-
lögu að framkvæmdaáætlun til
næstu þriggja ára. Gangi þær áætl-
anir eftir þarf fyrirtækið að ráðast í
stórar fjárfestingar á næstu árum.
Landsnet hefur gefið út að árleg
fjárfestingarþörf sé 7-10 milljarðar
króna, eða 70-100 milljarðar á næstu
tíu árum. Framkvæmdaáætlunin er í
21 lið, þar af falla 11 undir lög um
mat á umhverfisáhrifum.
Kerfisáætlun er lögð fram í sam-
ræmi við raforkulög en einnig fylgir
umhverfisskýrsla, samkvæmt lögum
um umhverfismat áætlana. Efnið er
aðgengilegt á heimasíðu Landsnets
en hægt er að senda inn at-
hugasemdir til og með 1. september
nk. Haldinn verður opinn kynning-
arfundur í næsta mánuði um kerfis-
áætlunina og umhverfisskýrsluna.
Engin aukning eftir 2016?
Landsneti ber að leggja þessa
áætlun fram árlega og fá samþykki
Orkustofnunar á henni. Þar þarf að
koma fram áætlun um uppbyggingu
flutningskerfisins til næstu tíu ára
auk framkvæmdaáætlunar til næstu
þriggja ára. Markar kerfisáætlunin
stefnu varðandi leyfisveitingar til
framkvæmda, sem tilgreindar eru í
lögum um mat á umhverfisáhrifum.
Í kerfisáætluninni er m.a. grein-
ing á líkum á aflskorti til ársins 2024.
Þar er reiknuð út möguleg viðbótar-
aukning álags á hverju ári. Miðað er
við óbreytt flutningskerfi og aukn-
ingu samkvæmt raforkuspá. Er
orkunotkun stórnotenda ekki tekin
með í þennan reikning, þeirra sem
nota meira en 10MW á ári.
Á þessu ári er gert ráð fyrir
50MW viðbótaraukningu umfram
áætlaða stóriðju og um 25MW á
næsta ári. Eftir það telur Landsnet
álagsaukningu ekki mögulega nema
til komi nýjar virkjanir. Þá gæti far-
ið að bera á raforkuskorti í landinu. Í
lok tímabilsins, árið 2024, þurfa að
hafa komið til 140MW af nýju virkj-
uðu afli til að anna álagsaukningu
miðað við raforkuspá. Miðar Lands-
net við að líkur á aflskorti fari ekki
yfir viðmiðunarmörk uppá 1 klst. af
hverjum 10.000. Sem fyrr segir er
ekki verið að miða við orkunotkun
stóriðjunnar, heldur eingöngu al-
mennings og lítilla og meðalstórra
fyrirtækja. Í slíkri raforkuspá er
m.a. horft til fjölgunar íbúa og ferða-
manna næstu tíu árin.
Besti valkostur um hálendið
Við áætlun á þróun flutningskerf-
isins leggur Landsnet fram tvo meg-
invalkosti, annars vegar með teng-
ingu yfir hálendið og hins vegar
aðgerðir við núverandi byggðalínu.
Undir þessum aðalkostum, A fyrir
hálendisleið og B fyrir byggðaleið,
eru lagðar til níu mismunandi út-
færslur með blöndu af nýbyggingum
og spennuhækkun úr 132 kV í 220
kV. Nýbyggingar geta svo ann-
aðhvort falið í sér loftlínu eða jarð-
streng, segir í skýrslu Landsnets, á
þeim svæðum þar sem aðstæður kalli
á það samkvæmt stefnu stjórnvalda.
Landsnet metur þessa valkosti og
ber þá saman, einkum m.t.t. stöð-
ugleika og styrks flutningskerfisins,
aukins flutnings, sveigjanleika orku-
afhendingar, rekstraröryggis, nánd-
ar við virkjanakosti, flutningstaps og
framkvæmanleika.
Byggt á þessum matsþáttum og
mælikvörðum, og með hliðsjón af
áhrifum á gjaldskrá og umhverfi, þá
telur Landsnet valkost A1 bestan
(sjá meðf. kort). Valkostur B1 er
sagður kerfislega betri kostur en
A1, en ekki eins álitlegur m.t.t. til
umhverfisþátta og mikils fram-
kvæmdakostnaðar. Samkvæmt upp-
lýsingum frá fyrirtækinu er áætl-
aður kostnaður við A1-leiðina 40-50
milljarðar króna og B1 gæti kostað
60-70 milljarða. Hálendisleiðin er
mun styttri, eða 514 kílómetrar, á
meðan byggðaleið 1 er 861 kílómetri.
