Morgunblaðið - 30.07.2015, Qupperneq 104

Morgunblaðið - 30.07.2015, Qupperneq 104
104 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. JÚLÍ 2015 Kjartan Már Ómarsson kmo@mbl.is Í dag er opnun sýningarinnar Vænt- anlegt / Coming Soon í útibúi Ný- listasafnsins í Núllinu, Bankastræti 0. Hugsanlega er rýmið betur þekkt sem almenningssalerni fyrir kven- fólk en undanfarna mánuði hafa Nýló og Reykjavíkurborg unnið að endurbótum þess og umbreytt kvennaklósettinu í sýningarrými. Það var síðasta vetur sem Ný- listasafnið fékk sarlernið til afnota og hefur í hyggju að vera með fjöl- breytta dagskrá, innlendra jafnt sem erlendra listamanna, um óákveðinn tíma. Fyrsta sýningin á nýju klósetti Væntanleg er fyrsta sýningin sem haldin er í rýminu eftir að því var var breytt. Listamennirnir eiga það sameiginlegt að hafa allir útskrifast úr myndlist frá Listháskóla Íslands á síðasta ári og hafa unnið sameig- inlega áður. Þau eru Brynjar Helga- son, Ívar Glói Gunnarsson, Logi Leó Gunnarsson og Una Björg Magn- úsdóttir. Blaðamaður bað Unu að segja sér lítillega frá sýningunni sem verður opin fimmtudaga til sunnudaga frá kl. 14:00-18:00 til 30. ágúst. „Þetta er nýtt sýningarrými á vegum Nýlistasafnsins,“ segir Una. „Við erum fjögur sem útskrifuðumst saman árið 2014 og höfum sýnt sam- an áður, t.d. í Safnahúsinu í fyrra áð- ur en stóra sýningin, Sjónarhorn var opnuð.“ Hljóðverk áberandi Eruð þið öll að vinna með sama miðil? „Við vinnum þannig að það er eng- inn sérstakur miðill hjá neinum. Þetta er mikið unnið út frá skúlptúr og hljóði en er mjög ólíkt innbyrðis. Það er svo sem ekkert sérstakt þema í þessari sýningu, annað en að verkin virka vel saman. Hljóðverk verða hins vegar áberandi.“ Una segir Núllið vera frábært rými og mikla gæfu að kvennakló- settið hafi ekki verið gert upp líkt og var gert karlamegin. „Karlaklósett- inu var breytt einhvern tíma þannig að þar eru svona nýir plastbásar. Á kvennaklósettinu er hins vegar allt upprunalegt. Básarnir og flísarnar eru til að mynda friðuð. Þetta er mjög lítið og einfalt rými, en samt kemst maður ekki hjá því að upplifa sögu þess, bæði vegna staðsetning- arinnar og af því að það eru ennþá klósettbásar þarna inni, þó að það séu engin klósett.“ Hvernig gengur að setja upp sýn- ingu í friðuðu rými? Það gengur vel. Þetta er alls ekki truflandi. Það er náttúrlega búið að gera upp stóran part. En það gefur fremur af sér heldur en að skorða mann af. Þetta opnar frekar fyrir möguleika heldur en að skerða þá. Rýmið er fallegt. Það eru flísar upp til hálfs og þetta er allt hvítt, sem býður upp á möguleika.“ Öðruvísi fólk en vanalega Er þetta í fyrsta skipti sem rýmið er notað í þessum tilgangi? „Það var notað á Sequences- hátíðinni í vor undir en þá var ekki búið að gera upp rýmið. Þetta er í fyrsta skipti sem þetta er á vegum Nýló og eftir að rýmið var gert upp. Það er búið að taka allt í gegn“ Una ítrekar hversu sérstök stað- setningin á rýminu sé. „Nú er maður búinnn að verja svolitlum tíma þarna og maður finnur fyrir því hvað það er mikil nánd við fólk þarna. Maður heyrir í fólki þegar það gengur þarna um. Þetta er mjög sérstakur staður. Ég á von á að það komi margt öðruvísi fólk sem er ekki vant að leggja leið sína á listasöfn.“ Morgunblaðið/Eggert Listamenn Hópurinn útskrifaðist á síðasta ári frá Listaháskólanum. Hér er ró og hér er friður Morgunblaðið/Eggert Una Mikil nánd við fólk í rýminu, segir hún. Heyrir fólk ganga um. Morgunblaðið/Þórður Núllið Nú geta karlar farið niður báðum megin skammarlaust.  