Morgunblaðið - 30.07.2015, Síða 93
var komið á koppinn, hef sinnt þar
öllum þeim störfum sem fyrirtækið
hefur upp á að bjóða og unnið þar
alla mína tíð. Auk þess starfa ég þar
með systkinum mínum.“
Getur ekki verið svolítið erfitt að
reka fyrirtæki með systkinum sín-
um? „Ég veit það ekki. Það hefur
aldrei verið erfitt hjá okkur. Hér
hefur allt gengið eins og smurð vél
og samstarf okkar draumi líkast. Ég
held að pabbi hafi svolítið lagt þess-
ar línur, kennt okkur að taka tillit og
virða hvert annað.
Fyrirtækið sér um alhliða þjón-
ustu í glervinnslu og var á sínum
tíma brautryðjandi í gerð tvöfalds
glers í gluggum eins þau tíðkast í
dag. Við vorum fyrst til húsa í Skeif-
unni en fluttum síðan í Smiðju-
hverfið í Kópavogi og vorum meðal
frumbyggja þar. Fyrirtækið hefur
vaxið hægt og bítandi en sígandi
lukka er best. Nú starfa hjá fyr-
irtækinu um 30 manns.“ .
Guðmundur er ekki einn um það
að hafa fyrst og fremst áhuga á fjöl-
skyldu sinni og starfinu: „Við hjónin
erum bæði mikið fjölskyldufólk
enda eigum við fimm börn, 11
barnabörn og eitt barnabarnabarn.
Ekkert er dýrmætara en samveran
með þessum stóra og góða hópi.
Við höfum verið að byggja okkur
hús austur í sveit með aðstoð góðra
manna nú að undanförnu og höfum
haft mikla ánægju af því. Við gætum
vel hugsað okkur að flytja þangað á
einhverjum tímapunkti. Kannski að
maður setjist í helgan stein fyrir
austan.“
Fjölskylda
Eiginkona Guðmundar er Hrafn-
hildur Proppé, f. 20.6. 1952, flug-
freyja. Foreldrar hennar voru Guð-
rún Hulda Gísladóttir Proppé, f.
28.8. 1917, d. 27.12. 1980, húsfeyja,
og Óttarr Ólafsson Proppé, f. 19.2.
1916, d. 6.12. 2007, forstjóri P. Árna-
son & Proppé.
Fyrri kona Guðmundar er Evelyn
West, f. 3.4. 1955, búsett í Berlín.
Börn Guðmundar og Evelyn eru
Oddný Marie Guðmundsdóttir, f.
11.11. 1976, verktaki hjá Sinnun, bú-
sett í Kópavogi; Marta Jane Guð-
mundsdóttir, f. 25.12. 1976, starfs-
maður hjá Pennanum, búsett í
Hafnarfirði, og Grímur Guðmunds-
son, f. 22.7. 1981, starfsmaður tölvu-
deild Þórs í Ármúla, kvæntur Anetu
Kusz leikskólakennara. Dætur
Hrafnhildar og fósturdætur Guð-
mundar eru Hulda Dögg Proppé, f.
20.3. 1979, kennari, búsett í Reykja-
vík, gift Jóhanni Garðari Ólafssyni
(Gassa) ljósmyndara, og Tinna
Hrönn Proppé, f. 15.10. 1981, starfs-
maður hjá Eddu USA, í sambúð
með Axel Ólafi Þórhannessyni,
þjálfara hjá Gerplu.
Barnabörnin eru Aníta Björk, f.
1991, Guðmundur Óli, f. 1994, Elín
Sigurbjört, f. 1998, Óttarr Daði, f.
2002, Róbert Aron, f. 2004, Hrafn-
kell Orri, f. 2005, Alexander, f. 2007,
Hallur Hrafn, f. 2007, Viktor, f.
2010, Ísabella, f. 2014, Úlfhildur
Nanna, f. 2014, en langafabarn Guð-
mundar er Oliver Bjarki Anítuson, f.
2011.
Systkini Guðmundar eru Finnur
Grímsson, f. 12.1. 1957, framleiðslu-
stjóri Íspan, búsettur í Kópavogi;
Elín Grímsdóttir, f. 13.9. 1959,
launafulltrúi hjá Íspan.
Hálfbróðir Guðmundar, sam-
mæðra, er Jón Elvar, f. 11.11. 1946,
starfsmaður hjá Íspan, búsettur í
Kópavogi.
Hálfsystkini Guðmundar, sam-
feðra, eru Óskar Smith Grímsson, f.
30.4. 1945, kjötiðnaðarmaður á
Sauðárkróki, og Margrét Gríms-
dóttir, f. 26.7. 1957, búsett í Dan-
mörku.
