Jökull


Jökull - 01.12.1990, Page 193

Jökull - 01.12.1990, Page 193
Ræða Jóns E. ísdals, flutt á Grímsfjalli við vígslu skálans þann 20. júní 1987. Gott jöklafólk! í dag eru tímamót í sögu Jöklarannsóknafélagsins. Anægjulegum áfanga hefur verið náð í atburðarás sem hófst þegar á fyrsta ári félagsins og sem síðan hefur verið stór hluti af starfsemi þess. Mér er ekki kunnugt um að þessum þætti hafi áður verið gerð sameiginleg skil og vil því fara hér nokkrum orðum um það sem kalla má byggingasögu Jöklarannsóknafélagsins. Þegar farið er yfir gögn um aðdraganda og stofnun félagsins kemur berlega í ljós að frumherjinn, stofn- andinn og aðal burðarás félagsins, Jón Eyþórsson, hef- ur lagt ríka áherslu á nauðsyn þess að það eignaðist sem fyrst aðstöðu til þess að hýsa menn og tæki á þeim stöðum, sem helst var búist við að rannsóknir yrðu stundaðar frá. Hve áherslan var mikil kemur best fram í eftirfarandi bókun á stofnfundi félagsins þann 22. nóvember 1950: ”Fundurinn lýsir ánægju sinni yfir væntanlegum leiðangri Rannsóknaráðs til þykkt- armælinga á Vatnajökli næsta vor. Ennfremur telur fundurinn nauðsynlegt að koma sem fyrst upp föstum bækistöðvum fyrir rannsóknir íslenskra jökla og álítur, að Esjufjöll í Breiðamerkurjökli séu æskilegur staður fyrir slíka rannsóknastöð. Er stjóm félagsins því heim- ilað að hefja þegar undirbúning að húsbyggingu þar, eftir því sem efni og ástæður leyfa“. Fyrir utan kjör bráðabirgðastjórnar er þetta eina samþykktin sem gerð er á stofnfundinum. Ef þetta er ekki ótvíræð stefnuyfirlýsing hvað er það þá? Jón lætur ekki sitja við orðin tóm. Fyrir tilstilli fjármála- ráðuneytisins fær hann þrjá herskála hjá sölunefnd- mni sem Skipaútgerð ríkisins flytur án gjaldtöku til Hafnar í Hornafirði. Eini kostnaðurinn sem félagið bar var vegna flutnings skálanna frá Höfn að Jökulsá a Breiðamerkursandi, svo og vegna niðurrifs þeirra á Keflavíkurflugvelli. Til greiðslu á þeim þætti seldi Jón einn skálann og er hann enn í fullu gildi sem útihús á Kvískerjum. Fyrri skálinn var svo reistur í Esju- fjöllum þann 26. júní 1951 og sá seinni, Breiðá við Hálfdánaröldu, viku seinna. Báðir voru þeir óinn- réttaðir enda í fyrstu eingöngu ætlaðir til geymslu á farartækjum. Til stóð að innrétta Esjufjallaskálann sem fjallakofa og var timbur til þess flutt að Breiðá og geymt þar í nokkur misseri, en þar brást Jóni bogalistin því hann gat ekki, þrátt fyrir margítrekaðar tilraunir, fengið timbrið flutt í Esjufjöll, svo að það endaði sem innrétting í Breiðá. En skjótt skipast veður í lofti. Árið 1950 fannst Hófsvað og fljótlega eftir það greiðfær leið í Tungna- árbotna. Bein afleiðing þessara atburða kemur fram í skýrslu Jóns á aðalfundi félagsins þann 14. apríl 1955 þar sem hann segir: ”Þá hefur verið unnið að því af nokkrum áhugamönnum innan félagsins að safna fé og undirbúa skálabyggingu í Tungnaárbotnum í sumar og standa miklar vonir til að það komist í framkvæmd“, og síðar í sömu skýrslu, ”það er ráðgert að byggja skála í sumar í Tungnaárbotnum, 4x6 m að stærð, samkvæmt teikningu sem hér liggur fyrir og Þórir Baldvinsson hefur gert. Grindin verður væntanlega sett saman hér í bænum og Guðmundur Jónasson hefur boðist til að koma efninu á byggingarstað án mikils kostnaðar fyrir félagið. Árni Kjartansson hefur lofað að hafa aðal- framkvæmd um byggingu skálans og ýmsir ágætir og reyndir menn hafa heitið honum vinnu sinni og hjálp við verkið“. Skálann þekkið þið öll svo að ég ætla ekki að fjölyrða um hann. Aftur á móti hljóðar fyrsta síð- an í "Gestabók fyrir Jökulheima" svo; ”Jökulheimar heitir þessi skáli og er eign Jöklarannsóknafélags Is- lands. Við undirrituð reistum hann sem sjálfboðaliðar dagana 30. maí - 15. júní 1955, en jafnframt fórum JÖKULL, No. 40, 1990 189
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196
Page 197
Page 198
Page 199
Page 200
Page 201
Page 202
Page 203
Page 204
Page 205
Page 206

x

Jökull

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.