Morgunblaðið - 30.07.2015, Síða 76
76
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. JÚLÍ 2015
Sæludagar um verslunarmannahelgina
– fyrir alla fjölskylduna
Frábær dagskrá:
Íþróttir fyrir alla
Vatnafjör
Hoppukastalar
Frábærar Vatnaskógar kvöldvökur
Leiksýningin Hafdís og Klemmi og leyndardómar háaloftsins
Tónleikar: Pétur Ben, Regína Ósk og Friðrik Ómar
Frábær tjaldstæði
(Án áfengis)
Enn er laust í nokkra viðburði:
Unglingaflokkur 4. - 9. ágúst.
- Fyrir unglinga 14 til 17 ára, bæði kyn
Gauraflokkur 10. -15. ágúst.
- Fyrir 10–12 ára drengi með athyglisbrest, ofvirkni og skyldar raskanir.
(Þarf að sækja um á www.kfum.is)
Feðgaflokkur 28. til 30. ágúst
- Fyrir feður og syni 7 ára og eldri.
Heilsudagar karla 4. til 6. september
- Fyrir karla 18 ára og eldri.
Skráning og nánari upplýsingar á www.kfum.is og í síma 588 8899
Þökkum frábæra þáttöku í sumar
Komdu á Sæludaga í Vatnaskógi um
Verslunarmannahelgina!
ÚTIVIST og hreyfing
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
S
umarið er annasamasti tími
ársins hjá Ólafi Vigfússyni í
Veiðihorninu. Stangveiði-
menn flykkjast að ám og
vötnum og reyna að fá laxinn eða
silunginn til að bíta á meðan skot-
veiðimennirnir undirbúa veiðiferðir
haustsins.
Ólafur segir að sumarið hafi þó
farið hægt af stað þetta árið og
skrifist það á kuldatíðina undan-
farnar vikur og mánuði. „Það var
kalt lengi framan af sumri og eru
sum vötnin upp til fjalla og heiða
núna fyrst að komast í vorbúning.
Þessa allra síðustu daga hefur
stangveiðin loksins farið almenni-
lega af stað og má tala um spreng-
ingu í lax- og silungsveiði.“
Þegar hrunið margumtalaða skall
á landsmönnum breyttust áhersl-
urnar hjá stangveiðifólkinu. Ólafur
segir að dregið hafi úr boðsferðum í
dýrar laxveiðiár og hinn almenni
veiðimaður leitað meira í ódýrari
silungsveiði. Hann segir það vera
mýtu að stangveiði verði að vera
dýr og að sportið sé varla nema á
færi forríkra manna og kvenna sem
ferðast helst ekki öðruvísi á milli
staða en með þyrlum. „Stangveiði-
menn eru upp til hópa bara venju-
legt íslenskt fólk,“ segir Ólafur og
bætir við að ef eitthvað sé hafi fjölg-
að í hópi stangveiðimanna á undan-
förnum árum. „Sennilegasta skýr-
ingin er að fólk hafi meiri tíma til að
sinna þessu áhugamáli eftir hrun,
en hafi um leið skorið niður útgjöld
eins og ferðalög til útlanda. Upp-
götvuðu Íslendingar þá hversu gam-
an það er að halda af stað með tjald
og veiðistöng og verja nokkrum
dögum við vatn á friðsælum stað og
reyna að landa nokkrum silungum.
Sé ég það í versluninni hve nýlið-
unin er mikil og ófáir ungir veiði-
menn að koma inn í sportið.“
Mikil aukning milli ára
Nú virðist kreppan loks komin í
baksýnisspegilinn og segir Ólafur
að megi greina merki þess að fleiri
láti eftir sér að kaupa dýrustu veiði-
leyfin. Boðsferðirnar frægu heyri þó
enn til undantekninga. „Það hefur
líka orðið mikil aukning í sölu á
vandaðri veiðibúnaði og sölu á veiði-
varningi almennt. Erum við hér hjá
Veiðihorninu að sjá um 30% aukn-
ingu flesta mánuði ársins miðað við
sömu mánuði í fyrra.“
Að sögn Ólafs eru mun fleiri sem
stunda stangveiði en skotveiði. Má
áætla að virkir skotveiðimenn séu á
bilinu 6-7.000 talsins en að ár hvert
prófi um 80.000 Íslendingar að veiða
á stöng. Segir hann að síst hafi
dregið úr ástundun skotveiðimanna
undanfarin ár en umgjörðin utan
um veiðarnar sé að taka áhugaverð-
um breytingum:
„Við sjáum verða til smáfyrirtæki
í kringum veiðisvæðin þar sem
heimamönnum og ferðamönnum er
leigður aðgangur að svæðinu með
skipulegum hætti. Þetta er nýleg
þróun og fyrir aðeins örfáum árum
var fyrirkomulagið víðast hvar
þannig að maður einfaldlega bank-
aði upp á hjá bónda og þurfti
kannski ekki annað en að vera með
viskípela meðferðis til að fá leyfi til
að skjóta.“
Eftir situr að Ísland er mikið
veiðisamfélag miðað við önnur lönd.