Foreldrar Guðmundar voru Elín
Sigurbjört Sæmundsdóttir, f. 10.9.
1922, d. 10.1. 2009, og Grímur Guð-
mundsson, f. 15.8. 1925, d. 27.11.
2011, stofnandi og forstjóri Íspan.
Úr frændgarði Guðmundar Grímssonar
Guðmundur
Grímsson
Sigríður Ingibjörg Ólafsdóttir
vinnuk. á Lækjarbotnum og húsfr. í Rvík
Grímur Gunnlaugsson
b. á Nauthól og búsettur
í Hlíðarhúsum í Rvík
Guðmundur Grímsson
fisksali í Rvík
Guðmundína Oddsdóttir
húsfr. í Rvík
Grímur Guðmundsson
forstj. í Kópavogi
Oddur Þórarinsson
vinnum. í Sjóbúð í Rvík
Eggrún Eggertsdóttir
húsfr. í Hólsbæ í Grjótaþorpi
og víðar í Rvík
Bjarni Þorsteinsson
húsm. á Herjólfsstöðum
Sæmundur Bjarnason
b. í Sólheimakoti og Eyjahólum
Oddný Runólfsdóttir
húsfr í Sólheimakoti og Eyjahólum
Elín Sigurbjört Sæmundsdóttir
húsfr. í Kópavogi
Guðný Ólafsdóttir
húsfr. á Suður-Fossi
Finnur Ingólfsson fyrrv.
alþm., ráðh. og bankastj.
Seðlabankans
Ingólfur Sæmundsson
skrifstofum. hjá
KS í Vík
Elín Hirst
alþm
Valdís
Vilhjálms-
dóttir fyrrv.
bankafulltr
Vilhjálmur
Bjarnason
stofandi
og forstj.
Kassagerðar
Rvíkur
Bjarni
Pálsson
b. á Herjólfs-
stöðum
Kristín
Bárðardóttir
húsfr. á Jórvíkur-
hryggjum í
Álftaveri
Margrét Bárðardóttir
vinnuk. í Suður-Hvammi
Einar Runólfsson
verkam. í Rvík
Þorleifur Einarsson
jarðfræðingur
Runólfur Runólfsson
b. á Suður-Fossi í Mýrdal
ÍSLENDINGAR 93
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. JÚLÍ 2015
Benedikt fæddist á Sörlastöð-um í Fnjóskadal 30.7. 1800.Foreldrar hans voru Þórður
Pálsson, bóndi á Kjarna í Eyjafirði
og ættfaðir hinnar þekktu Kjarna-
ættar, og k.h., Björg Halldórsdóttir
húsfreyja, dóttir Halldórs Björns-
sonar að Hólshúsum.
Eiginkona Benedikts var Ingveld-
ur Stefánsdóttir húsfreyja, dóttir
Stefáns Benediktsson, prests í
Hjarðarholti, og Ingveldar Boga-
dóttur húsfreyju.
Börn Benedikts og Ingveldar sem
upp komust voru Stefán Benedikts-
son, trésmiður á Hóli í Tálknafirði,
Ingveldur Benediktsdóttir,
prestsfrú á Stað í Aðalvík, og Lárus
Benediktsson, prestur í Selárdal.
Benedikt var orðinn fullorðinn er
hann hóf nám undir skóla hjá séra
Árna Halldórssyni í Auðbrekku,
móðurbróður sínum. Hann lauk
stúdentsprófi frá Bessastaðaskóla
árið 1833.
Benedikt var við verslunarstörf
hjá H.A. Clausen í Ólafsvík síðustu
tvö sumrin fyrir stúdentspróf og var
við verslunarstörf í Reykjavík hjá
Sigurði Sívertsen 1833-35.
Benedikt fékk Staðarprestakall á
Snæfjallaströnd 1835, var prestur í
Garpsdal frá 1843, fékk Kvenna-
brekku í Dölum í skiptum við séra
Bjarna Eggertsson árið 1844, var
prestur á Brjánslæk frá 1848 og í
Selárdal frá 1863. Hann gegndi jafn-
framt Otraprestakalli um skeið frá
1864, tók séra Lárus, son sinn, sem
aðstoðarprest í Selárdal 1866, lét af
prestskap 1873 en bjó í Selárdal til
æviloka.
Benedikt var alþingismaður á ár-
unum 1861-64.
Eftir Benedikt eru Helgidaga-
sálmar, óprentaðir Hugvekjusálmar
og ýmsir söngtextar í handritum.
Hann safnaði og skráði margar þjóð-
sögur sem birtust í Þjóðsögum Jóns
Árnasonar.
Í Íslenzkum æviskrám stendur
meðal annars um Benedikt: „Hann
var vel gefinn, góður kennimaður,
prúðmenni, verklaginn og bú-
sýslumaður, og þó kona hans meir.“
Benedikt lést 9.12. 1882.
