Jökull


Jökull - 01.12.1991, Page 67

Jökull - 01.12.1991, Page 67
Fjarlægðin milli enda gossprungunnar er um 25 km en í henni er um 8 km löng eyða, þannig að alls hefur gosið á um 17 km langri sprungu. Syðri hlutinn er um 10,5 km að lengd og nyrðri hlutinn um 6,5 km. 4.1 Gossprungan og jarðskjálftabeltið á Suðurlandi Frávik gossprungunnar frá hinni venjulegu norðaustur- suðvestur sprungustefnu á Reykjanesskaga, sem kemur fram við Vigdísarvelli, á sér einfalda skýringu. Á u.þ.b. 5 km breiðu belti, sem liggur því sem næst frá Hjalla í Ölfusi til vesturs um jarðhitasvæðin í Brennisteinsfjöllum, Krísuvík og Svartsengi út á Reykjanestá, eru víða skástígar sprungur, sem stefna norður-suður, lfkt og sprungur sem myndast hafa í Suðurlandsskjálftum (Fíaukur Jóhannesson 1989). Beltið er í raun aðeins framhald af jarðskjálftabeltinu á Suðurlandi til vesturs og þar sem gossprungan liggur í gegnum það kemur fram breyting á stefnu hennar. Eftirtektarvert er að í annál Flateyjarbókar (1945) og í Konungsannál (Storm 1888) er getið um húshríð eða húsrið samfara eldgosinu 1151, sem bendir til að því hafi fylgt allsterkir jarðskjálftar. Við Vigdísarháls er gossprungan slitrótt og tiltölu- lega lítið hraun hefur runnið frá henni þar. í jarðlögum í Vigdísarhálsi er veruleg jarðhitaum- myndun og nær hún allt norður að Traðarfjöllum. Þetta sýnir að jarðhitasvæðið í Krísuvík hefur einhvem tíma náð mun lengra til vesturs en nú er. Lítið hraunrennsli á þessu svæði bendir til að hraunkvikan hafi ekki náð upp til yfirborðs í gegnum undirliggjandi jarðhitakerfi, heldur myndað innskot sem hugsanlega gætu verið hluti af orkugjafa jarðhitans í Sveifluhálsi sem er þama skammt undan. Því má ætla að jarðhitasvæðið í Krísuvík hafi áður verið mun stærra en það er nú, ellegar að það hefur færst til austurs. Jafnvel er hugsanlegt að jarð- hitavirkni svæðisins sé á stöðugu flandri eftir því hvar ný innskot myndast til að viðhalda orku svæðisins. 5. HRAUN KRÍSUVÍKURELDA Eins og sjá má á 1. mynd mynduðust fjórir aðskildir hraunflákar í Krísuvíkureldum. Syðst er Ögmundar- hraun sem nær frá Djúpavatni í Móhálsadal suður í sjó. Næst norðan við það er lítið hraun sem mnnið hefur út á Lækjarvelli og er það langminnst þessara hrauna. Þriðja hraunið er við Mávahlíðar, norðaustur af Trölladyngju, og liggur til hliðar við megin- gossprunguna. Nyrst er svo Kapelluhraun sem mnnið hefur frá Undirhlíðum til sjávar. Öll hraunin eru ólivínþóleiít basalt. Bergfræði- rannsóknir Einars Gunnlaugssonar (1973) sýna að þau eru hvert öðru lík og að hraunin í Móhálsadal verða ekki greind hvert frá öðm í þunnsneið. Þau eru dæmigerð fyrir apalhraunin sem koma upp í gliðn- unarhrinum á Reykjanesskaga. Hraunin eru þunn- fljótandi og gasrík og mynda oft þunnt frauðkennt helluhraun næst gígunum. Algeng þykkt slíkra hrauna er um einn metri á sléttu landi og eru hraun- jaðrarnir oft ekki nema um hálfur metri á hæð. Þegar hraunin hafa runnið nokkur hundruð metra frá gígunum hefur verulegur hluti gassins verið rokinn úr hraunkvikunni, þannig að hún verður seigari og hraunið þykknar og breytist smám saman í apalhraun sem verður þeim mun úfnara sem fjær dregur gígunum. Hæstu hraunjaðrar af þessari gerð á Reykjanesskaga eru 10-15 m. 5.1 Ögmundarhraun Hraunið sem rann frá syðsta hluta gossprungunnar fyllti allan Móhálsadal sunnan Djúpavatns og rann í sjó fram á um 5 km breiðu belti. Hraunið fyllti allstóra vík sem að líkindum hefur verið hin forna Krísuvík. Þessi hraunfláki er stærstur af þeim fjórum sem mynduðust í Krísuvíkureldum. Hann gæti hafa myndast í tveimur gosum (en þó í sömu goshrinu). Sá hluti hraunsins sem kominn er frá gígunum við Djúpavatn hefur runnið til austurs og síðan til suðurs austan Traðarfjalla. Við suðurbrún Traðarfjalla leggst yfir það yngra hraun sem runnið hefur frá þeim hluta gígaraðarinnar sem liggur í skarðinu milli Traðarfjalla og Núpshlíðarháls. Samsvarandi mörk hafa hins vegar ekki fundist á sjálfri gígaröðinni, sem virðist alveg samfelld norður skarðið að gígunum við Djúpavatn. Norðurbrún hraunsins er milli 0,5 og 1,0 m há en annars staðar hefur fyllst að jöðrunum þannig að þeir sjást ekki. Hraunið er allúfið austan Traðarfjalla, enda hefur það runnið þar í nokkrum halla. Syðri hluti hraunsins fyllir allan Móhálsadal JÖKULL, No. 41, 1991 65
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Jökull

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.