Segir Ólafur að úti í heimi, þar sem
fólk býr í stórum borgum, vilji það
gerast að tengslin við náttúruna
rofni og það kalli á löng ferðalög að
finna tún þar sem má veiða fugla
eða ár þar sem má veiða fiska. Á
meðan veiðimönnum fjölgar hér á
landi fer þeim fækkandi úti í heimi.
Á við tíu jógatíma
En hvað er það sem heillar svona
við sportið? Við fyrstu sýn gæti það
virst frekar leiðinlegt að standa úti í
á heilu dagana með vatnið upp að
mitti, bíðandi eftir að laxinn bíti, eða
liggja hreyfingarlaus í leyni, kall-
andi á grunlausar gæsir. Ólafur seg-
ir að fyrir marga skipti bráðin sjálf
mestu, enda er nýveiddur lax eða
nýskotin gæs herramannsmatur.
„Veiðimannseðlið leynist í okkur öll-
um, þó það sé misdjúpt á því. Þeir
sem fá að nálgast þetta veiðigen aft-
ur, þeir skilja fljótt út á hvað þetta
sport gengur. Sumir stunda veið-
arnar eins og keppnisíþrótt og
keppa bæði við sjálfa sig og veiði-
félagana og koma ekki ánægðir
heim nema með troðfulla poka af
fiski eða fugli, eða troðfulla mynda-
vél af slepptum laxi og myndirnar
fara svo rakleiðis inn á Facebook.“
Sjálfur segist Ólafur upplifa mik-
ið frelsi þegar hann er við veiðar úti
í óspilltri náttúrunni. „Sérstaklega
ef ég er einn, í þögninni, umvafinn
lyktinni af gróðrinum. Það jafnast á
við tíu jógatíma að hlusta á árniðinn
og maður hreinsast allur að innan.“
Veiðieðlið býr í okkur öllum
Íslendingar eru þjóð stang- og skotveiði-
manna og ef eitthvað er hefur veiðimönnum
fjölgað undanfarin ár, þrátt fyrir kreppuna
Morgunblaðið/Eggert
Uppgangur Ólafur segir söluna aukast mjög á milli ára þó að stangveiðin hafi farið hægt af stað þetta sumarið.
Reglulega bætast spennandi nýj-
ungar við úrvalið hjá Veiðihorn-
inu. Ólafur segir að ein merki-
legasta þróunin í stangveiðinni
sé ný efnablanda sem minnki
hliðartitringinn í stönginni svo
að auðvelt verður að kasta lín-
unni af mikilli nákvæmni. „Er
um að ræða efni sem byggist á
þróunarvinnu Boeing í Banda-
ríkjunum og hefur aldrei verið
auðveldara að punktakasta. Ef
fiskurinn leynist á litlum reit í
ánni er hægt að koma flugunni á
hárréttan stað.“
Önnur skemmtileg græja er
Waterwolf-myndavélin. „Hún er
eins aðrar sportmyndavélar, á
borð við Go-Pro, en hönnuð til að
vera vatnsheld og þola að vera
fest við línu og kastað út í vatnið.
Svo má hengja spún eða orm
neðan í myndavélina og taka upp
þegar fiskurinn bítur á agnið.“
Ólafur vill líka vekja sérstaka
athygli á Faðmi sem er íslensk
hönnun og framleiðsla. „Faðmur
er armband sem hefur að geyma
málband og er fest um úlnliðinn
með segulstáli. Víða er ekki
leyfilegt að vigta fiskinn og
mæla menn því stærðina í senti-
metrum frekar en í pundum áður
en þeir sleppa. Með Faðmi þarf
bara að halda um sporðinn og
svo draga fram málbandið. Ligg-
ur þá stærðin fyrir og hægt að
sleppa fiskinum lausum.“
Í skotveiðideildinni má síðan
finna nýja útfærslu af tálfuglum
sem eru léttir og samanbrjót-
anlegir og mun meðfærilegri en
stóru plastfuglarnir. „Nýju tál-
fuglarnir pakkast mjög vel og
eru með stillanlegan háls svo að
hægt er að láta líta út eins og
fuglinn sé að bíta gras eða sé á
verði.“
Miklar framfarir í
veiðistöngum