Morgunblaðið - 30.07.2015, Page 74
74
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. JÚLÍ 2015
Þ
au hjónin eru að sögn Sigrúnar jöfnum
höndum fyrir harðkjarna-útivist og
huggulega útiveru og hafa víða farið í
leit að návist við náttúruna, hér á
landi sem erlendis.
„Það má segja að við séum gefin fyrir hvoru
tveggja. Eða öllu heldur þá er Jóhannes, mað-
urinn minn og sjálfur forritarinn á bak við
vefinn minn, CafeSigrun.com, harðkjarna úti-
vistargaur. Hann trítlar reglulega á hæsta
tind Afríku, Kilimanjaro, með hópa sem far-
arstjóri hjá www.afrika.is og er í febrúar á
leið í annað sinn með hóp til Rwenzori-
fjallanna á landamærum Úganda og Kongó.
Hann hefur líka farið á hæsta tind Kenýa, Mt.
Kenya, og var einnig að ljúka við Lauga-
vegsmaraþonið fyrir stuttu. Ég aftur á móti
er sú sem er að taka myndir út um allar triss-
ur en fer ekki á þessi hæstu fjöll, læt þau
lægri duga. Ég er þó lítið gefin fyrir rólegheit
og kósí tjaldvagnastemningu,“ bætir Sigrún
við og kímir. „Við höfum einnig gengið saman
um frumskóga Virunga-fjallanna í Rúanda
þar sem við kíktum aðeins á górillur. Svoleiðis
göngur eiga vel við mig.“
Hnetur, súkkulaði, harðfiskur
Þeir sem þekkja vef Sigrúnar vita sem er
að þar eru góð hráefni í aðalhlutverki og hún
hefur afskaplega takmarkað umburðarlyndi
fyrir sykri, geymsluefni, transfitum og þess-
háttar. Hún hefur því skiljanlega skoðanir á
því sem á að fara í bakpokann þegar pakkað
er fyrir útiveru og útivist.
„Fyrir styttri ferðirnar tek ég tilbúnar
samlokur eða vefjur með sem þola kannski
ekki mikið slark en eru fínar í nesti í lok dags.
Þarna skiptir hitastigið sem maður er að
ganga í máli því maður getur tekið nánast allt
með sér í poka á einum degi hér á landi en er-
lendis er maður bundinn af meiri hita,“ út-
skýrir Sigrún. „Það vill til dæmis enginn
draga upp túnfiskssamloku eftir 8 tíma göngu
í 30 stiga hita svo dæmi sé tekið. Fyrir lengri
ferðalög er algjörlega ómissandi – það er að
segja hafi maður ekki hnetuofnæmi – að taka
með sér hnetusmjör, hnetubland og súkkulaði.
Hnetusmjör dugar endalaust, það þránar ekki
í hita og gefur manni frábæra orku og má
smyrja því á nánast hvað sem er. Það sama
má segja um cashew-hnetumauk og mönd-
lusmjör. Hnetubland er auðvelt að útbúa og
kemur manni ótrúlega langt og súkkulaði þarf
ekki að fjölyrða um. Heimatilbúið orkunasl er
alltaf með í pokanum hjá mér, þurrkaðir
ávextir og svo harðfiskur, vel innpakkaður. Sé
farið í mikla hæð dettur matarlystin niður og
þá er mikilvægt að drekka nóg, og svitni mað-
ur er mikilvægt að ná upp söltunum aftur, til
dæmis með kókosvatni og viðbættu salti en
sumir taka með sér tilbúin orkugel í þeim til-
gangi. Það er einnig ákaflega gott að taka
mjólkurduft sem blanda má í svolítið vatn og
sem nota má í kakó, kaffi, meira að segja
múslí eða hafragraut á morgnana.“ Sigrún
bætir því við að prímusinn sé alltaf með og á
honum sé hitað kvölds og morgna. „Jóhannes
er einnig ákaflega mikill unnandi kaffis og
leggur mikið á sig í nokkurra daga göngum að
taka með sér gott kaffi. Hollt, heimatilbúið
konfekt með hnetum og þurrkuðum ávöxtum
er loks ákaflega góð orka og fín umbun þegar
í náttstað er komið. Einnig er ótvíræður kost-
ur að sé maður að fara í kulda verður heima-
tilbúna konfektið ekki glerhart, ólíkt tilbúnum
sælgætisstöngum. Einnig er gott að vera með
pakkasúpur úr heilsubúð og hrísgrjónanúðlur
en þær eru ákaflega fljótlegar í suðu og
pakkasúpurnar sömuleiðis.“
Tilbúnar máltíðir fara ekki með
Aðspurð segist Sigrún sjálf hafa farið flatt á
því að kaupa tilbúinn útilegumat sem ekki
reyndist neitt sérstakt góðmeti. Síðan láti hún
slíkt alfarið eiga sig.
