Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1968, Page 179
MÚLAÞING
177
er þá síonur þeirra 11 ára, svo að þau hafa þá líklega gifzt
fljótt eftir að lögskilnaður þeirra Þórunnar fór fram. Þórunn
virðist hafa verið í Firði áfram með Halldór og hefur liklega
verið þar í húsmennsku og e. t. v. haft ráðskonustörf með
höndum fyrir Hermann fyrst í stað, þótt ekkert sé kunnug'c
um það. !
Um 1790 gekk Hermann að eiga Sesselju, aðra konu sína.
Af því er Ijóst að Þórunn hefur ekki sótt um skiinað til áð
giftast Hermanni. Ef Hermann hefði haft hug á Þórunni,
hefði honum verið hægt að fá skilnað hennar frá Páli löngu
fyrr, ef Þórunn hefði óskað þess. Engin börn átti Þórunn
með .Hermanni svo að vitað sé. Kringum 10 ár liðu frá því
Hermann hvarf frá Krossi þar til hjúskaþur þeirra Sesselju
hófst. Þá er Hermann um fertugt og Sesselja um það bil 57
ára. Samband þeirra verður ekki skoðað til hlítar, þar 'sem
engar heimildir eru til um það hvernig á svo óvenjulegri
hjúskaparstofnun stendur. Talið var af almannarómi að Her-
mann hefði.kvænzt Sesselju til fjár. Það verður þó að teljast
frekar ólíklegt að Sesselja hafi tekið í mál að ráðstafa efn-
um sínum undan erfingjum sínum, og girndarráð hefur það
varla verið fyrir henni og raunar á hvoruga hlið. Það hljóta
að hafa verið einhverjar allt aðrar ástæður til þessa hjúskap-
ar. Eygerður systir Hermanns var tengdadóttir Sesselju, og
rýrir það líkur fyrir því að Hermann hafi ágirnzt efni þessa
Finnstaðafólks, sem óvíst er hvað hafi verið mikil. Sesselja.
kona Hermanns dó 4. marz 1814.
Hinn 12. júní 1813 hefur verið gert ,,gjafa- og afhendmgar-
bréf“ til handa Halldóri Pálssyni fyrir „hálfum heimastaðn-
um Firði með helmingi kotanna Árness og Fjarðarkots“. Það
er Hermann sem gefur út þetta bréf til fóstursonar síns Hall-
dórs Pálssonar. Bréfi þessu var þinglýst á manntalsþingi á
Skorrastað 31. maí 1814.
Þegar þetta bréf var gjört var Halldór 31 árs og Hermann
sonur hans 10 ára. Þetta g.jafabréf mætti líta svo á, sem það
hafi verið eins konar viðurkenning á því að Halldór væri son-
ur gefandans. Svo þarf þó ekki að vera. Miklu líklegra er að