Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1968, Page 28
Agnar Hallgrímsson ;
Brúin
áJökulsááDal
Undan Brúarjökli fellur ein af lengstu og vatnsmestu jök-
ulám þessa lands. Hún fellur um Jökuldal, sem að líkindum
hefur í fyrstunni dregið nafn sitt af jökulgráum lit árinnar
og þá væntanlega heitir Jökulsárdalur. Þó kann hitt einnig
að vera, að dalurinn hafi fengið nafn sitt af því, að hann
teygir sig allt inn til jökla, og mundi þá upprunalegt heiti
hans vera Jökulsdalur, svo sem hann er oft nefndur í göml-
um heimildum.
Áin sjálf er oftast nefnd „Jökulsá á Dal“ eða „Jökulsá á
brú“, og virðast bæði heitin vera mjög gömul, eða frá því á
Þjóðveldisöld. Enginn vafi er á því, að síðara heitið er dregið
af brú eða brúm, sem verið hafa á ánni á þeim tíma. I grein
þessari er ætlunin að ræða nokkuð orsök þessarar nafngiftar
og rekja sögu brúargerðar á Jökulsá, allt frá því sögur hóf-
ust fr;am á okkar daga, að svo miklu leyti sem sú saga er
ikunn. Það skal tekið fram, að á síðari öldum er áin oft nefnd
Jökulsá í Hlíð“, og mun nafnið vera þannig til komið, að
brúin ,á ánni var og er ennþá staðsett skammt frá bænum
Fossvöllum í Jökulsárhlíð. Síðar færðist svo staðsetning brú-
arinnar yfir á alla ána, enda þótt aðeins nokkur hluti hennar
félli um Jökulsárhlíð. Nú mun þó þetta nafn sjaldan notað
af innanhéraðsmöhnum.
Jökulsá er vatnsmikil á og straumhörð. Veltur hún áfram
í þröngum gilskorningum, einkum á meðan hún fellur um