Morgunblaðið - 30.07.2015, Page 61

Morgunblaðið - 30.07.2015, Page 61
61 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. JÚLÍ 2015 Kvöldsólin heillar Ákveðinn ljómi hefur fylgt siglingum á Faxaflóa, hvort sem menn eru að draga björg í bú eða njóta fegurðarinnar á snekkju Pauls Allens við ytri höfnina í Reykjavík. Árni Sæberg Í aðdraganda kvennadags 19. júní sl., og allt fram til dagsins í dag, hefur verið mikið rætt og rit- að um stöðu kvenna hér á landi. Því miður hefur sú umræða oft verið lituð af ofstæki svokallaðra femínista (aðallega á vinstri væng) og verður ekki annað skilið á þeim en að konur hér á landi hafi frá upphafi verið kúgaðar af körlum, sem hafi notað þær til erfiðustu verka svo þeir mættu slæpast og láta sér líða vel að hætti múslima. Hver hefur ét- ið þennan áróður upp eftir öðrum, karlar og konur, stjórnmálamenn og fjölmiðlamenn, og enginn hefur þor- að að hafa orð á því, að fleiri hliðar en ein eru á flestum málum. Póli- tískur rétttrúnaður stjórnar hugsun og umræðu í þessu máli. Kosningarétt fengu konur að vísu seinna en karlar, sem áttu eignir, en þær fengu hann fyrr hér en víðast annars staðar. Allt hefur stefnt í rétta átt í baráttu fyrir jafnrétti karla og kvenna, og í raun er svo komið, að konur eru á mörgum svið- um komnar fram úr körlum í svo- kölluðu jafnrétti. Undir þessari síbylju hafa mér oft komið í hug skrif Halldórs Laxness um það, sem hann kallar matríarkat í lokakafla Sjömeistarasögunnar (bls. 223 og áfram), en þar segir hann m.a.: „Hefur ekki einlægt verið matrí- arkat á Íslandi … þar sem kvenna- ráð, oft leynileg, giltu mest … Í fornsögum … er karlmaðurinn um- fram allt fyrirvinna konunnar, en stundum þræll; stundum þjófur hennar eins og Hallgerður vildi gera Gunnar, eða hleypifífl til að koma á stað manndrápum eins og Bergþóra gerði syni sína alla.“ Vel hefði skáldið mátt nefna Hildigunni Starkarðardóttur Hvítanessfrú, sem hvatti Flosa föður- bróður sinn nauðugan til að fremja eitt mesta níðingsverk, sem forn- sögur segja frá og aldrei hefði verið unn- ið, ef frýjunarorð hennar hefðu ekki komið til. Þá segir Halldór Laxness ennfremur í Sjömeist- arasögunni: „Karlinn er óumbreyt- anlega sá sem fer til sjós að draga fiska, eða drukkna, nema hvor- tveggja sé; og svo drukknaði afi minn ásamt allri áhöfn …“ Svo mörg eru þau orð skáldsins, og mætti margt fleira tína til, bæði úr Njálu og öðrum ritum. Í Grinda- vík voru í upphafi tveir bæir held ég og hétu eftir kvenskörungum mikl- um, Þórkötlu og Járngerði. Báðar áttu þær eiginmenn, sem réru til fiskjar og a.m.k. annar þeirra drukknaði í lendingu vegna fjöl- kynngi eiginkonu hins. Í sögnum hafa þessir karlar ekki nöfn. Þetta er liðin tíð og ekki meira um það að segja, eða hvað? Nú er svo komið málum, að áróð- ur femínista hefur svipt konuna því sæmdarheiti og þeirri ábyrgð- arstöðu hennar, sem hefur verið burðarás þjóðfélagsins um aldir. Er þetta kvenréttindum til fram- dráttar? Eftir Axel Kristjánsson »Hver hefur étið þennan áróður upp eftir öðrum, karlar og konur, stjórnmálamenn og fjölmiðlamenn Axel Kristjánsson Höfundur er lögmaður. Matríarkat- mæðraveldi Mikil umræða hefur orðið um niðurstöður könnunar á vegum Háskólans á Akureyri um hvar ungt fólk á Íslandi vilji helst kjósa sér starfsvett- vang – á Íslandi eða utan Íslands. Mörgum hefur komið mjög á óvart sú niðurstaða, að ríflega helmingur unga fólksins telur farsælla að velja ævistörf utan Ís- lands en innan. Í kjölfarið hefur fylgt umræða, sem fyrst og fremst hefur byggst á sjónarmiðum eldri kynslóða Íslendinga. Sem sé að or- sakanna sé að leita í rýrum lífs- kjörum á Íslandi samanborið við nálæg lönd, í erfiðleikum ungs fólks með húsnæðisöflun, í fleiri atvinnutækifærum í útlöndum og áfram eftir þessari götu. Sem sé, að orsökin sé sú sama og hún myndi vera í hugarheimi okkar, eldri Íslendinga, og