Jökull - 01.12.1990, Síða 194
Breiðárskáli nýmálaður, 11. maí,
1974. Á myndinni eru, talið frá
vinstri: Haukur Hallgrímsson,
Halldór Ólafsson, Stefán Bjama-
son, Sigurður Þorkelsson, Einar
Gunnarsson og Rúnar Nordquist.
Ljósm. Jón E. Isdal.
The Breiðá hut at Hálfdánaralda,
May 11,1974. Photo.Jón E.ísdal.
við í skíðaferð á Vatnajökul með Guðmundi Jónas-
syni vikuna 5. - 12. júní. Veður var oftast hagstætt
og við undum okkur hið besta hér í Tungnaárbotn-
um og á sjálfum Vatnajökli. Jökulheimum 15. júní
1955, Hulda Filipusdóttir, Árni Kjartansson, Haukur
Hafliðason, Ámi Edvins, Steinunn Auðunsdóttir, Sig-
urbjörn Benediktsson, Stefán Jónasson“. Með þessari
skálabyggingu lýkurþætti Stefáns Jónassonar, en hann
hafði verið yfirsmiður við þá þrjá skála sem félagið
hafði reist, og við tekur þáttur Stefáns Bjarnasonar,
sem enn er ólokið.
En áður en lengra er haldið skulum við aðeins
staldra við. Hvernig má það vera að félag með að-
eins 200 meðlimi reisi þrjú hús á fimm árum við þær
kringumstæður sem þá voru? Jú þetta er hægt en að-
eins undir stjóm manns sem neitar því að til séu óyfir-
stíganlegir örðugleikar, manns sem hikar ekki við að
fara inná rúmgafl hjá ráðherra ef hann telur það þjóna
tilgangi, manns sem skattleggur alla þá peningamenn
sem hann kemst í tæri við og ekki síst manns sem kann
að nýta þann kraft sem býr í hinum áhugasama sjálf-
boðaliða og getur hrifið með sér fólk til átaka þegar
byrinn er hagstæður. En hvað gefur hagstæðan byr?
Er það kannski smásetning í langri skýrslu fluttri á
aðalfundi þann 6. febrúar 1956, svohljóðandi; ”um
verkefnin framundan ætla ég að vera fáorður, innan
tíðar vildum við reisa skála á Grímsfjalli, en það verð-
ur ekki í sumar“. Er hann ekki þama að gára vatnið,
magna upp þann byr sem getur af sér enn einn skál-
ann aðeins ári seinna? Það hús sem í 30 ár hefur
staðið hér á fjallinu hæst allra húsa á landinu. Eg
sagði gára vatnið því að í fundargerð aðalfundar þann
9. apríl 1957 stendur; ”Jón Eyþórsson ræddi mögu-
leika á skálabyggingu á Grímsfjalli og boðaði að leitað
yrði samskota meðal fundarmanna í fundarlok“. Hins-
vegar stendur í skýrslu hans á aðalfundi þann 29. apríl
1958; ”á aðalfundi í fyrra var sú djarflega hugmynd
borin fram, að félagið reisti skála á Grímsfjalli, þessari
hugmynd var svo vel tekið af fundarmönnum að þegar
söfnuðust á fundinum um 8000 krónur. í júnímánuði
var skálinn reistur í sjálfboðavinnu, en efni og annar
kostnaður reyndist 20 þúsund krónur. Þá hlupu nokkr-
ir vinir okkar undir bagga og lögðu fram 10 þúsund
krónur, svo alls nema gjafir til þessa skála 18,141.13.
Hefur félagið því aðeins lagt fram tæpar 2000 krón-
ur úr sjóðum sínum“. Þennan skála teiknaði Sigríður
Árnadóttir.
í júnímánuði árið 1958 var svo bílaskemman reist í
190 JÖKULL, No. 40, 1990