Morgunblaðið - 30.07.2015, Side 64
64 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. JÚLÍ 2015
Mest seldu ofnar
á Norðurlöndum
Flestu fólki líkar vel
við miðborg Parísar.
Skyldi það vera til-
viljun? Nei, ástæðan er
sú að borgin var skipu-
lögð með það fyrir aug-
um að hún væri harm-
ónísk, þ.e. að byggingar
féllu hver að annarri
með ákveðnu mynstri,
sem George-Eugene
Haussmann sagði fyrir
um. Sem dæmi var ætlast til þess að
byggingar sem stæðu hlið við hlið
væru sex hæðir og svalir væru á 3. og
6. hæð. Verslanir á 1. hæð og góðar
íbúðir fyrir ofan. Arkitektar og verk-
takar gátu ekki leyft sér að byggja
hvað sem þeim sýndist á úthlutaðri
lóð.
Reykjavík
Reykjavík byggðist upp frá lokum
átjándu aldar en eiginlegt götuskipu-
lag varla fyrr en um 100 árum síðar.
Vegna lágrar sólstöðu og skugga-
varps voru menn framan af á því að
hús ættu varla að fara yfir 3-4 hæðir.
En hér var enginn Haussmann og er
ekki enn þótt margir merkismenn
hafi lagt til byggingasögu Reykjavík-
ur. Byggðin varð því sundurleit en
samt nokkuð í samræmi við fjögurra
hæða hugmyndina innan gömlu
Hringbrautarinnar, sem hér er til
umfjöllunar.
Verktakaskipulag
Eftir síðari heimsstyrjöld varð
breyting og svo virðist sem vaxandi
stefnuleysi hafi ráðið för en að verk-
takar hafi fengið að valsa frjálslega
um. Verktakar tóku að byggja hús
sem harmónera mörg hver ekki við
umhverfið, þ.e. gömlu byggðina, auk
þess sem ekki hefur verið gætt að því
að tryggja mannlíf í miðborginni með
brottflutningi verslunar
og íbúa þaðan.
Mætti lesandinn
ímynda sér hvernig
Reykjavík liti út ef ekki
væri Morgunblaðshöllin
og nýbyggingar við
hana, Landsímahúsið
við Austurvöll, viðbótin
við Útvegsbankahúsið
(Héraðsdóm) og svarta
furðuverkið á Lækj-
artorgi. Í staðinn væru
lægri og smærri hús í
samræmi við gamla umhverfið í
kring. Ímyndið ykkur Ingólfstorg. Sá
sem þetta ritar sér birtuna og sólina
streyma inn í götur og torg ef ekki
væru þessi hús. Hann fagnar því
einnig, að endurbyggð voru gömul
hús við Lækjartorg eftir brunann
mikla og að forðað var niðurrifi gam-
alla húsa á mótum Skólavörðustígs og
Laugavegar þar sem verktakar höfðu
stórvaxnar hugmyndir. Á sama tíma
jókst því miður skuggavarpið í
Skuggahverfinu vegna nýrra háhýsa.
Hvar er Haussmann?
En áfram skal byggja og enn eru
N.N. verktakar á ferð. Enginn veit
hverjir þeir eru eða hver gaf þeim
valdið. Þeir tilkynna bara fyrirætl-
anir sínar. Skipulagsyfirvöld og
kjörnir fulltrúar almennings segjast
engu ráða vegna furðulegrar skaða-
bótaskyldu gagnvart verktökunum.
Hver leyfði kjörnum fulltrúum að
gefa frá sér vald og ábyrgð? Birtar
hafa verið myndir af fáránlegum hug-
myndum að hóteli við Lækjargötu
þar sem langeldurinn stóð. Og nú síð-
ast birtist risavaxið deiliskipulag
sunnan við Hörpu, sem augljóslega
mun loka sjónlínum úr miðborginni
að Hörpunni og Esjunni. Maður sýp-
ur hveljur og veltir því fyrir sér hvort
við Reykvíkingar getum virkilega
ekki fundið einhvern Haussmann?
Kaupstaðurinn á að vera fagur og
mannvænn þótt vissulega þurfi að
tryggja að hann sé ekki dautt safn
gamalla húsa.
Tillaga
Á mynd nr. 1 er fyrirliggjandi deili-
skipulag sunnan við Hörpu, ég kalla
það Hörpuborg. Byggingarmagn
Hörpuborgar er 62.000 fermetrar eða
jafn stórt og fyrri áfangi fyrirhugaðra
nýbygginga Landspítalans, sem
sprengja á niður í gömlu Hringbraut-
ina (annað byggingarslys í uppsigl-
ingu, sem ég hef fjallað um áður og
bent á lausn á). Ég er talsmaður þess
að reist verði hótel við Hörpu á norð-
vesturbakka lóðarinnar en tillaga mín
er sú að ekki verði byggt austanvert á
lóðinni frá Hörpu að Lækjartorgi og
að svarta húsið á Lækjartorgi verði
rifið. Holan við Hörpu verði notuð að
hluta til þess að hleypa Geirsgötu í
stokk neðanjarðar/sjávar og undir
hótelbygginguna eða komi upp sunn-
an við hótelið. Með þessum hætti
myndast stórt torg, Hörputorg, sem
væri gönguleið frá Hörpu alveg að
Lækjartorgi og myndi kallast á við
Arnarhól (sjá mynd 2) og myndi nýt-
ast til mannfagnaða borgarbúa.
