Morgunblaðið - 30.07.2015, Page 85

Morgunblaðið - 30.07.2015, Page 85
MINNINGAR 85 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. JÚLÍ 2015 hægt er, elsku Katrín, og halda fast í allar góðu minningarnar um okkar yndislegu frænku. Við elskum þig. Vilhjálmur Árnason og Sigurlaug Pétursdóttir. Hér situr maður hálf annars hugar og hugsar um þetta und- arlega líf. Katrín Ólöf, svilkona mín, farin, svo ung frá drengj- um sínum og eiginmanni, Þór- ólfi, sem hún átti að frá 16 ára aldri. Hvernig má þetta vera allt saman? Hver er tilgangur- inn? Þetta eru svo stórar spurn- ingar að það er ekki hægt að upphugsa nein skynsamleg svör. Ég finn ró í því að trúa að við munum sameinast öll að nýju og að það sé eitthvað sem okkur á þessari jörð er ekki gefið að skilja að svo stöddu. Eina sem við getum gert í stöðunni er að halda áfram lífi okkar á meðan það varir og spila rétt úr þeim spilum sem okkur voru gefin. Katrín var með afburðum jarðbundin og dugleg kona. Æðruleysi hennar er varla hægt að lýsa með orðum. Hún spjall- aði um veikindi sín í stóískri ró og sagði að svona væri þetta bara, tölfræðin væri ekki beint henni í hag. Aldrei fann ég örla á reiði eða að hún fyndi fyrir óréttlæti í sinn garð. Það var hreint ótrúlegt að vitna þessa yfirvegun, allt til dauðadags hennar. Hún á ekki langt að sækja yfirvegunina því foreldr- ar hennar, Böðvar og Gestný, hafa staðið við hlið hennar og fjölskyldunnar eins og klettar með æðruleysið að vopni. Nú er dóttir þeirra farin en Katrín skildi eftir sig tvo yndislega drengi sem verða ljósin sem lýsa í myrkrinu. Þórólfur hefur alla tíð stutt Katrínu dyggilega og í veikind- unum stóðu þau mjög þétt sam- an og nutu hvers dags sem kostur var. Katrín, Þórólfur og drengirnir hafa átt marga góða að á þessu ári. Foreldrar Katr- ínar og tengdamamma stóðu vaktina með fjölskyldunni dag og nótt frá upphafi og aðrir stóðu fast á hliðarlínunni. Fjöl- skyldan er þétt með þetta fólk í forystunni. Hvíl í friði elsku Katrín. Sonja B. Guðfinnsdóttir. Í dag verður Katrín frænka borin til grafar eftir snögg og erfið veikindi. Katrín var að læra heimilislækningar. Hún var yndisleg eiginkona Þórólfs og yndisleg mamma Matthíasar og Benedikts. Þau náðu að gifta sig í apríl. Við kveðjum elsku Katrínu með þessu versi: Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. ... (Vald. Briem) Elsku Þórólfur, Matthías, Benedikt, Gestný, Böðvar, Sig- urjón, Inga Þórunn og Þor- steinn, megi góður Guð vera með ykkur á þessum erfiðu tím- um. Ykkar frænkur, Alda og Bára. Þegar móðir tveggja ungra barna er hrifin á brott í blóma lífsins, þá hugsum við eðlilega um það hve lífið getur verið óréttlátt. Vinátta okkar við Gestnýju og Böðvar, foreldra Katrínar Ólafar hófst á náms- árunum og í heil sex ár að loknu námi bjuggu svo fjölskyldurnar hlið við hlið, fyrst tvö ár á Blönduósi og svo fjögur í Väst- erås í Svíþjóð. Á þessum árum skapaðist vinátta milli Katrínar og barnanna okkar, Þóru og Heimis, og nándin við þessa góðu vini var okkur öllum dýr- mæt og gefandi. Eftir Svíþjóð- arárin varð langt á milli heim- ilanna en vináttan óbreytt og alltaf jafn notalegt að hittast og upplifa óskilyrta tryggð þeirra, nokkuð sem yngri börn okkar, Birna og Ragnar, hafa notið. Eins og pabbinn, þá valdi Katr- ín sér læknisfræði sem lífsstarf. Hún flutti ásamt manni sínum og tveimur ungum sonum þeirra á bernskuslóðirnar í Svíþjóð og lagði þar stund á sérnám í heimilislækningum. Símtalið frá