Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.09.2008, Blaðsíða 151
fyrir trúarlegu uppeldi5 geti ekki talist í samræmi við sjónarmið þeirra
afhelgunarsinna sem lengi hafa haldið því fram að trúarbrögð séu víða að
líða undir lok og þjóðfélög á borð við Bretland séu nú orðin svo til afhelguð.
Ef Bretland væri raunverulega orðið afhelgað hefði Dawkins aldrei látið í
sér heyra um þessi málefni.6
Alister E. McGrath er meðal þeirra fræðimanna innan trúarbragðafræðanna
sem gagnrýnt hafa málflutning Dawkins hvað mest. McGrath er með
doktorsgráðu í sameindalífeðlisfræði frá Oxford háskóla í Bretlandi og
guðfræði frá sama skóla. Hann hefur um árabil verið prófessor í sögulegri
guðfræði við Oxford háskóla og hefur skrifað fjölda fræðirita um guðfræði
og vísindi sem sum hver hafa verið kennd til prófs við Guðfræðideild
Háskóla Islands. Meðal ritverka hans um guðleysi og trúarbragðagagnrýni
Dawkins eru bækurnar The Twilight ofAtheism: The Rise and Fall ofDisbelief
in the Modern World (2004), Dawkins’ God: Genes, Memes, and the Meaning
of Life (2005) og The Dawkins Delusion? Atheist Fundamentalism and the
Denial of the Divine (2007) en þá síðast nefndu skrifaði hann í samvinnu
við eiginkonu sína sem er lektor í trúarbragðasálfræði við Heythrop College
í London. Það er sú bók sem er hér til umfjöllunar en hún var gefin út í
íslenskri þýðingu í tilefni af heimsókn McGraths til íslands þar sem hann
hélt í haustbyrjun 2008 nokkra fyrirlestra í Skálholti og Guðfræði- og
trúarbragðafræðideild Háskóla íslands.
5 Hvernig ber að skilja sjónarmið Dawkins öðruvísi þegar hann alhæfir um hversu hættuleg
trúarbrögð séu og nefnir sérstaklega í því sambandi uppeldi barna? í bókinni The God Delusion
talar hann um trúarlegt uppeldi í formi boðunar trúar sem ofbeldi gagnvart börnum og nefnir
sérstaklega þegar börnum er kennt að það sem standi í Biblíunni sé bókstaflega satt, þ.m.t. að
sjálfsögðu grundvallartrúaratriði eins og tilvist Guðs. Þetta þýðir hins vegar ekki að Dawkins sé á
móti fræðslu um trúarbrögð svo framarlega sem hún sé höfð á forsendum guðleysis. Og Dawkins
segist ekki heldur á móti því að menningarhefð helstu trúarbragðanna í t.d. bókmenntum og listum
sé auðsýnd virðing og menn taki þátt í trúarlegu helgihaldi svo framarlega sem yfirnáttúrulegi
þátturinn í þeim sé ekki samþykktur. (Dawkins, Richard: The GodDelusion. Black Swan. London.
2007. Bls. 349-387.)
6 Sbr. t.d.: McGrath, Alister E.: „Losing our rcligion?" Telegraph.co.uk. 24. desember 2007. Vefur:
www.telegraph.co.uk/news/uknews/1573457/Losing-our-religion.html. - Þetta kom m.a. fram
í máli margra þeirra trúarbragðafræðinga sem sóttu ráðstefnuna Religion in the 21st Century:
Transformations, Significance and Challenges sem haldin var í Aðalbyggingu Kaupmannahafnarháskóla
í Danmörku 19.-23. september 2007, svo sem í kynningu Grace Davies á nýrri bók sinni, The
Sociology of Religion.
149