Sýningin Væntanlegt / Coming Soon opnuð í dag  Bankastræti núll breytt í sýningarrými  Fjórir listamenn sýna Paper Towns Margo (Cara Delevingne) hverfur skyndilega eftir að hafa farið með Quentin (Nat Wolff) í næturlangt ævintýr og nú er það á herðum Quentin að finna hana aftur. Metacritic 57/100 IMDB 7,1/10 Smárabíó 17.40, 20.00, 22.20 Háskólabíó 20.00, 22.20 Borgarbíó Akureyri 20.00 The Gallows 16 Tuttugu ár eru liðin síðan að maður lést í miðju leikriti. Nemendurnir koma nú sam- an til að setja leikritið upp á ný en það heppnast ekki sem skyldi. Metacritic 30/100 IMDB 4,6/10 Sambíóin Álfabakka 20.45, 22.45 Sambíóin Egilshöll 20.00 Sambíóin Kringlunni 22.30 Sambíóin Akureyri 22.45 Ant-Man 12 Scott Lang er vopnaður of- urgalla sem getur minnkað þann sem klæðist honum en aukið styrk hans um leið. Gallinn kemur sér vel þegar hjálpa þarf læriföðurnum að fremja rán og bjarga heim- inum. Metacritic 64/100 IMDB 8,0/10 Laugarásbíó 22.35 Sambíóin Álfabakka 15.00, 17.20, 20.00, 22.45 Sambíóin Egilshöll 17.30, 20.00, 22.30 Sambíóin Kringlunni 17.20, 20.00 Sambíóin Akureyri 20.00 Sambíóin Keflavík 22.30 Minions Skósveinarnir eru hér mætt- ir í eigin bíómynd. Í gegnum tíðina hafa þeir gegnt mik- ilvægu hlutverki, að þjóna metnaðarfyllstu skúrkum allra tíma, en eru nú orðnir þreyttir á nýja stjóra sínum. Metacritic 56/100 IMDB 6,8/10 Laugarásbíó 16.00, 18.00 Sambíóin Álfabakka 15.00, 18.40, 20.00 Smárabíó 15.30, 15.30, 17.50, 20.00 Háskólabíó 17.30 Borgarbíó Akureyri 18.00 Webcam 16 Lífið er afar frjálslegt hjá framhaldsskólastelpunni Rósalind en þegar hún fer að fækka fötum á Netinu breyt- ist allt. Morgunblaðið bbbnn Háskólabíó 17.30, 22.10 Magic Mike XXL 12 Mike og félagar setja upp eina sýningu í viðbót á Myrtle Beach, en þrjú ár eru liðin síðan Mike hætti í nekt- ardansinum. Metacritic 60/100 IMDB 6,3/10 Sambíóin Álfabakka 20.00, 22.45 Sambíóin Egilshöll 17.30, 19.00 Sambíóin Kringlunni 20.00 Ted 2 12 Kjaftfori og hressi bangsinn Ted er snúinn aftur. Morgunblaðið bbmnn Metacritic 48/100 IMDB 7,1/10 Laugarásbíó 22.15 Terminator: Genisys 12 Árið er 2009 og John Con- nor, leiðtogi uppreisnar- manna, er enn í stríði við vél- mennin. Morgunblaðið bbbnn Metacritic 39/100 IMDB 7,1/10 Sambíóin Álfabakka 22.10 Sambíóin Egilshöll 22.00 Inside Out Ung stúlka flytur á nýtt heimili og tilfinningar hennar fara í óreiðu. Metacritic 93/100 IMDB 8,8/10 Sambíóin Álfabakka 15.40, 17.50 Sambíóin Kringlunni 17.50 Sambíóin Akureyri 17.40 Jurassic World 12 Á eyjunni Isla Nublar hefur verið opnaður nýr garður, Jurassic World. Morgunblaðið bbbbn Metacritic 59/100 IMDB 7,6/10 Laugarásbíó 20.00 Sambíóin Álfabakka 17.20 Spy 12 Susan Cooper, CIA, er hug- myndasmiðurinn á bak við hættulegustu verkefni stofn- unarinnar. Morgunblaðið bbbmn Metacritic 84/100 IMDB 7,4/10 Smárabíó 22.10 Hrútar 12 Bræðurnir Gummi og Kiddi hafa ekki talast við áratug- um saman. Morgunblaðið bbbbm Metacritic 83/100 IMDB 8,2/10 Háskólabíó 17.30, 20.00 Bíó Paradís 20.00, 22.00 Citizenfour Bíó Paradís 17.45 Birdman Bíó Paradís 20.00 Fúsi Bíó Paradís 18.00 Vonarstræti Bíó Paradís 20.00 The New Girlfriend Bíó Paradís 22.15 Violette Bíó Paradís 17.00 Hross í oss Bíó Paradís 22.30 Upplýsingar og ábendingar sendist á netfangið bio@mbl.is Kvikmyndir bíóhúsanna Ethan og félagar taka að sér erfiðara verkefni en þeir hafa nokkru sinni áður tekið að sér. Nú þarf að uppræta Samtökin, alþjóðleg glæpasamtök, en vandinn er sá að Samtökin eru jafn hæf og þau. Laugarásbíó 17.00, 20.00, 22.35 Sambíóin Álfabakka 15.30, 17.00, 17.15, 20.00, 20.00, 22.45, 22.45 Sambíóin Egilshöll 17.20, 20.00, 21.30, 22.45 Sambíóin Kringlunni 18.00, 21.00, 22.30 Sambíóin Akureyri 17.15, 20.00, 22.45 Sambíóin Keflavík 20.00, 22.45 Smárabíó 17.00, 17.00, 20.00, 20.00, 22.45, 22.45 Mission: Impossible - Rogue Nation 12 Geimverur mistúlka myndbandsupptökur af sígildum tölvuleikjum úr spilakössum og líta á þær sem stríðsyfirlýsingu. Þær ákveða að ráðast á Jörðina og nota leikina sem fyr- irmyndir fyrir fjölbreyttum árásum. Metacritic 27/100 IMDB 5,3/10 Laugarásbíó 17.00 Sambíóin Keflavík 20.00 Smárabíó 15.30, 17.40, 20.00, 22.20 Háskólabíó 20.00, 22.20 Borgarbíó Akureyri 18.00, 22.20 Pixels Heimildamynd eftir Bafta verðlaunahafann Asif Kapadia um söng- konuna Amy Winehouse sem lést árið 2011. Í myndinni er sýnt áður óbirt myndefni og er reynt að segja harmræna sögu söngkon- unnar hæfileikaríku með hennar eigin orðum. Metacritic 85/100 IMDB 8,0/10 Háskólabíó 18.00, 21.00 Borgarbíó Akureyri 20.00, 22.00 Amy 12
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.