Gamli hafnargarðurinn fengi að
standa á Hörputorgi og e.t.v. yrði
Lækurinn opnaður á ný. Útsýni að
Hörpu og Esjunni og frá Hörpunni að
Lækjargötu væri tryggt. Íhuga ætti
að auki að minnka byggingarmagn á
suðvesturhluta lóðarinnar og setja
þar niður smærri og lægri byggingar.
En stóru húsin, þ.m.t. höfuðstöðvar
Landsbankans, verði utan gamla
kaupstaðarins.
Hörpuborg eða Hörputorg?
Eftir Pál Torfa
Önundarson
» Tillaga mín er sú að
ekki verði byggt
austanvert á lóðinni frá
Hörpu að Lækjartorgi.
Nýtt Hörputorg nái frá
Hörpu að Lækjartorgi
…
Páll Torfi Önundarson
Höfundur er læknir, áhugamaður um
fegurð og mannlíf í gömlu Reykjavík.
Hörpuborg Byggingarmagn er 62.000 fermetrar.
Hörputorg Torgið mætti nýta til mannfagnaða.
Það sem stöðugt er
í umræðunni um þess-
ar mundir eru
flugvallarmálin í
Reykjavík og bygging
nýs landspítala. Það
er greinilegt að borg-
arstjórn Reykjavíkur
vinnur að því að
Reykjavíkurflugvelli
verði lokað. Ég vil því
setja fram mínar til-
lögur um þessi mál. Það er unnt að
leysa bæði þessi mál á einfaldan
hátt ef menn hugsa aðeins fram
fyrir nefið á sér. Rögnunefndin svo-
nefnda kom með nýjar tillögur, sem
kosta miklar fjárhæðir í fram-
kvæmd og deilur eru um staðsetn-
ingu Landspítala og
sjúkraflug tengt því.
Lausnin á þessu er ein-
faldlega að leggja nið-
ur Reykjavíkurflugvöll
og færa innanlands-
flugið til Keflavíkur.
Þar ætti síðan að
byggja nýjan hátækni-
spítala Íslands.
Það eru á döfinni
áætlanir um hraðlest-
arkerfi milli Reykjavík-
ur og Keflavíkur og
verður þá fljótlegt að
komast á milli fyrir starfsfólk sem
getur haft búsetu hvar sem það vill
á höfuðborgarsvæðinu eða á
Reykjanesi. Hér er þarf starfsfólk
ekki að æsa sig yfir því að þurfa að
flytja „út á land“. Reykvíkingar
gætu áfram haft sína bráðamóttöku
og starfrækt eitt sjúkrahús eins og
gert er í öðrum þéttbýliskjörnum.
Allar meiri háttar aðgerðir yrðu
gerðar á hátæknispítala í Reykja-
nesbæ . Nauðsynlegt getur verið að
hafa sérstaka lest til að flytja sjúk-
linga sem koma með sjúkrabílum
frá hinum ýmsu landshlutum. Það
ætti ekki að vera ríkinu ofviða að
útbúa sjúkraklefa vel búinn tækj-
um, þegar læknishéruðum á land-
inu tekst að tækjavæða sjúkra-
bílana með nýjustu tækjum.
Borgarspíltalinn gæti þá nýst
sem hjúkrunarheimili aldraðra, eins
og einhvern tíma var hugmyndin og
sárlega vantar. Reyndar var lagt fé
til byggingar hans úr framkvæmda-
sjóði aldraðra á sínum tíma.
Kannski væri hægt að nýta bygg-
ingar á Vallarsvæðinu í tengda
þjónustu og/eða sjúkrahúsið í
Reykjanesbæ. Var ekki búið að
koma upp mjög fullkominni skurð-
stofu þar fyrir nokkru síðan? Há-
tæknisjúkrahús þarf að rísa sem
næst flugvelli. Það verður það
greinilega ekki í Reykjavík. Nú
segja menn auðvitað að búið sé að
eyða fé í hönnun spítalans í Reykja-
vík, en það hlýtur að vera hægt að
nýta hönnunina þó staðsetning
verði önnur. Er ekki betra að
staldra við og hugsa upp á nýtt, en
að troða spítalanum niður þar sem
aðgengi er erfitt og við flugvöll sem
á að loka, og sjá svo eftir áratug
eða svo, að hlutirnir ganga ekki
upp?
Auðvitað segja einhverjir sér-
fræðingar að „venjuleg kona úti á
landi“ eigi nú ekki að þykjast hafa
vit á þessum málum, En þegar mál-
ið er skoðað án tillits til einhverra
sérhagsmuna og fordóma, blasir
þessi lausn við. Ég skora á stjórn-
völd að skoða þetta með opnum
huga!
Í framhaldi mætti skoða flutning
fleiri stofnana, sem þjóna öllu land-
inu, til Reykjanesbæjar, allt starfs-
fólk getur haldið sinni vinnu, þarf
bara að skjótast með hraðlest í 10-
15 mínútur.
Eftir Þrúði
Kristjánsdóttur
Þrúður Kristjánsdóttir
»Reykvíkingar gætu
áfram haft sína
bráðamóttöku og starf-
rækt eitt sjúkrahús eins
og gert er í öðrum þétt-
býliskjörnum.
Höfundur er fv. skólastjóri.
Ekki bæði sleppt og haldið