Jökull - 01.12.1990, Page 3
JOKULL
ÁRSRIT
JÖKLARANNSÓKNAFÉLAGS ÍSLANDS
OG JARÐFRÆÐAFÉLAGS ÍSLANDS
40. ÁR REYKJAVÍK 1991
Breiðárskáli, 13. júlí, 1951. Ljósm. Sigurður Þórarinsson.
The Breiðá hut, July 13,1951. Photo. Sigurður Þórarinsson.
S
Jöklarannsóknafélag Islands 40 ára
í stofnskrá Jöklarannsóknafélags íslands stendur
eftirfarandi: ”Markmið félagsins er að stuðla að rann-
sóknum og ferðalögum á jöklum landsins. Það gengst
fyrir fræðandi fyrirlestrum um jökla og myndasýning-
um þegar aðstæður leyfa. Félagar geta allir þeir orðið,
er áhuga hafa á rannsóknum á jöklum og jökulferðum“.
Á stofnfundi félagsins í Tjamarkaffi í Reykjavík, 22.
nóvember 1950, voru skráðir41 félagi. Á aðalfundi
2. apríl 1952 voru félagsmenn orðnir 150. Nú eru 583
félagar í Jöklarannsóknafélagi íslands.
Margt hefur brey st frá þ v í fy rstu leiðangramir voru
famir til rannsókna á Grímsvötnum. Þá þurfti að fara
yfirTungnaá á Hófsvaði og þaðan í Jökulheima. Síðan
í snjóbíl á jökul. Ekið var eftir áttavitaog vegalengdin
mæld með litlu hjóli. Undir Háubungu varð að bíða
eftir skyggni á fjallið. Ferðin frá Reykjavík á Gríms-
fjall gat tekið nokkra daga. Nú skjótast félagsmenn á
jeppum sínum í helgarferð á Grímsfjall og láta veðrið
ekki aftra för sinni. Deila má um hvort sé skemmti-
legra en víst er að tilfinningin er sú sama þegar komið
er í skálann á Grímsfjalli.
I fjóra áratugi hefur ötullega verið unnið að mark-
miðum Jöklarannsóknafélags Islands. Sami stórhug-
urinn réð ferðinni 1957 þegar skáli var reistur á Gríms-
fjalli og 1987 þegar annar skáli varreistur á sama stað.
Starfsemi félagsins síðastliðin fjörutíu ár hefur byggst
á samvinnu og samheldni félagsmanna, sem af áhuga
og atorku hafa eflt rannsóknir á íslenskum jöklum.
í tilefni 40 ára afmælis Jöklarannsóknafélags
íslands ákváðu stjórnir Jöklarannsóknafélagsins og
Jarðfræðafélags Islands að í fertugasta árgangi tíma-
ritsins Jökuls skyldi safnað yfirlitsgreinum um jarð-
sögu íslands og jarðmyndanir. Hliðstætt yfirlit um
jarðfræði Islands var birt í tuttugasta og níunda ár-
gangi tímaritsins. Það yfirlit kom í mjög góðar þarfir
og hefur mikið verið notað til kennslu, bæði innan
JÖKULL, No. 40, 1990 1