Jökull - 01.12.1991, Side 107
Jöklarannsóknafélag íslands
Skýrsla formanns á aðalfundi 26. febrúar 1991
SKIPAN STJÓRNAR OG NEFNDA
Síðasti aðalfundur Jörfi var haldinn 1. mars 1990. Á fyrsta
stjórnarfundi eftir aðalfund, 6. mars s.l., skipti stjórn með
sér verkum og dregið var um röð manna í varastjórn.
Stjórnin var þannig skipuð:
Aðalstjórn:
Helgi Björnsson formaður,
kosinn 1989 til þriggja ára.
Sveinbjörn Björnsson varaformaður,
kosinn 1989 til tveggja ára.
Einar Gunnlaugsson ritari,
kosinn 1989 til tveggja ára.
Jón E. fsdal gjaldkeri,
kosinn 1990 til tveggja ára og
Stefán Bjarnason meðstjórnandi,
kosinn 1990 til tveggja ára.
Varastjórn:
Björn Indriðason 1. varamaður,
kosinn 1989 til tveggja ára.
Jón Sveinsson 2. varamaður,
kosinn 1990 til tveggja ára.
Pétur Þorleifsson 3. varamaður,
kosinn 1990 til tveggja ára og
Ástvaldur Guðmundsson 4. varamaður,
kosinn 1989 til tveggja ára.
Stjómin kaus formenn hinna ýmsu nefnda og völdu þeir sér
nefndarmenn. Nefndir voru þannig skipaðar:
Rannsóknanefnd: Helgi Björnsson formaður og Jón
Sveinsson Raunvísindastofnun, Hannes H. Haraldsson
Landsvirkjun, Oddur Sigurðsson Orkustofnun og
Magnús Már Magnússon Veðurstofu.
Bílanefnd: Björn Indriðason formaður, Gunnar Guðmunds-
son, Guðmundur Marísson, Eiríkur Gunnarsson,
Engilhart Björnsson, Bárður Harðarson, Ólafur Nielsen
og Magnús Eyjólfsson.
Skálanefnd: Stefán Bjarnason formaður, Jón E. ísdal,
Ástvaldur Guðmundsson, Gunnlaugur Þórðarson og
Pétur Þorleifsson.
Ritnefnd: Helgi Bjömsson og Pétur Þorleifsson tilnefndir af
Jörfi og Leó Kristjánsson, Karl Grönvold og Kristján
Sæmundsson tilnefndir af Jarðfræðafélagi.
Skemmtinefnd: Halldór Ólafsson formaður, Bryndís
Brandsdóttir, Margrét Isdal og Stefán Bjarnason.
Endurskoðendur félagsins voru Elías B. Elíasson og Árni
Kjartansson.
Hinn 1. febrúar 1991 voru félagar 574, þar af 526
einstaklingar og 48 stofnanir. Auk þess fengu 7 fjölmiðlar
sendan Jökul og fréttabréfið. Bréfafélagar, sem eingöngu fá
fréttabréfið, voru 38. Félagar vom hinn 1. febrúar 23 fleiri
en við sömu mánaðamót fyrra. Á árinu gengu 26 í félagið,
en 3 sögðu sig úr því eða létust.
RANNSÓKNIR
Rannsóknir á vegum félagsins s.l. ár beindust eins og
undanfarin ár að Grímsvötnum og mælingum á jökla-
breytingum. Á fjárlögum voru veittar 160 000 kr. til
jöklarannsókna. Af þeirri fjárveitingu var greiddur útlagður
kostnaður sjálfboðaliða við mælingar á jökulsporðum,
kostnaður við smíði sýnatökutækis og rafstöðvar í
gagnasönunarstöðinni á Grímsfjalli.
Vorferð Jörfi.
Árleg rannsóknaferð Jörfi var farin til Grímsvatna dagana
9.-16. júní. Fararstjóri var Jón E. Isdal. Landsvirkjun lagði
að vanda til snjóbíl og meiðhýsi. Unnið var að eftirtöldum
verkefnum:
1. Hæð vatnsborðs Grímsvatna var mæld í borholu við
gosstöðvarnar frá 1983 og á miðri íshellu Grímsvatna.
Hinn 12. júní s.l. mældist hún 1434 m y.s. Vatnsborðið
hafði því risið um 13 m frá því árið áður og náð 5 m
hærra en við upphaf Grímsvatnahlaups árið 186. Hæsta
staða sem mælst hefur við upphaf hlaups er 1445 m árið
1982. Þeirri hæð hafa Vötnin væntanlega náð nú og
búast má því við hlaupi á hverri stundu.
2. Landmælt var 10 km langt snið norðaustur úr Vötnun-
um í þeim tilgangi að finna hæðarbreytingar umhverfis
Vötnin milli hlaupa. Stefnt er að því að endurmæla
sniðið að loknu næsta hlaupi til þess að kanna áhrif
hlaups á ísskrið inn að Vötnunum. Við höfum þegar
gögn, sem sýna að þegar íshellan sígur í hlaupum,
streymir ís inn að dældinni frá svæði, sem er margfalt
stærra en Vötnin sjálf og utan við þau lækkar yfirborð
JÖKULL, No. 41, 1991 105