Böðvari í desember síðastliðn- um þegar hann sagði okkur að Katrín væri alvarlega og mikið veik gleymist seint. Meðferð gaf henni um nokkrun tíma talsvert skárri líðan og við höfum skynj- að hvernig fjölskyldan öll hefur með samheldni og æðruleysi meðvitað nýtt hann vel til sam- veru og samskipta. Við trúum því að það muni nú reynast hjálplegt við að takast á við hinn mikla missi. Þórólfi, eiginmanni Katrínar, sonum þeirra, Matthíasi Erni og Benedikt Arnóri, Sigurjóni bróður Katrínar, Böðvari og Gestnýju og öðrum aðstandend- um vottum við okkar innileg- ustu samúð. Guð blessi minn- ingu Katrínar Ólafar. Pétur, Ólöf (Lolla), Birna, Ragnar, Þóra og fjölskylda, Heimir og fjölskylda. Það má segja að í hverjum vinahópi hafi hver og einn vinur ákveðið hlutverk, ákveðna færni, ákveðið skap, og þegar blandan er rétt verður úr sterk- ur vinahópur sem stendur sam- an í gegnum súrt og sætt. Þann- ig varð okkar hópur þegar við kynntumst Katrínu. Við Solla, Halla, Björg, Anna og Berglind höfðum allar þekkst frá því í grunnskóla en á 17. ári drógu tvær okkar stelpu úr handboltanum með í hitting. Á þeirri stundu, eins áreynslulaust og dagur rennur við nótt eða alda dansar við strönd, varð Katrín besta vinkona okkar. Við vorum allar hugfangnar af henni frá fyrsta hittingi og ræð- um oft að það sé eins og hún hafi verið vinkona okkar frá því að við vorum 7 ára. Hún var púslið sem vantaði til að full- móta myndina okkar. Katrín var sú okkar sem var laus við allt drama. Það kom sér gríðarlega vel í hópnum þar sem við áttum það til að leyfa prófkvíða, kærastamálum eða meðgönguáhyggjum að heltaka okkur. En sérstaklega kom það sér vel á ögurstundum eins og þegar hluti hópsins fór á Tóm- atahátíðina á Spáni og festist inni í þvögunni og varð mjög svartsýnn á að snúa nokkru sinni út úr tómataflóðinu, eða finna þurfti rétta útganginn af risavöxnu evrópsku hringtorgi og enginn vissi hvar hann var. Já, Katrín hélt sko kúlinu og vísaði veginn. Katrín erfði hina víðfrægu Holtagerðis-gestrisni sem til dæmis leiddi af sér að við erum allar farnar að mæta í stórfjöl- skylduboð til Gestnýjar og Böðvars á aðfangadag, örkuðum Fimmvörðuháls með engum fyr- irvara en þó með þriggja rétta máltíð og gistingu í fellihýsi fjöl- skyldunnar síðasta sumar, og sátum ótal boð á heimili þeirra Tóta. Það sem okkur þótti svo vænt um var að Katrín kom alltaf til dyranna eins og hún var klædd og við máttum vita það að hver einasta skoðun, hvert einasta ráð og hvert einasta heilræði var alltaf heiðarlegt og yfirleitt byggt á mikilli rökhugsun. Hún var kletturinn okkar og við byggjum svo margar meginregl- ur í okkar lífi á ráðum Katrínar, og viðurkennum það hérmeð að nú pissum við allar á almenn- ingssalernum án þess að óttast smit – Katrín sagði að það væri í lagi. Það má segja að við höfum lifað lífi okkar saman, þroskast saman, upplifað stór og lítil augnablik saman: Við fylgdum Katrínu á ballið þar sem hún og Tóti áttu fyrsta kossinn, við lærðum saman á Bókhlöðunni, við útskrifuðumst, urðum vinn- andi konur, urðum mömmur, ferðuðumst saman, hlógum saman, grétum saman. Þvílíkt líf. Þvílík vinátta. Nú þegar elsku vinkona okk- ar hafur kvatt okkur allt of snemma og púslið vantar á ný, fyllum við út í myndina með einstökum minningum af stór- fenglegri vináttu, samveru með yndislegu strákunum hennar – og bara fjölskyldu hennar allri, og öllu því sem hún kenndi okk- ur allt þar til hún kvaddi. Elsku Tóti, Matthías og