Jökull


Jökull - 01.12.1991, Page 47

Jökull - 01.12.1991, Page 47
hlaupi. Sigdældin var um 8 km löng og teygðist til norðurs frá norðvesturkrika Grímsvatna. Rúmtak hennar var 2-3 km3. Talið er að gos hafi orðið undir jöklinum og myndað sigdældina. Flugmyndir frá sumrinu 1938 (8. mynd) sýna að nyrst í sigdældinni hefur gosið náð upp úr jöklinum en þar þakti öskuflekkur nokkurt svæði eftir að kom fram á sumarið. Issjármælingar yfir gosstöðvunum hafa leitt í ljós að 70-200 m hár hryggur liggur þar sem sigið varð 1938 (9. mynd). Rúmtak hans er nálægt 400 milljónum m3 og líklega hefur hann myndast í gosinu 1938. Hefur þetta gos því verið með stærstu gosum á íslandi á þessari öld; af gosum með þekkt rúmmál gosefna eru aðeins Heklugosið 1947 og Surtseyjargosið 1963-1967 stærri. Sigdældin frá 1938 fylltist að miklu leyti innan fárra ára. Þó má marka af sigkötlum yfir gosstöðvunum að það tók gosefnin allnokkur ár að kólna að fullu (10. mynd). Ljóst er af þeim gögnum sem til eru (frá 1934, 1938 og 1983) að við gos dreifist aska yfir jökulinn, vök eða sigdæld myndast yfir gosstöðvunum og er hún sýnileg í nokkur ár eftir gosið vegna kælingar gosefnanna. Þá myndast í gosinu hryggur eða gíg- hrúgald. Þessar staðreyndir þarf að hafa til hliðsjónar þegar líkur á gosi á tilteknum tíma eru metnar. Ýmislegt hefur þótt benda til þess að oftar hafi gosið í Grímsvötnum en í þau þrjú skipti sem að framan eru talin. Hefur þar verið bent á öskulög sem sést hafa á yfirborði jökulsins, myndun sigkatla og óeðlilega stutt bil milli hlaupa. í ljós kemur hins vegar að á tímabilinu frá 1934 og fram yfir 1960 sást lítil eða engin aska að vori til en síðla sumars og að hausti þakti aska norðvesturhluta Grímsvatna (9.-13. mynd). Hér var hins vegar um að ræða sömu öskuna allan tímann, þ.e. frá gosinu 1934, e.t.v. blandað ösku úr eldri gosum. Svo virðist að öll vetrarákoman hafi bráðnað á sumrin í norðvesturhluta Grímsvatna og þar hafi því verið leysingasvæði. Hin mikla leysing á þessu tímabili stafaði af áfoki ösku af jökulvana svæðum og úr aurkeilum og hryggjum sem fljótt stungu kollinum undan vetrarsnjónum í norðvestur- hluta Grímsvatna. Við áfokið dökknaði snjórinn og gleypti mun stærri hluta sólgeislunarinnar en hreinn snjór. Á sjötta áratugnum minnkaði hins vegar leysingasvæðið ört og var alveg horfið um 1970 (12. mynd). Orsakir þess vom minna áfok þegar jökulvana svæði minnkuðu vegna þess að dró úr jarðhita í Grímsvötnum auk þess sem kólnandi veðurfar gæti hafa átt hlut að máli. I lok hlaupanna 1945 og 1954 mynduðust sigkatlar með lóðréttum veggjum í norðvesturkrika Grímsvatna (14. mynd). Hafa þeir verið taldir til sannindamerkis um eldgos. Svæðið þar sem ketillinn myndaðist 1954 hefur hins vegar verið kannað með íssjá og sjást þar engin merki gíghrúgalds eins og búast mætti við ef gos hefði orðið (2. mynd). Því verður að telja ólíklegt að ketillinn hafi myndast við gos. Ekki er vitað með vissu hvar ketillinn myndaðist 1945 og er því ekki unnt að að skera úr með vissu með hjálp íssjármælinga hvort gos hafi orðið. Ketillinn virðist hins vegar hafa verið á svipuðum stað og 1954 og íssjármælingar sýna þar engin nýleg hrúgöld sem benda til goss. í stað þess að skýra katlana með eldgosum telja höfundar líklegra að myndun þeirra megi rekja til gufusprenginga eða kröftugrar suðu í jarðhitakerfi í kjölfar þrýstings- lækkunar sem verður við Grímsvatnahlaup (15. mynd). Hin tíðu jökulhlaup sem urðu á árunum eftir 1938 (þ.e. hlaupin 1939, 1941, 1945 og 1948) eru ekki nauðsynlega vísbending um eldgos á því tímabili. Nærtækara virðist að skýra þau með bráðnun íss yfir hryggnum sem myndaðist 1938 enda tekur kæling gosefna nokkurn tíma eins og getið var hér að framan. Líklegt er að gosefnin hafi að mestu leyti verið ferskt basaltgler því að erfitt að skýra hina miklu bráðnun samfara gosinu 1938 öðruvísi en með sprengigosi í vatni. Myndun móbergs úr fersku basaltgleri gefur frá sér talsverðan varma. Því má gera ráð fyrir að vatn hafi safnast fyrir yfir hryggnum og það hlaupið öðru hverju niður í Grímsvötn og vatnsborð því hækkað mun hraðar en þegar gosefnin voru að fullu kæld. I ágúst 1984 varð vart gosóróa í um klukkustund á skjálftamælum og voru upptök hans á Grímsvatna- svæðinu. Smágos gæti hafa orðið á botni Grímsvatna sem ekki náði upp úr jöklinum. Fyrir utan þennan atburð virðast af könnun okkar á tiltækum gögnum um Grímsvötn ekki önnur gos hafa orðið í eða við Grímsvötn á tímabilinu 1934-1991 en þau sem þekkt voru fyrir, þ.e. gosin 1934, 1938 og 1983 (1. tafla). JÖKULL, No. 41, 1991 45
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Jökull

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.