Jökull - 01.12.1991, Side 78
stöðluö Iíkindi*
10. mynd. Líkindadreifing fyrir leiðréttan aldur Yngra
Hellnahrauns og Breiðdalshrauns. Sýnatökustaðir eru
sýndir á 1. mynd. Fig. 10. Calibration curvesfor the
age ofcharcoal samples from the Younger
Hellnahraun and Breiðdalshraun lavaflows,
according to Stuiver and Becker (1986). The lowest
figure shows the weighted tnean ofthe samples.
Location of sampling sites is shown in Fig. 1.
*) Líkindi stöðluð með tilliti til hágildis
líkindadreifingar.
*) Normalized to maximum probability.
Önnur sögnin um Kaldá er einkar athyglisverð. Þar
segir að áin hafi horfið af eldgangi þegar Suðurfjöll
brunnu. Þar sem Kaldá fellur vestur úr Kaldárbotnum
rennur hún fyrst á hrauni frá Gvendarselsgígum. Eftir
að áin fellur fram af því liggur farvegur hennar á
mótum Búrfellshrauns, sem er um 7000 ára gamalt
(Guðmundur Kjartansson 1973), og Yngra Hellna-
hrauns. Ain hverfur síðan í þessi hraun. Sem fyrr segir
er Gvendarselshraun að líkindum runnið 1151 og
hefur því runnið yfir farveg Kaldár á sögulegum tíma.
Ólíklegt er þó að þarna liggi uppruni sagnarinnar, því
áin hefur aðeins tekið smávægilegum breytingum í
þessu gosi. Rétt er þó að benda á að við jarðskorpu-
hreyfingar sem fylgdu gosinu gætu aðstæður hafa
breyst í þá veru að vatnsmagn árinnar hafi minnkað
nokkuð. Yngra Hellnahraunið hefur hins vegar alger-
lega hulið hinn foma farveg árinnar, en hann hefur að
því er best verður séð legið í lægð á mótum Búr-
fellshrauns og hraunsins frá Óbrinnishólum. Yngra
Hellnahraun hefur runnið eftir þessari lægð, fyllt hana
og reyndar runnið töluvert út yfir Óbrinnishóla-
hraunið. Við tilkomu Yngra Hellnahrauns hefur
farvegur Kaldár því breyst verulega. Ain gæti hafa
náð töluvert lengra til vesturs og jafnvel vestur fyrir
Stórhöfða. Fyrst eftir að Hellnahraunið rann hefur áin
líklega horfið strax í hraunið og ef sú er raunin er
eðlilegt að tala um að áin hafi eyðst af eldgangi.
I þjóðsögunni segir einnig að jörð hafi gengið upp
fyrir sunnan Elliðavatn. Sprungurein eldstöðvakerfis
Trölladyngju teygir sig til norðausturs frá Undir-
hlíðum, um Hjallana á Heiðmörk, Elliðavatn og
Rauðavatn, allt upp í Mosfellssveit. Líklegt er að
samfara Krísuvíkureldum hafi land misgengið við
76 JÖKULL,No. 41, 1991