Benedikt. Við vinirnir erum hér fyrir ykkur alltaf. Ykkar, Björg, Sólveig, Hallfríður, Anna og Berglind. Eins og oft vill verða hjá fólki sem flytur milli landa myndast ákveðin tengsl við aðra í svipaðri stöðu. Hjá okkur í heimilislæknahópnum í Väste- rås gerðist það eitthvað svo sjálfkrafa að einstaklega góð samheldni myndaðist og úr varð ein stór fjölskylda að heiman sem hefur átt margar góðar stundir saman síðustu árin. Nú kveðjum við elsku Katrínu okk- ar með miklum söknuði. Hún var yndisleg manneskja á allan hátt sem var gaman að um- gangast og gott að tala við, hafði þægilega nærveru, var skemmtileg og góð í gegn. Ein- faldlega ein af þeim sem gerir heiminn betri. Engin ein leið er rétt, hvað þá auðveld, að takast á við það að fá lífshættulegan sjúkdóm en við getum ekki annað en dáðst að því hvernig Katrín og fjöl- skylda hennar gerðu það af miklu hugrekki og æðruleysi. Við erum þakklát fyrir að hafa fengið að kynnast Katrínu og fyrir þann tíma sem við fengum með henni þó hann hafi verið allt of stuttur. Lífið heldur áfram um sinn og Katrín Ólöf Böðvarsdóttir mun ávallt eiga sinn örugga sess í huga okkar og hjörtum. Tóta, Matthíasi, Benedikt, foreldrum Katrínar, bróður og öðrum aðstandendum vottum við okkar dýpstu samúð. Gunnþórunn, Geir, Steinar, Elín, Tryggvi, Þorbjörg og börn. Það er erfitt að setjast niður og skrifa minningargrein um hana Katrínu okkar sem fór allt of fljótt frá fjölskyldu sinni og vinum. Katrín byrjaði að vinna með okkur í Blönduvirkjun sumarið 1996. Hún var yndisleg vinkona, yfirveguð, brosmild og með fallega nærveru. Hún var til í fjörið og féll strax inn í hóp- inn. Katrín var með góða út- geislun sem smitaði frá sér. Til dæmis þegar hún sá einhverja í pásu í vinnunni kallaði hún ávallt „farðu að vinna,“ en þetta kallaði hún með sérstökum tón og glettni sem kom öllum í gott skap. Við munum minnast Katr- ínar sem skemmtilegs, góðs og trausts vinar. Hópurinn var samheldinn og gerði ýmislegt saman. Spiluðum mikið, stund- uðum sveitaböllin í Miðgarði og fórum í skemmtilegustu útileg- urnar og vorum öfundaðar af öðrum krökkum sem ekki voru í Blöndugenginu. Blönduvirkjun- arárin voru yndislegur tími og þar urðu til frábærar minning- ar, ævilöng vinasambönd og nokkur hjónabönd, þar á meðal Katrínar og Tóta. Við erum svo þakklát fyrir þennan tíma. Hvíldu í friði elsku Katrín og takk fyrir vináttuna í gegnum árin. Elsku Tóti, Matthías Örn, Benedikt Arnór og fjölskyldur, við sendum okkar innilegustu samúðarkveðjur og megi guð gefa ykkur styrk á þessum erf- iðu tímum. Hugur okkar er hjá ykkur öllum. Fyrir hönd samstarfsfélaga Katrínar og Tóta í Blönduvirkj- un sumrin 1996 og 1997, Halla Hrund, Halla og Arndís. Ein af okkur er nú fallin frá. Ung kona í blóma lífsins. Svo ótal mörg verkefni sem hún mun aldrei fá tækifæri til þess að ljúka eða takast á við. Ást- vinir skildir eftir í sorg. Óraunveruleikatilfinning hellist yfir á sama tíma og ískaldur raunveruleikinn blasir því miður við. Reiði, vanmátt- arkennd og sorg heltaka og gera veröldina svarta. En síðan, inn á milli, brjóta ljósgeislar sér leið í gegnum myrkrið. Bjartar og fallegar minningar um dásamlega konu lýsa upp veröldina að nýju. Þakklæti og stolt yfir að hafa fengið að vera henni samferða, þó ferðin hafi verið stutt. Minn- ingar um afrekin sem hún náði að ljúka á meðan hún lifði. Vönduð, yfirveguð, gáfuð, skemmtileg, hugrökk, sterk og góð eru lýsingarorð sem koma upp í hugann og lýsa Katrínu