Morgunblaðið - 30.07.2015, Qupperneq 54

Morgunblaðið - 30.07.2015, Qupperneq 54
54 FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. JÚLÍ 2015 Klettagörðum 5, 104 Reykjavík | stolpigamar@stolpigamar.is Gámaleiga Er gámur lausnin fyrir þig? Við getum líka geymt gáminn fyrir þig 568 0100 stolpigamar.is HAFÐU SAMBAND Búslóðageymsla ❚ Árstíðabundinn lager ❚ Lager ❚ Sumar-/vetrarvörur Frystigeymsla ❚ Kæligeymsla ❚ Leiga til skemmri eða lengri tíma SVIÐSLJÓS Guðrún Vala Elísdóttir vala@simenntun.is Langi mann að heimsækja óhefð- bundið, skemmtilegt en friðsælt kaffihús á Vesturlandi liggur bein- ast við að renna upp á Hvanneyri. Þar er Skemman kaffihús opið alla daga frá 13.30 til 18 og er þetta annað sumarið sem það er rekið. „Við opnuðum um miðjan júní í fyrra,“ segir Stefanía Nindel, einn rekstraraðila, „og viðtökurnar voru svo góðar að við ákváðum að halda áfram núna í sumar.“ Stefanía, sem er með masters- gráðu í fjármálum og búsett á Hvanneyri, hafði lengi gengið með þann draum að opna kaffihús. „Ég var búin að fá húsnæðið leigt en var eiginlega hætt við þegar ég frétti af annarri konu hér sem átti sama draum og ég.“ Sú kona er Rósa Björk Jóns- dóttir, grafískur hönnuður sem þá var nýlega flutt að Hvanneyri og þriðji aðili kom þeim Rósu og Stef- aníu saman. Í ljós kom að þrátt fyr- ir að þekkjast ekkert, höfðu þær sömu hugmyndir um rekstur á kaffihúsi. Húsnæðið, sem er gamla skemman á Hvanneyri, er í eigu Landbúnaðarháskólans og er elsta uppistandandi húsið þar, byggt 1896. Sóknarnefndin leigir húsið og fékk fyrir nokkrum árum styrk til að gera það upp. „Við náðum strax vel saman, ég sé um bókhaldið en Rósa kaffi- málin. Enda var það svo að þegar við fórum að leita að kaffiframleið- anda spurði ég um kílóverðið en hún um sýrustig og ræktunar- aðferðir,“ segir Stefanía og hlær. Þær kaupa kaffið af Reykjavík roasters, sem flytja inn kaffi beint frá ræktendum og rista sjálfir. Þær vildu bjóða upp á hágæðakaffi og styrkja sjálfbærni, og segja þær að Reykjavík roasters hafi algjörlega mætt kröfum þeirra. Lausnirnar koma til manns Kaffið bera þær fram í fallegum bollum sem eru hannaðir og fram- leiddir af Elísabetu Haraldsdóttur listakonu, en jafnframt er sölusýn- ing í Skemmunni á listmunum hennar. Í sumar bættist þriðji rekstraraðilinn í hópinn; Kolbrún Þórarinsdóttir matartæknir, sem hefur lengi dreymt um að reka mat- sölustað. Hún var nýlega flutt á Hvanneyri þegar hún ljóstraði því upp á prjónakvöldi sl. vetur, að hún saknaði þess að hvorki væri verslun á staðnum né veitingastaður. „Skömmu síðar hringdi Stefanía í mig og bauð mér samstarf og ég sló til.“ Stefanía var þá búin að ráða sig í fullt starf í Borgarnesi og sá fram á að hún hefði minni tíma fyrir kaffi- húsareksturinn. „Þess vegna var það góður kostur að fá Kolbrúnu með okkur,“ staðfestir Stefanía. „Við skiptum með okkur helgunum, en ég get lítið verið á virkum dög- um. Þetta sýnir líka að maður á ekki að óttast að segja frá hug- myndum sínum og draumum. Í staðinn fyrir að vera hræddur um að hugmyndum manns verði stolið, eru líkurnar meiri á því að til manns komi lausnir, eins og gerðist í okkar tilfelli.