Jökull - 01.12.1991, Qupperneq 76
4. tafla. Aldursgreiningar á koluðum jurtaleifum undan Hellnahrauni og Breiðdalshrauni.
Table 4. Radiocarbon dates ofcharcoal samples from the Hellnahraun and Breiðdalshraun lavaflows.
Hraun Lavaflow Tækjaaldur Measured age, BP Leiðréttur aldur, e.Kr. Calibrated age, AD
Breiðdalshraun1 1040±75 890-1038, 1102-1117, 1141-1150
Tvíbollahraun (U-2524) 1075+60 891-933, 934-1002, 1011-1017
Rauðhóll (AAR-131) 1120±60 782-788, 811-816, 832-837, 867-985
Helgafell (AAR-130) 1200±90 690-701, 710-749, 765-897, 921-941
Hellnahraun2 1100±35 894-923, 938-983
1 Númer aldursgreinmgarinnar kemur ekki fram hjá Jóni Jónssyni (1978a). Number of 14C date is not given by Jónsson
(1978a).
2 Vegið meðaltal sýnanna fjögurra. Weighted mean of the four samples.
sama stað og sýni Jóns, er kennt við Helgafell. Sýnin
frá Helgafelli og Rauðhól voru meðhöndluð til
geislakolsmælingar á Raunvísindastofnun Háskólans,
en sjálf mælingin fór fram á tandemhraðli
Arósaháskóla.
I 4. töflu er gefinn upp leiðréttur aldur sýnanna,
samkvæmt leiðréttingarforriti Stuiver og Becker
(1986). A 10. mynd er sýnd líkindadreifing sýnanna
úr 4. töflu. Myndin sýnir ljóslega að líklegast hafa öll
þessi hraun runnið á sama tíma á 9. eða 10. öld.
Vegið meðaltal greininganna gefur tækjaaldurinn
1100+35 BP. Mestar líkur eru á að hraunin hafi
runnið annaðhvort á árunum 894-923 eða, sem er
mun líklegra samkvæmt útreikningunum, á árunum
938-983.
8.2 Kristnitökuhraun
Goshrina í Brennisteinsfjöllum á 10. öld leiðir hugann
að kenningu Jóns Jónssonar (1979) um Kristnitöku-
hraun. Þar stingur hann upp á því að Svínahraun hafi
runnið árið 1000, en það hraun er komið úr
Eldborgum við Lambafell. Eldborgirnar liggja nánast
milli tveggja eldstöðvakerfa, þ.e. Brennisteinsfjalla og
Hengils, en líklegra er að þær tilheyri Brennisteins-
fjallakerfinu. Helstu rök fyrir því eru nálægðin við
Bláfjöll, sem Brennisteinsfjallakerfið hefur myndað á
síðasta jökulskeiði. Því er hugsanlegt að Yngra
Hellnahraun og Svínahraun hafi myndast í einni og
sömu goshrinu í Brennisteinsfjöllum. Niðurstöður
aldursgreininganna benda til að Yngra Hellnahraun
hafi runnið um miðja 10. öld, en í þessu sambandi má
benda á að það er skoðun margra fræðimanna að
aldursgreiningar með geislakolsaðferð á sýnum frá
landnámstíð gefi yfirleitt of háan aldur sem nemur
30-50 árum. Þessu til stuðnings má benda á að þó svo
að árið 1151 sé innan óvissumarka í fimm aldurs-
greiningum frá Krísuvíkureldum virðist miðgildi
líkindadrcifinga liggja nærri árinu 1100, sem er um 50
árum hærri aldur en annálar gefa til kynna. Ingrid U.
Olsson (pers. uppl.) telur, út frá rannsóknum á virkni
geislakols í andrúmslofti hér á landi, að þessi skekkja
sé um 30 ár. Til viðbótar má gera ráð fyrir lítilsháttar
skekkju vegn aldurs gróðurs er hann kolast. Þessi tvö
atriði til samans styðja tilgátuna um að goshrina hafi
verið í eldstöðvakerfi Brennisteinsfjalla um árið 1000.
74 JÖKULL, No. 41, 1991