vel. Konu sem hugsaði áður en hún talaði, hugsaði áður en framkvæmdi. Baráttukonu sem gafst ekki upp þrátt fyrir kröft- ugan mótvind. Þessir eiginleik- ar gerðu hana að einstökum lækni, einstakri manneskju. Missirinn er því mikill. Við höfum misst ástkæran kollega og vinkonu. Skjólstæðingar hennar hafa misst dýrmætan lækni. Mestur er þó missirinn fyrir fjölskyldu hennar, litlu drengina hennar tvo, eigin- mann, foreldra og bróður. Til þeirra sendum við okkar dýpstu samúðarkveðjur. Elsku Tóti, Matthías, Benedikt, Gestný, Böðvar og Sigurjón. Við óskum þess að þið öðlist styrk til þess að takast á við sorgina og að minningarnar muni lýsa skugga ykkar. Til elsku Katrínar: Þú snertir hjörtu okkar. Við munum sakna þín. Hvíl í friði kæra vinkona. Fyrir hönd félaga þinna úr sér- námi í heimilislækningum, Sigurbjörg Ólafsdóttir. Elskuleg móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma, BIRNA ÞÓRLINDSDÓTTIR, Safamýri 83, Reykjavík, sem lést á Landakoti föstudaginn 24. júlí, verður jarðsungin frá Árbæjarkirkju föstudaginn 31. júlí kl. 13. . Gunnar Þór Guðmannsson, Sigrún A. Jónsdóttir, Björn Þór Gunnarsson, Helga Elíasdóttir, Katrín Ösp Gunnarsdóttir og barnabarnabarn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð, vináttu og hlýhug vegna andláts og útfarar MARGRÉTAR BJÖRNSDÓTTUR, Neskaupstað. . Már Sveinsson, Ingvar Másson, Sigurður Másson, Sveina María Másdóttir. Þökkum innilega hlýhug og samúð vegna andláts okkar elskulega ÍSLEIFS SUMARLIÐASONAR. . Sigurlaug Jónsdóttir og fjölskylda. HANNES PÁLSSON bankamaður, Sólheimum 42, Reykjavík, lést fimmtudaginn 23. júlí. Útförin fer fram frá Langholtskirkju miðvikudaginn 5. ágúst kl. 13. . Guðrún Hannesdóttir, Þorbjörn Broddason, Kristín Hannesdóttir, Nicholas Groves-Raines, Halla Hannesdóttir, Vífill Magnússon, Páll H. Hannesson, Liv Jorunn Seljevoll, Pétur H. Hannesson, Erla Dís Axelsdóttir og fjölskyldur. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, dóttir, systir og mágkona, BRYNJA BRAGADÓTTIR, doktor í vinnusálfræði, varð bráðkvödd á heimili sínu, Huldulandi 20, laugardaginn 25. júlí. Útförin fer fram frá Bústaðakirkju föstudaginn 7. ágúst kl. 13. . Ragnar Kristinsson, Inga Björk Ragnarsdóttir, Valgerður Ragnarsdóttir, Inga Björk Sveinsdóttir, Bragi Sigurþórsson, Sólrún Bragadóttir, Þórdís Bragadóttir, Þorbjörn Guðjónsson, Friðrik Bragason, María Guðmundsdóttir. Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GUNNAR RUNÓLFSSON rafvirkjameistari, andaðist á hjúkrunarheimilinu Sóltúni sunnudaginn 26. júlí. Útförin fer fram frá Dómkirkjunni miðvikudaginn 5. ágúst kl. 15. Þeim sem vilja minnast hans er bent á að láta hjúkrunarheimilið Sóltún njóta þess. . Ingibjörg Elíasdóttir, Elías Gunnarsson, Ingunn Sæmundsdóttir, Þórdís Gunnarsdóttir, Guðrún Gunnarsdóttir, Jakob Þór Pétursson. Ástkær bróðir okkar, mágur og frændi, ÞORSTEINN BERGÞÓRSSON olíubílstjóri, Stekkjarholti 7, Ólafsvík, sem lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akranesi 27. júlí, verður jarðsunginn frá Ólafsvíkurkirkju laugardaginn 1. ágúst kl. 14. Fyrir hönd annarra ástvina, . Jóhanna Bergþórsdóttir, Guðmundur Bergþórsson, Matth.Kristrún Friðjónsdóttir, Ásdís U. Bergþórsdóttir, Helgi Kr. Gunnarsson, Hrönn Bergþórsdóttir, Björgvin Ármannsson, Freyja E. Bergþórsdóttir, Þórarinn Hilmarsson, Björk Bergþórsdóttir, Guðni Sigurðsson, Aron K. Bergþórsson, Kristín B. Karlsdóttir.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.