Jökull


Jökull - 01.12.1991, Page 68

Jökull - 01.12.1991, Page 68
Lækjarvellir Undirhlíðar Vigdísarvellir 2. mynd. Jarðvegssnið frá Lækjarvöllum, Vigdísarvöllum og Undirhlíðum. Staðsetning sniða er sýnd á 1. mynd. Fig. 2. Soil profiles from Lækjarvellir, Vigdísarvellir and Undirhlíðar. Locations are shown in Fig. 1. sunnan Traðarfjalla. Þar er hraunið víðast slétt hellu- hraun en í dalnum ofanverðum er það að verulegu leyti horfið undir framburð lækja, sem er afar mikill á þessum slóðum. Móbergið í hálsunum í grennd er mikið ummyndað vegna jarðhita og því auðrofið. Jafnhliða ummynduninni þéttist bergið þannig að úrkoma hripar ekki beint niður, eins og víðast á Reykjanesskaga, heldur myndar læki sem renna á yfirborði. Þeir hverfa reyndar fljótlega niður í jörðina er þeir koma út fyrir ummyndaða svæðið. Af þessum sökum er ógemingur að segja til um þykkt hraunsins í dalnum. Meginhraunið hefur komið upp í dalnum sunnanverðum. Þegar hraunið fellur suður úr dalnum breytist það að mestu í úfið apalhraun, enda búið að renna alllangan veg frá gígunum. Hraunið hefur síðan runnið allt til sjávar og fyllt hina fomu Krísuvík. Ætla má að á flatlendi sé hraunið víðast um 5-10 m þykkt og miklu þykkara þar sem það náði út í sjó. I Móhálsadal er það eflaust nokkru þynnra og vart meira en 3-4 m þykkt, en slík tala er þó ágiskun ein. Flatarmál hraunsins er um 18,6 km2 og ef gert er ráð fyrir 7 m meðalþykkt er rúmmálið um 0,13 km3. Norður af Djúpavatni liggur ungleg gígaröð til norðausturs eftir Móhálsadal, í beinu framhaldi af gígum Krísuvíkurelda. Þegar fyrri hluti greinarinnar var skrifaður var það álit okkar að gosið hefði á allri þessari spmngu í Krísuvíkureldum, en þá hafði aðeins syðsti hluti gossprungunnar verið kannaður að fullu. Síðar hefur komið í ljós að þessir nyrstu gígar eru eldri og hefur Landnámslagið fundist ofan á hrauninu frá þeim. 5.2 Hraun við Lœkjarvelli Skammt norðan við Djúpavatn hefur hraun runnið til austurs frá litlum gígum sem þar liggja, austan undir Núpshlíðarhálsi. Þunnfljótandi kvikan hefur myndað helluhraun, sem víðast er 1-2 m þykkt, og hefur lengst náð að renna austur að Hrútafelli, um 500 m vegalengd. Hluti hraunsins er nú horfinn undir framburð lækjarins á Lækjarvöllum. í jarðvegs- sniðurn við gígana sést glöggt að Landnámslagið liggur neðan við gjalldreif frá þeim en Miðaldalagið ofanvið (sbr. 2. mynd). Flatarmál þessa hrauns er 0,47 km2 og ef gert er ráð fyrir tveggja metra meðalþykkt er rúmmálið um 0,001 km3. 5.3 Mávahlíðahraun Skammt norðan við Fíflavallafjall er móbergshryggur er nefnist Mávahlíðar. Um 300 m vestan við hann er stutt gígaröð og liggur frá henni stórskorin og torfarin hrauntröð til norðausturs meðfram Mávahlíðum. Hraunið, Mávahlíðahraun, hefur einkum runnið til norðurs og norðvesturs, lengst um 3 km frá gígunum, og fallið í tveimur fossum fram af Einihlíðum. Það er 66 JÖKULL, No. 41, 1991
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Jökull

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.