að „bjarg- ráðið“ sé það sama og ef við af eldri kynslóðinni ættum í sam- bærilegum vandkvæðum með að velja okkur lífsstarf innan eða ut- an Íslands. Hagstæð húsnæð- islánakjör muni leysa vandann! Netheimar Unga kynslóðin á Íslandi er alin upp í allt annarri veröld en sú ver- öld er, sem við af eldri kynslóðinni þekkjum. Hún er alin upp í veröld netheima. Mjög margt af unga fólkinu hefur allt sitt veraldarvit þaðan. Les ekki prentaðan texta – hvorki blöð né bækur – hlustar hvorki á fréttir í útvarpi né í sjón- varpi eins og við gerum og höfum gert en hefur allar sínar upplýs- ingar frá samfélagsmiðlunum: fés- bók, twitter, sms. Á þar gjarna í það minnsta 700 trúnaðarvini á móts við þá 8-10, sem okkur hlotn- uðust – og segir öllum þessum 700 sín dýpstu leyndarmál. Netheimarnir eru sú veröld, sem er veröld unga fólksins. Veröld þar sem engin eru landamæri, engin slík skil mörkuð milli ein- staklinga eða hópa. Þar sem jafn auðvelt er að eiga í sam- skiptum við Japana eða Ástrala og við sessunaut. Jafnvel enn auðveldara. Þar sem engu máli skiptir hver er heimilisfesti viðkomandi. Allir eru borgarar í netheimunum, þar á samræðan sér stað, þar eru allir jafnir til orðs og æðis, þar er eng- inn „heimamaður“ og enginn „út- lendingur“. Bara sjötíu sinnum sjö hundruð trúnaðarvinir. Allir í samtölum – við aðra Þetta sást hvað best þegar sjón- varpið birti myndskeið af þátttak- endum og starfsmönnum íslenska sönghópsins í evrópsku söngva- keppninni. Þar var send út mynd af hópnum þar sem hann var í rútuferð milli áfangastaða. Öfugt við það sem var á okkar tíð var þar enginn í hrókasamræðum við sessunaut, hvað þá heldur að kyrja þjóðlög með kátum samferða- mönnum. Steinhljóð í rútunni en allir kúrandi hálfbognir yfir snjall- símunum í sms-samskiptum við einhverja vini í Ástralíu, Kína eða Bandaríkjunum, eða Þýskalandi, eða Svíþjóð – eða jafnvel á Íslandi. Enginn að tala við sessunaut. Allir á heimavettvangi í netheimum. Steinþegjandi. Tungumál netheima Í netheimum er ekkert þjóðerni, enginn þjóðrembingur (guði sé lof), engar „fóbíur“. Borgari í net- heimi getur búið hvar sem er í veröldinni. Enginn staður er öðr- um heilagri – að því tilskildu að þar sé gott netsamband. Hvernig getur það komið fólki á óvart, að ungir netheimaborgarar geti vel hugsað sér að verja ævistarfinu einhvers staðar annars staðar en þar sem pabbi og mamma gátu þá – að því tilskildu að netsambandið sé þar gott. Sagt er, að þriðjungur drengja geti ekki lesið íslensku sér til skilnings eftir tíu ára grunnskólanám. Hefur nokkur skoðað hversu margir drengir geta ekki lesið tungumál netheima – enska tungu – sér til skilnings eft- ir tíu ára dvöl í netheimum? Þeir eru nú fáir! Enda væru þeir harla léttvægir borgarar í netheimum – og myndu sjálfsagt vera til í að búsetja sig til framtíðar á Íslandi ef húsnæðislánakerfið yrði lag- fært. Þingmenn í EVE online Þessi breyting milli kynslóða er miklu meiri en fólk vill vera láta. Hvers vegna er fylgi við Pírata svona mikið meðal yngra fólks? Það er einfaldlega vegna þess, að þingmenn Pírata koma fyrir eins og þeir væru þingmenn í tölvu- heimum EVE online. Og net- heimakynslóðin kann vel að meta slíka þingmenn. Nema hvað! Þetta er veröldin þeirra. Hvort er hún betri eða verri en veröldin okkar – sú veröld sem var? Um það get ég ekki dæmt Veit bara að hún er allt öðruvísi. Það skýrir af hverju svo margir hugsa allt öðruvísi en við gerðum. Betra húsnæðislánakerfi breytir ekki miklu um það. En menn geta svo sem reynt! Eftir Sighvat Björgvinsson »Mjög margt af unga fólkinu hefur allt sitt veraldarvit þaðan. Les ekki prentaðan texta – hvorki blöð né bækur – hlustar hvorki á fréttir í útvarpi né í sjónvarpi Sighvatur Björgvinsson Höfundur er fyrrv. alþingismaður og ráðherra. Allt önnur veröld en var
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.