Jökull - 01.12.1990, Blaðsíða 184
koma tímar og ráð.
ÁRSHÁTÍÐ
Árshátíð var haldin í Norðurljósum hinn 4. nóv-
ember og fór vel fram að vanda. Veislustjóri var
Sveinn Sigurbjamarson frá Eskifirði. Vel var mætt
og endar náðu saman fjárhagslega. Stjórnin þakkar
skemmtinefnd mjög vel unnin störf.
Nú er framundan fertugsafmæli og í skemmtinefnd
hafa hvorki meira né minna verið kölluð til starfa
þau Halldór Ólafsson eldri, formaður, Margrét Isdal,
Bryndís Brandsdóttir og Stefán Bjamason. Veislan
hefst laugardag 3. nóvemberíÁtthagasal Hótels Sögu.
GJÖRFI
Á hálfsmánaðar fresti yfir vetrarmánuðina, ann-
an hvem laugardag kl. 13, hafa skíðagöngufélagar í
GJÖRFI lagt upp frá Nesti í Ártúnsbrekku. Helstu
hvatamenn að þessum göngum hafa verið Stefán
Bjamason og Soffía Vernharðsdóttir. Vel er látið af
þessum ferðum sem heilsu- og sálarbót.
KJÖRFI
Á liðna árinu átti stjóm Jörfi ágætt samstarf við
Kvenfélag Grímsvatnahrepps, kvenfélag, sem form-
Iega var stofnað á Grímsfjalli vorið 1987. Eg hef áður
getið um þátt þeirra í skemmtinefnd og viðhaldsmál-
um. Auk þess hef ég orðið var við óbeina nærveru
þeirra í stjórninni þar sem þær eru betri helmingur
tveggja þriðju stjórnarmanna. Eg þakka Kvenfélagi
Grímsvatnahrepps margslunginn stuðning á liðnu ári.
TILLAGA TIL ÞINGSÁLYKTUNAR UM
JÖKLARANNSÓKNASTÖÐ Á ÍSLANDI.
Á næstliðnu ári flutti Egill Jónsson, þingmaður frá
Seljavöllum tillögu, um að Alþingi skori á ríkisstjóm-
ina að hlutast til um í samráði við Háskóla Islands,
Jöklarannsóknafélagið og Orkustofnun að gerðar verði
tillögur að stofnun rannsóknastöðvar í jöklavísindum
á Islandi. Að beiðni allsherjamefndar Alþingis sendi
stjórn Jörfi frá sér umsögn um þessa tillögu. Þar seg-
ir: ” Stjórn Jöklarannsóknafélags íslands fagnar fram-
kominni þingsályktunartillögu um jöklarannsóknastöð
í Austur-Skaftafellssýslu, sem gæti orðið grunnstöð
til rannsókna, kennslu, sýningastarfs og leiðangra a
sunnan- og austanverðan Vatnajökul. Hvergi eru Is-
lendingar háðari erfiðu sambýli við jökla en í Skafta-
fellssýslum og brýnni þörf á að halda uppi rannsókn-
um vegna stöðugs ágangs jökla og jökulfljóta á vegi
og gróið land, skyndilegra hamfara við gos undir jökli
og tæmingu jökullóna frá jarðhitasvæðum og jaðar-
lónum. Með Skaftfellingum hefur um aldir safnast
saman mikil reynsla og almenn þekking um jökla, sem
mikilvægt er að varðveita og kynna öllum landsmönn-
um. Tilkoma jöklarannsóknastöðvarí Öræfum myndi
því stórbæta alla aðstöðu til rannsókna og fræðslu um
sambýli þjóðarinnar við jökla landsins.
Jöklarannsóknafélag Islands hefur s.l. 40 ár unnið
að því að efla rannsóknir á jöklum landsins með þvi
að koma upp 9 skálum víðsvegar á jöklum og í Jökul-
heimum, haldauppireglubundnummælingumájökla-
breytingum og auka fræðslu til almennings með fyrir-
lestrum og útgáfu tímarits. Félagið styður heilshugar
framkomna þingsályktunartillögu og er reiðubúið að
aðstoða við undirbúning og rekstur rannsóknastöðvar
í jöklavísindum í Öræfum“.
Ég hef nú greint frá því hvemig okkur hefur þokast
að markmið félagsins, með rannsóknum, ferðalögum,
fræðandi fyrirlestrum um jökla og útgáfu Jökuls.
R ANN S ÓKIR FÉLAGSINS FRÁ UPPHAFI
í tilefni af því að 40 ár eru liðin frá stofnun fé-
lags okkar vil ég líta yfir rannsóknir, sem félagið hefur
staðið að. Frá stofnun félagsins hafa rannsóknir beinst
að baráttu elds og ísa í Grímsvötnum. Þar hefur jökull
lagst yfir eina virkustu eldstöð landsins, jarðhiti bræðir
stöðugt ís og jökulhlaup falla. Þau töfðu í nokkra ára-
tugi að hringvegi yrði lokið um landið og nú ógna þau
brúm á Skeiðarársandi. Hvert vor frá 1953 hefur fé-
lagið gert út leiðangra til Grímsvatna til þess að mæla
vatnshæð og vara við um komu Grímsvatnahlaupa.
Fylgst hefur verið með breytingum í varmaafli jarð-
hitasvæðisins með því að kanna breytingar í stærð
Vatnanna og þykkt íshellunnar. í ferðum félagsins
hefur auk þess verið unnið að margvíslegum verkefn-
um í Grímsvötnum svo sem íssjármælingumtil þess að
kanna landslag undir jöklinum og rannsóknum á gerð
megineldstöðvarinnar með jarðskjálftamælingum og
180 JÖKULL, No. 40, 1990