„Já, í gönguferð einni í kringum Corrour-
vatnið í Skotlandi fyrir mörgum árum áðum
við að kvöldi og ég dró upp tilbúna útivistarn-
úðlusúpu sem lofaði góðri næringu og enn
betra bragði. Það tók mig nánast allt gasið úr
kútinum að sjóða nægilega mikið vatn og upp
undir tvær klukkustundir til að ná fitunni úr
skálinni eftir matinn – sem ég gat ekki klárað,
vel að merkja – því þetta var hert jurtafita. Þá
hugsaði ég með mér; nei, andskotinn, ég geri
þetta frekar sjálf en að bjóða æðunum upp á
þennan viðbjóð. Síðan þá hef ég ekki keypt
tilbúinn útilegumat.“
Það er að mörgu að huga þegar pakkað er í
bakpokann og þegar gengið hefur verið úr
skugga um að nestið sé hollt og gott þarf að
huga að því að passa þyngd farangursins,
bendir Sigrún á. „Það er algert lykilatriði að
vera ekki með of þungt nesti. Best er að setja
allt það í poka eða plastbox sem er í krukkum
til að létta umbúðirnar, passa að hitastigið,
hvort sem er kalt eða heitt, hafi ekki óæskileg
áhrif á nestið, að borðbúnaður eins og hnífa-
pör og diskar sé ekki of þungur, að skipu-
leggja nestið í samræmi við lengd göngu
þannig að til dæmis bananar séu borðaðir á
fyrsta degi en ekki þeim síðasta þegar þeir
eru orðnir að mauki. Ég tek heldur aldrei,
aldrei með tilbúna rétti eða núðlur eða slíkt
því oft getur verið búið að bæta í það efnum
til að auka geymsluþol. Einnig þarf að gæta
þess að taka ekki of lítið af næringu með því
fólk misreiknar sig oft hvað það varðar.“
Skemmtileg útivist í sumar
Sigrún og Jóhannes hafa þegar farið í
skemmtilega útivist hérlendis í sumar og frek-
ari landvinningar eru á dagskránni hjá þeim
hjónum.
„Við vorum að klára nokkurra daga hesta-
ferð í Vestur-Landeyjum með góðu fólki og
það var mikið borðað af góðum mat en svo í
september er ferð til Kilimanjaro og í febr-
úar er það Rwenzori-fjallgarðurinn og er
undirbúningur þegar hafinn fyrir báðar
ferðir.“
Þess má að lokum geta að sælkerar
og áhugafólk um hollan mat geta farið
að láta sig hlakka til haustsins því þá
kemur fyrsta bók Sigrúnar út.
„Já, fyrsta bókin mín kemur út í
haust og er langstærsti hlutinn nýjar
uppskriftir sem ekki hafa litið dagsins
ljós.“ Meira lætur hún ekki uppi að svo
stöddu en matgæðingar nær og fjær fylgjast
eflaust spenntir með. jonagnar@mbl.is
Aldrei tilbúinn útilegumat
Sigrún Þorsteinsdóttir heldur úti hinum sívinsæla vef cafesigrun.com þar sem hollusta og góð hráefni
eru í fyrirrúmi Hún og eiginmaðurinn eru mikið útivistarfólk og taka ekkert nema hollt nesti í útivistina
Ferðalangur Þessi mynd er tekin þegar Sigrún sigldi um á Lake Bunyonyi í Úganda ásamt eiginmanninum, á ferðalagi einu sinni sem oftar.