Merkir Íslendingar
Benedikt
Þórðarson
101 ára
Margrét Þórarinsdóttir
90 ára
Einar Guðmundsson
Ester Sigurjónsdóttir
Kristín Magnúsdóttir
Ólöf Steinunn Einarsdóttir
Páll Janus Pálsson
85 ára
Guðrún Emilsdóttir
Ragnar Sigfússon
80 ára
Guðlín Linnet
Halldóra Jónsdóttir
Ragnheiður Stefánsdóttir
Þóra Guðrún Marinósdóttir
75 ára
Ingibjörg Egilsdóttir
Páll Skúlason
Reynir Davíðsson
70 ára
Árni Marinósson
Elsa Baldursdóttir
Grétar Sigurðarson
Kristín Ragnarsdóttir
Rósa Guðrún Bjarnadóttir
60 ára
Ásdís Geirsdóttir
Ingi Brynjar Erlingsson
Jens Uwe Friðriksson
Kolbrún Linda
Haraldsdóttir
Premrudee Pengsuk
50 ára
Ásmundur Jósef Pálmason
Freyja Margrét
Sigurðardóttir
Guðmundur H.
Kristjánsson
Guðrún Ólöf
Sumarliðadóttir
Haraldur Pálsson
Ingi Geir Sveinsson
Ingólfur Arnarson
Malgorzata Elzbieta
Dabrowska
Ólafur Björn Baldursson
Ragnheiður Júlíusdóttir
Sigurrós Ósk Karlsdóttir
Valur Örn Gíslason
Örvar Þór Einarsson
40 ára
Anna Linda Magnúsdóttir
Arnar Bill Gunnarsson
Arnheiður Jónsdóttir
Dariusz Stefan Golabek
Einar Kjartan Jónsson
Elías Þorsteinn Elíasson
Guðmundur Rúnar
Hallgrímsson
Hermann Páll Traustason
Jóna Hrund Óskarsdóttir
Rósa Guðmundsdóttir
Sólborg Sigurrós
Borgarsdóttir
Sólveig Þórarinsdóttir
Uldis Ozols
Ösp Jónsdóttir
30 ára
Birgir Örn Ragnarsson
Egill Þorsteinsson
Guðbergur Kristjánsson
Guðfinnur S. Jóhannsson
Guðrún Mikaelsdóttir
Hafdís Þóra Hafþórsdóttir
Kamil Konopelski
Karen E.S. Ingvadóttir
Kristín Rós Kristjánsdóttir
Margrét Þ. Fjeldsted
María Ósk Björgvinsdóttir
María Teresa D. Cruz
Hemmingsen
Silja Rós Sigurmonsdóttir
Simon Reher
Svenja Huck
Til hamingju með daginn
30 ára Íris Ósk ólst upp á
Akranesi, býr þar, hefur
stundað dansnám um
árabil og rekur Dans-
stúdíó Írisar á Akranesi.
Maki: Gísli Kristinn Gísla-
son, f. 1983, sjómaður.
Börn: Fróði Hrafn, f.
2008, og Aníta Dís, f.
2014.
Foreldrar: Einar Árnason,
f. 1965, starfar hjá Norð-
uráli á Grundartanga, og
Sigríður Hjartadóttir, f.
1969, d. 2014.
Íris Ósk
Einarsdóttir
30 ára Hlín býr í Reykja-
vík, lauk BA-prófi í fata-
hönnun frá LHÍ og rekur
hönnunarfyrirtækið Hlín
Reykdal.
Maki: Hallgrímur Stefán
Sigurðsson, f. 1975, verk-
fræðingur.
Börn: Stella Reykdal, f.
2009, og Stefanía Reyk-
dal, f. 2013.
Foreldrar: Jón Reykdal, f.
1945, d. 2013, og Jó-
hanna Þórðard., f. 1946.
Hlín
Reykdal
30 ára Herdís ólst upp í
Reykjavík, býr þar, lauk
prófi í tækniteiknun við
Tækniskólann og er að
fara í nám til Danmerkur.
Maki: Sigfús Heimisson,
f. 1982, knattspyrnuþjálf-
ari og háskólanemi.
Dætur: Þórdís Inga, f.
2010, og Margrét, f. 2013.
Foreldrar: Inga Þóra
Ingadóttir, f. 1968, náms-
ráðgjafi, og Svanur Haf-
steinsson, f. 1965, mat-
reiðslumaður.
Herdís Guðrún
Svansdóttir
Eikjuvogur 29 - 104 Rvk. S:694-7911
www.facebook.com/spennandi
Opið: Mán. - fim: 12 - 18 - (ath! lokað fös.31.07.)
Mama B - Haust 2015