Endanlegur kostnaður fer eftir
ýmsum þáttum, m.a. hlutfalli jarð-
strengja, landslags og veðurálags.
Landsnet telur að tenging milli
norðurs og suðurs í A-kostum sé sá
áfangi sem bjóði upp á fljótförnustu
úrbæturnar á kerfislægum eig-
inleikum og þar skari valkostur A1
fram úr. Þá kemur fram í umhverf-
isskýrslu Landsnets að í útfærslum
A-valkosta er gert ráð fyrir að 50 km
af tengingu yfir hálendið yrði lögð í
jarðstreng. Með jarðstrengsút-
færslu yrði dregið úr sjónrænum
umhverfisáhrifum en slíkar út-
færslur hefðu einnig áhrif til auk-
innar hækkunar á gjaldskrá.
Landsnet segir valkost A1 lagðan
fram með heildarstöðugleika að leið-
arljósi. Hann geri ráð fyrir að stóru
virkjanirnar, sem tengdar eru
byggðalínunni, séu tengdar saman
með sterkum tengingum ásamt því
að þær séu tengdar við stærsta
framleiðslukjarnann á Suðurlandi
með línu yfir hálendið.
„Þessi kostur skilar mikilli aukn-
ingu í stöðugleika ásamt töluverðri
getu til að flytja afl milli landshluta
með stuttum línum, samanborið við
byggðalínuhring. Einnig felur þetta
í sér að ekki er verið að flytja aflið í
gegnum álagsþunga staði sem
myndi mögulega fela í sér aukna
þörf fyrir stýrt launafl til spennu-
stýringar,“ segir m.a. í skýrslu
Landsnets.
Ýmsar framkvæmdir
Sem fyrr segir ráðgerir Landsnet
talsverðar framkvæmdir á næstu
þremur árum. Eru þær listaðar upp
hér að ofan. Af þeim fela tvær í sér
styrkingu meginflutningskerfisins
utan suðvesturhornsins í 10 ára
áætlun, þ.e. Kröflulína 3 og Blöndu-
lína 3. Miklar framkvæmdir eru fyr-
irhugaðar á Norðausturlandi, með
tengingu kísilvers á Bakka ásamt
tengingu Þeistareykjavirkjunar og
breytingum í Kröflu. Landsnet segir
áætlaða Suðurnesjalínu 2 stórbæta
afhendingaröryggi á Suðurnesjum
og svara aukinni flutningsþörf.
Þessu tengt verði Sandskeiðslína 1
byggð ásamt tengivirki á Sandskeiði
og þar skapist svigrúm til niðurrifs á
Hamraneslínum 1 og 2. Þá bendir
Landsnet á að auk uppgefinna fram-
kvæmda þá verði ráðist í styrkingar
og endurnýjun á flutningskerfinu
víðs vegar um landið.
Veruleg umhverfisáhrif
Helstu niðurstöður umhverf-
ismatsskýrslu Landsnets eru þær að
allir valkostir í flutningskerfinu
muni valda neikvæðum og veruleg-
um áhrifum á land, landslag, lífríki
og ásýnd. Séu valkostirnir bornir
saman, m.t.t. umhverfisáhrifa, þá
hafi leið A2 minnst neikvæð áhrif og
þar á eftir komi leiðir A1 og B2. Leið
B1 er talin hafa bæði neikvæðustu
umhverfisáhrifin en jafnframt veru-
lega jákvæð áhrif á samfélag.
Þá er það niðurstaða umhverf-
ismatsins að jarðstrengur á Sprengi-
sandi muni draga verulega úr um-
fangi neikvæðra áhrifa á landslag og
ásýnd. Jafnframt muni tillögur að
mótvægisaðgerðum draga úr eða
koma í veg fyrir neikvæð áhrif á um-
hverfið, t.d. á landslag og ásýnd.