“ Laxavöfflur, hvað er nú það? Þrátt fyrir ólíkan bakgrunn hafa þær svipaðan stíl, smekk og hug- sjónir sem samræmast í góðri sam- vinnu. Auk þess hafa þær fjóra ung- linga sér til aðstoðar á kaffihúsinu. Húsið sjálft er ekki nema um 60 fermetrar að grunnfleti og í sumar fengu þær afnot af efri hæðinni líka. „Við höfum aðeins tekið á móti hópum og þá höfum við fengið mat frá Kræsingum í Borgarnesi,“ segir Kolbrún, „enda ekki hægt að elda stórar máltíðir hér og gott að vera í samstarfi við aðra aðila í héraði.“ „Eldhúsið er mjög lítið,“ segja þær „aðeins 4,7 fm og því ekki aðstaða til að matreiða flókinn eða mikinn mat, en við fjárfestum í vöfflujárni og belgískar vöfflur eru uppistaðan í bakkelsinu hjá okkur.“ Vöfflurnar eru ósætar og því hægt að bera þær fram hvort sem er með jarðarberjasósu og rjóma sem þær segja vinsælast, eða með alls konar áleggi. „Við erum komn- ar með gömlu íslensku skonsu- hugmyndina skrefi lengra,“ segir Rósa, „með reyktum laxi, smurosti og piparrótarrjóma.“ Hér er að sjálfsögðu notaður reyktur lax úr héraði, frá Eðalfiski í Borgarnesi. Heimamenn velviljaðir „Viðtökurnar urðu strax mjög góðar,“ segir Stefanía. „Við vissum auðvitað að það yrði ekki biðröð fyrsta daginn og uppbygging á svona rekstri tekur tíma, en sum- arið í fyrra var mjög gott. Þrátt fyr- ir að hafa ekkert auglýst hefur traf- fíkin aukist jafnt og þétt í sumar, hingað koma sumarbústaðagestir og fólk úr nágrannasveitarfélögum auk heimamanna. Í fyrra komu mest Íslendingar en núna hefur erlendum gestum verið að fjölga, við vorum svo heppnar að í fyrrasumar kom þýsk kona hing- að, sem var að skrifa fyrir þýskan ferðabækling og í sumar hefur komið nokkuð af Þjóðverjum sem sáu þá umfjöllun.“ Þær langar að þróa reksturinn áfram og vinna að uppbyggingu, t.d. að taka við fleiri hópum í fram- tíðinni, kannski hafa opið í hádeg- inu og vera með einfaldan en góðan hádegismat með hráefni úr hér- aðinu. „Það er mikilvægt að hafa ein- hverja starfsemi á staðnum. Áður heimsótti fólk Ullarselið og fór á Landbúnaðarsafnið en hvergi var hægt að kaupa kaffi,“ segja þær og bæta við að þær séu afar þakklátar fyrir mikla velvild frá heimamönn- um sem bæði hafa verið duglegir að koma og fá sér kaffi og leggja lið þegar þarf, eins og á Hvanneyrar- hátíðinni þegar fullt af sjálfboða- liðum kom og aðstoðaði þær þegar mikið var að gera. Skemman – kaffihús verður opið alla daga til 9. ágúst. Síðan er áformað að vera með vetraropnun og verður nánar sagt frá henni á fésbókarsíðu kaffi- hússins. Skemman – skemmtilegt kaffihús  Þrjár konur reka saman kaffihús á Hvanneyri  Áttu sama drauminn en þekktust ekki fyrir  Viðtökurnar urðu strax mjög góðar  Fá kaffið beint frá ræktendum og veitingar úr héraði Morgunblaðið/Guðrún Vala Samhentar Stefanía Nindel, Kolbrún Þórarinsdóttir og Rósa Björk Jónsdóttir reka Skemmuna kaffihús. Veitingar reiddar fram Melkorka Sól Pétursdóttir að störfum. Í gömlu húsi Skemman kaffihús á Hvanneyri er í húsi sem var reist 1896. Kynning Heimagerðar auglýsingar.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.