Morgunblaðið - 30.07.2015, Page 68

Morgunblaðið - 30.07.2015, Page 68
ÚTIVIST og hreyfing68 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. JÚLÍ 2015 NÚ Í NÝJUM UMBÚÐUM LJÚFFENGA HEILHVEITIKEXIÐ SEM ALLIR ELSKA Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is E f marka má umsvifin hjá Fjallakofanum virðist ekkert lát ætla að verða á útivist- aráhuga landsmanna. Nóg er að gera í verslununum þremur: í Hafnarfirði, Kringlunni 7 og á Laugaveginum og skemmir ekki fyr- ir að erlendir ferðamenn þurfa oft að birgja sig upp af útivistarvörum áð- ur en haldið er af stað í ferðalag um landið. „Erlendu gestina vanhagar um allt frá einni lítilli skeið til að borða nestið upp í það að þurfa að kaupa útilegubúnaðinn allan eins og hann leggur sig,“ segir Sigríður Kragh, sölumaður hjá Fjallakof- anum Kringlunni. Skósalan er einn af burðar- stólpum verslunarrekstursins og segir Sigríður að neytendur kunni að meta breitt úrvalið sem spannar allt frá sandölum upp í stóra og vígalega jöklaskó. Hún segir fólk vel meðvitað um mikilvægi þess að fjárfesta í vönduðum skóm fyrir sportið. „Sumir virðast vilja eiga eitt par af skóm fyrir hvert göngu- stig: eitt par fyrir rólega göngutúra um Elliðaárdalinn, annað fyrir fjall- göngurnar og þar fram eftir göt- unum. Svo eru hinir sem kaupa eitt par sem helst á að að duga í hvað sem er, á öllum árstímum,“ útskýrir Sigríður. „Sama er með fatnaðinn, að sumir koma sér upp safni af margs konar jökkum með mismun- andi eiginleika á meðan aðrir leggja ríka áherslu á að finna margnota flík sem gagnast hvort heldur í göngu um óbyggðir, reiðhjólatúr eða skíðaferð. Og helst þarf þá líka að vera hægt að rölta inn á næsta kaffihús í jakkanum án þess að stinga um of í stúf.“ Hugsa sig vel um Neytendur virðast upp til hópa vanda sig mjög við kaupin. Segir Sig- ríður ekki óalgengt að fólk dvelji löngum stundum í versluninni og beri saman skó og yfirhafnir til að finna réttu flíkina. Horfi fólk þá bæði á eig- inleika eins og vatnsheldni og öndun, en passi líka upp á þyngdina. Munað getur um hvert viðbótargramm þeg- ar farið er í langar fjallgöngur og hvað þá ef fólk fer hlaupandi. „Þar sjáum við miklar framfarir í Gore- Tex-skeljunum sem verða bæði þynnri og léttari en halda sömu eig- inleikum hvað varðar öndun og vatns- heldni. Miðar öll þróunin að því að létta útivistarvörurnar og minnka umfang þeirra, hvort sem um er að ræða göngustafi eða matarílát.“ Í dag hafa flestir snjallsímann með í för þegar haldið er af stað upp á fjöll og sanda. Er ekki amalegt að geta svarað símtölum, jafnvel skoð- að tölvupóstinn og kíkt á Facebook uppi á hæstu tindum. Segir Sigríður að fólk taki símann með til afþrey- ingar og til að ljósmynda það sem fyrir augu ber. Vandinn við tæknina, frábær sem hún er, er hins vegar að ekki er enn hægt að hlaða tækin með því að finna innstungu bak við næstu vörðu eða undir næstu mosaþúfu. Velja margir að leysa málið með sól- arsellum frá Goal Zero. „Um er að ræða sólarselluspjald sem fest er aftan á bakpokann. Sólin lendir á spjaldinu og hleður smám saman lítinn rafhlöðupakka sem svo er hægt að nota til að hlaða símann, spjaldtölvuna , myndavélina eða GPS-tækið. Þykir sumum jafnvel skemmtilegt að tengja lítinn hátal- ara við rafhlöðupakkann og arka um fjöll við hljóminn af líflegri tónlist.“ Ísland hefur ekki þótt bjóða upp á kjöraðstæður fyrir virkjun sólar- orku en Sigríður segir að ekki þurfi glampandi sól til að hleðsla myndist. „Svo lengi sem bjart er yfir þá safn- ast rafmagn á rafhlöðuna á meðan gengið er.“ Sólarsellurnar hlaða snjallsímann  Útivistarskór og yfirhafnir fást úr æ betri og léttari efnum  Sólarrafhlaðan tryggir að hægt sé að kíkja á Face- book í miðri fjallgöngu  Neytendur hugsa sig margir vel og lengi um og vanda sig við valið á útivistarfatnaðinum Morgunblaðið/Árni Sæberg Notagildi Sigríður segir suma vilja eiga eina yfirhöfn fyrir hverja tegund útivistar á meðan aðrir leggja áherslu á að velja flík sem hentar til hvers kyns nota, hvort heldur stefnan er tekin á næsta jökul eða á huggulegt kaffihús. Hjá Fjallakofanum má finna eitt og annað sem getur gert dæmi- gerða fjölskylduútilegu þægi- legri og skemmtilegri. Sigríður nefnir sem dæmi saman- brjótanlegan pott sem er léttur og nettur. „Lítið fer fyrir pott- inum þegar hann er brotinn saman, en svo er hann eins og góður súpupottur þegar hann er í notkun á prímusnum. Eins er hægt að fá önnur ílát svo sem bala sem nýtist vel í upp- vaskið, nú eða sem fótabað eftir gönguna, en fer svo ekkert fyr- ir eftir að búið er að brjóta hann saman.“ Strákarnir hafa haft ákveðið forskot á stelpurnar í úti- legunum hvað það varðar að kasta af sér vatni. Kvenfólkið þarf oft að hafa mikið fyrir að gyrða niðrum sig og leita að hentugum stað til að sitja á hækjum sér og spræna. Karl- peningurinn þarf varla nema að renna niður buxnaklaufinni og gæta þess að standa undan vindi. GoGirl-pissutrektin jafnar kynin heldur betur hvað þetta varðar og segir Sigríður að þessi skemmtilega litla græja seljist mjög vel. „Er um að ræða lítinn sívaln- ing úr sílíkoni sem myndar eins konar trekt og beinir bununni frá líkamanum. Má meira að segja fá framlengingu á trekt- ina og þá er hægt að fara í pissukeppni við strákana ef svo ber undir, og hafa betur! Eftir notkun er trektin sett í lítinn plasthólk en með fylgja hansk- ar og plastpoki til að auka á hreinlætið. Nota má trektina nokkrum sinnum í hverri ferð og svo þarf bara að skola þegar komið er heim eða gengið fram á næsta læk,“ segir Sigríður. „Það munar ekki hvað síst um GoGirl þegar gengið er á jökla, allir festir saman með línu og ekki hægt að finna sér stað til að fara afsíðis. Þá geta konurnar gert eins og karl- arnir ef þeim verður mál og látið vaða þar sem þær standa.“ Morgunblaðið/Árni Sæberg Sprænt GoGirl pissutrektin hefur hitt í mark hjá kvenþjóðinni. Samanbrotinn bali og kynjajafnandi trekt
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.