Jökull - 01.12.1991, Síða 71
5. mynd. Skammt norðan við
Kerin er „yfirborð jarðar eins og
úr marmara og eins og steinlagt
stræti". Mynd Haukur
Jóhannesson. Fig. 5. “And the
surface ofthe earth looked as ifit
was made ofmarble and like a
paved street. ” This is a part ofa
medieval description ofa volcanic
eruption, suggested to be the
Krísuvík Fires. A scene just north
ofthe small craters Kerin. Photo
Haukur Jóhannesson.
undirbúningsrannsóknir vegna byggingar álversins í
Straumsvík voru boraðar holur gegnum Kapelluhraun
sem sýna að það er 5-10 m þykkt (Haukur Tómasson
og Jens Tómasson 1966).
Flatarmál og rúmmál hraunanna er sýnt í 1. töflu.
Syðri hraunin þekja samtals 19,1 km2 og er áætlað
rúmmál þeirra um 0,13 km3. Nyrðri hraunin þekja
17,4 km2 og áætlað rúmmál er nokkru minna en syðri
hraunanna, eða um 0,9 km3. Heildarflatarmál hraun-
anna er 36,5 km2 og magnið um 0,22 km3. Aætluð
meðalþykkt hraunanna er 6 m.
7. ALDUR HRAUNANNA
í fyrri grein voru leiddar að því líkur að Ögmundar-
hraun hafi runnið árið 1151 og er þar jöfnum höndum
stuðst við frásagnir annála, geislakolsaldur og rann-
sóknir á öskulögum.
7.1 Geislakolsaldur
Þegar geislakolsgreining er gerð á koluðum
jurtaleifum undan hraunum hérlendis er gert ráð fyrir
að aldur gróðursins hafi verið lágur þegar geisla-
kolsklukkan fór í gang. í 2. töflu er sýndur hámarks-
aldur þeirra runna- og þófaplantna sem líklegt er að
hafi verið aldursgreindar kolaðar. Reyndar vantar
víðitegundir í töfluna vegna skorts á upplýsingum. Af
töflunni sést að þær tegundir sem verða elstar (að eini
undanskildum) ná mest 100 ára aldri. Þar sem efnis-
magn í árhringjunum plöntunnar fer vaxandi með
hverju ári, miðað við jafnþykka árhringi, verður
geislakolsaldur lifandi plöntu aðeins um þriðjungur af
raunverulegum aldri hennar. Því er líklegt að geisla-
kolsaldur gróðurs, sem var aldursgreindur, hafi ekki
verið meiri en um 30 ár og líklega mun minni. Þetta á
við svo framarlega sem einir hefur ekki verið aldurs-
greindur.
Þar eð geislavirkni er svokallað slembiferli er
aðeins hægt að meta rétt 14C hlutfall í sýni innan
ákveðinna marka. Flestar 14C aldursgreiningar eru
gefnar upp með einu staðalfráviki, sem þýðir að 68,3%
líkur séu á að aldur sýnisins liggi innan uppgefinna
± marka. Ef bilið er aukið í tvö staðalfrávik aukast
hkurnar upp í 95% og upp í 99% við þrjú staðalfrávik.
Taka skal þó skýrt fram að óvissumörkin endurspegla
eingöngu óvissu vegna sjálfrar mælingarinnar, en gefa
enga vísbendingu um jarðfræðileg gæði sýnanna.
Mældur geislakolsaldur er háður ýmsum ákvörð-
unum og nálgunum. Til dæmis er reiknað með að
styrkur geislakols í andrúmslofti sé þekkt og óbreytt
stærð síðastliðin 70.000 ár. Rannsóknir hafa hins
vegar sýnt, svo ekki verður um villst, að svo er ekki.
Breytilegur styrkur l4C í andrúmsloftinu er nú allvel
þekktur, út frá rannsóknum á geislakoli í trjám, og
því er hægt að leiðrétta mældan geislakolsaldur. A
JÖKULL,No. 41, 1991 69