Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.09.2008, Blaðsíða 73
að sálmarnir væru meðal yngsta efnisins í Gamla testamentinu. Sumir hinna
áhrifamestu fræðimanna héldu því fram að sálmarnir væru jafnvel ekki eldri
en frá Makkabeatímanum.
Meðal þekktustu og áhrifamestu ritskýrenda frá þessu tímabili má nefna
Briggs (1906),4 Cheyne (1891),5 Duhm (1899),6 og Wellhausen (1898).7 8
Nálgun þessara fræðimanna einkenndist ekki síst af því að leitast var við
að tengja sálmana við ákveðna atburði í sögu ísraels á öldunum fyrir
Kristsburð.
Tengsl sálmanna við helgihald Hebrea til forna
Mikil þáttaskil verða síðan með rannsóknum og kenningum Hermanns
Gunkel, sem áður var getið, þar sem áherslan hvílir á flokkun og
formgreiningu sálmanna í ljósi uppruna þeirra í helgihaldi Hebrea í stað þess
að leita að ákveðnum sögulegum atburðum sem baksviði þeirra. Sigmund
Mowinckel (1886-1965), norskur nemandi Gunkels, varð til að skerpa
áhersluna ennfrekar á að uppruna sálmanna bæri að leita í helgihaldinu.
Þetta varð hið ríkjandi viðhorf um áratugaskeið. Jafnvel voru settar fram
kenningar um tengsl sálmanna við ákveðnar trúarhátíðir og í sumum
tilfellum voru kenningarnar meira að segja byggðar í kringum hátíðir
sem ekki eru beinlínis nefndar í Gamla testamentinu sjálfu. Má þar nefna
kenningu Mowinckels um krýningarhátíð Jahve, kenningu A. Weiser um
hátíð endurnýjunar sáttmálans og kenningu H-J. Kraus um Síonarhátíð.
Hér verður ekki dvalið frekar við þetta efni enda hef ég fjallað nokkuð um
það í Ritröð GuðfraðistofnunaT’ áður og það mörgum vel kunnugt. Þó að nú
um stundir séu aðrar áherslur í fræðunum þá er mjög fjarri mér að gera lítið
úr þeim umfangsmiklu rannsóknum sem fóru fram á tengslum sálmanna
við trúarlíf ísraels hins forna. Þær rannsóknir veittu mikilvæga innsýn i
4 Briggs, C. A. 1906: A Critical and Exegetical Commentary on the Book ofPsalms.
5 Cheyne, T. K. 1891: The Origin and Religious Contents ofthe Psalter in the Light of Old Testament
Criticism and the History of Religions.
6 Duhm, B. 1899: Die Psalmen.
7 Wellhausen, J. 1898: The Book ofPsalms.
8 Gunnlaugur A. Jónsson, 2004: „Lát mig skilja veg fyrirmæla þinna.“ Stiklað á stóru í rannsóknasögu
Saltarans. RitrtiS GuSfræðistofnunar 19, einkum s. 27-31.
71