Afríka Hér eru þau Sigrún og Jóhannes stödd á fagurhvítum sandi á Diani strönd í Kenya.
Nota má þurrkaðar aprikósur, gojiber,
trönuber, valhnetur, cashewhnetur og
fleira í staðinn fyrir hráefnið í upp-
skriftinni. Afar gott er að bæta dökku
súkkulaði í naslið en það gerir það orku-
ríkara og um leið aðeins hollara vegna
andoxunarefnanna og járnsins sem má
finna í súkkulaðinu. Ég nota lífrænt
framleitt hráefni eins og kostur er en
það er sérstaklega mikilvægt þegar
kemur að salthnetunum en þar eru gæði
oft lök.
Ein lófafylli saxaðar, ristaðar heslihnetur
Ein lófafylli pistasíuhnetur, skurnlausar
Ein lófafylli salthnetur
Ein lófafylli graskersfræ
Ein lófafylli dökkar rúsínur
Ein lófafylli ljósar rúsínur
Ein lófafylli gráfíkjur
Byrjið á því að rista heslihneturnar á
heitri pönnu í nokkrar mínútur eða
þangað til hýðið fer að losna af.
Nuddið hýðið af og saxið
hneturnar gróft.
Setjið heslihnet-
ur, pist-
asíuhnetur, salt-
hnetur,
graskersfræ og
rúsínur í stóra
skál.
Saxið gráfíkj-
urnar (snúið end-
ann af fyrst) gróft
og setjið út í skálina.
Blandið vel saman.
Orkunasl
Fyrir 2-3
300 g þykkar hrísgrjónanúðlur (eða aðrar
núðlutegundir)
2 pakkar hollar pakkasúpur úr heilsubúð
t.d. sveppasúpa eða kartöflusúpa
1 lítri vatn (gæti þurft aðeins meira)
10 g þurrkaðir sveppir, blandaðir
Smá klípa salt og pipar (sem má geyma í
litlum staukum eða pokum)
Þið þurfið pott fyrir u.þ.b. 2 lítra af
vökva
Aðferð:
Blandið súpunni út í kalt eða heitt vatn
samkvæmt leiðbeiningum og hrærið.
Brjótið þurrkuðu sveppina aðeins (eða
klippið í sundur) og setjið út í súpuna.
Látið suðuna koma upp og setjið þá núðl-
urnar út í og látið malla í um 7 mínútur.
Setjið meira vatn út í ef ykkur finst vanta
meiri vökva.
Kryddið með salti og pipar.
Berið fram og njótið úti í náttúrunni.
Nota má aðrar núðlutegundir en hrís-
grjónanúðlur, t.d. soba núðlur (úr bók-
hveiti) eða spelt spaghetti. Athugið þó að
suðutími gæti breyst eftir því hversu þykk-
ar núðlur þið notið.
Gott að hafa í huga
Fyrir kjötæturnar má taka smávegis af
rifnum, grilluðum kjúklingi eða öðru kjöti
til að henda út í súpuna.
Sojahakk hentar vel sem auka prótein
fyrir grænmetisætur.
Ég notaði sveppasúpu en hægt er að
kaupa fleiri bragðtegundir, t.d. tómatsúpu
eða kartöflusúpu. Þær eiga að vera án
aukaefna eða bragðefna. Kaupið helst líf-
rænt framleiddar súpur og úr heilsubúð.
Venjulegar pakkasúpur úr búð eru oft
hlaðnar alls kyns drasli svo ég kaupi þær
aldrei.
Útilegunúðluréttur
ÚTIVIST og hreyfing