Hálendisleið besti kosturinn
Landsnet leggur fram áætlun til 2024 um flutningskerfi raforku Ráðast þarf í framkvæmdir upp
á 70-100 milljarða króna næstu tíu árin Líkur á raforkuskorti eftir tvö ár, verði ekki meira virkjað
Framkvæmdaáætlun Landsnets 2015-2018
Heimild: Kerfisáætlun Landsnets 2015-2024
Í framkvæmd frá fyrra ári
Sigalda - teinatengi
Sigöldulína 3 - aukning flutningsgetu
Neskaupsstaðarlína 1 - ídráttarrör í Norðfjarðargöng
Framkvæmdir á þessu ári
Selfosslína 3 að Þorlákshöfn
Hellulína 2 að Hvolsvelli
Suðurnesjalína 2
Grundarfjörður - nýtt tengivirki
Hrauneyjafosslína 1 - styrking
Spennuhækkun til Vestmannaeyja
Tenging kísilvers í Helguvík
Framkvæmdir 2016
Nýr spennir í Mjólká
Afhendingarstaður á Bakka
Tenging Þeistareykja
Tenging Húsavíkur frá Laxá
Kröflulína 3 að Fljótsdalsstöð
Hvolsvöllur - nýtt tengivirki
Grundarfjarðarlína 2 að Ólafsvík
Ólafsvík - tengivirki
Framkvæmdir 2017
Sandskeið - tengivirki
Sandskeiðslína 1 í Hamranes
Fitjalína 3 í Helguvík
Framkvæmdir 2018
Stækkun Búrfellsvirkjunar
Blöndulína 3 til Akureyrar
Sauðárkrókslína 1 í Varmahlíð - ný tenging
Líkur á aflskorti í raforkukerfinu
Heimild: Kerfisáætlun Landsnets 2015-2024
Árleg viðbótaraukning umfram áætlaða stóriðju
100
50
0
-50
-100
-150
2015 2016 2017 2018 2019 2020 2021 2022 2023 2024
MW
Helstu valkostir Landsnets til 2024
Heimild: Kerfisáætlun Landsnets 2015-2024
A-1
A-2
H
ál
en
di
sl
ei
ð
B
yg
gð
al
ei
ð
B-1
B-2
Nýjar 220 kV línur Núverandi 132 kV línur uppfærðar í 220 kV
Í drögum að kerfisáætlun Lands-
nets er þemakafli um sæstreng á
milli Íslands og Evrópu. Þar segir
að skiptar skoðanir séu um slíkan
streng og því skipti máli að allar
ákvarðanir verði byggðar á traust-
um grunni. Nákvæm útfærsla á
tengingu strengsins við flutnings-
kerfið hefur ekki verið skoðuð, né
tenging nýrra virkjana sem kunna
að verða byggðar vegna strengs-
ins. Landsnet telur að miðað við
fullt afhendingaröryggi sæ-
strengsins þurfi tvær tengingar á
afhendingarstað. „Samkvæmt
þeirri grófu
mynd sem hef-
ur verið birt, er
styrkinga þörf í
íslenska flutn-
ingskerfinu ef
það á að geta
sinnt flutningi
að landtöku-
stað sæstrengs,“ segir m.a. í
skýrslu Landsnets. Bent er á að
staðsetning, stærð og eðli nýrra
virkjana (þ.e. vindorka, vatnsorka
eða jarðvarmi) geti haft veruleg
áhrif á styrkingarþörfina.
Styrkinga þörf á flutningskerfi
LANDSNET FJALLAR UM SÆSTRENG TIL EVRÓPU
Fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur ligg-
ur óafgreidd stefna Landverndar
gegn Landsneti þar sem krafist er
ógildingar á síðustu kerfisáætlun,
sem lögð var fram árið 2014 og
gildir til 2023. Stefnan var lögð
fram í byrjun þessa árs en að sögn
Guðmundar Inga Guðbrandssonar,
framkvæmdastjóra Landverndar,
verður málið tekið fyrir í héraðs-
dómi í haust.
Landvernd telur að Landsnet hafi
brotið lög með því að taka ekki af-
stöðu til nema brots af innsendum
athugasemdum við gerð áætlunar-
innar og umhverfismats hennar, líkt
og lög kveði á um. Þá telur Land-
vernd að áætlunin hafi ekki verið í
samræmi við raforkulög. Landsnet
setji fram sína eigin raforkuspá,
sem ekki sé heimild fyrir, og fyr-
irtækið gefi sér þær forsendur í
sinni spá að nær allur orkunýting-
arflokkur rammaáætlunar komi til
framkvæmda á næstu tíu árum.
Þá bendir Landvernd á að í áætl-
uninni hafi ekki verið fjallað um
umhverfisáhrif raunhæfra valkosta,
líkt og jarðstrengja eða blandaða
leið loftlína og jarðstrengja.
Fyrirtaka í héraðsdómi í haust
LANDVERND FÓR Í MÁL VEGNA SÍÐUSTU KERFISÁÆTLUNAR
Morgunblaðið/Einar Falur
Raflínur Flutningskerfi raforku er að mati Landsnets komið að þolmörkum
og brýn þörf á að bæta það, til að tryggja öryggi í afhendingu orkunnar.