Jökull


Jökull - 01.12.1991, Page 107

Jökull - 01.12.1991, Page 107
Jöklarannsóknafélag íslands Skýrsla formanns á aðalfundi 26. febrúar 1991 SKIPAN STJÓRNAR OG NEFNDA Síðasti aðalfundur Jörfi var haldinn 1. mars 1990. Á fyrsta stjórnarfundi eftir aðalfund, 6. mars s.l., skipti stjórn með sér verkum og dregið var um röð manna í varastjórn. Stjórnin var þannig skipuð: Aðalstjórn: Helgi Björnsson formaður, kosinn 1989 til þriggja ára. Sveinbjörn Björnsson varaformaður, kosinn 1989 til tveggja ára. Einar Gunnlaugsson ritari, kosinn 1989 til tveggja ára. Jón E. fsdal gjaldkeri, kosinn 1990 til tveggja ára og Stefán Bjarnason meðstjórnandi, kosinn 1990 til tveggja ára. Varastjórn: Björn Indriðason 1. varamaður, kosinn 1989 til tveggja ára. Jón Sveinsson 2. varamaður, kosinn 1990 til tveggja ára. Pétur Þorleifsson 3. varamaður, kosinn 1990 til tveggja ára og Ástvaldur Guðmundsson 4. varamaður, kosinn 1989 til tveggja ára. Stjómin kaus formenn hinna ýmsu nefnda og völdu þeir sér nefndarmenn. Nefndir voru þannig skipaðar: Rannsóknanefnd: Helgi Björnsson formaður og Jón Sveinsson Raunvísindastofnun, Hannes H. Haraldsson Landsvirkjun, Oddur Sigurðsson Orkustofnun og Magnús Már Magnússon Veðurstofu. Bílanefnd: Björn Indriðason formaður, Gunnar Guðmunds- son, Guðmundur Marísson, Eiríkur Gunnarsson, Engilhart Björnsson, Bárður Harðarson, Ólafur Nielsen og Magnús Eyjólfsson. Skálanefnd: Stefán Bjarnason formaður, Jón E. ísdal, Ástvaldur Guðmundsson, Gunnlaugur Þórðarson og Pétur Þorleifsson. Ritnefnd: Helgi Bjömsson og Pétur Þorleifsson tilnefndir af Jörfi og Leó Kristjánsson, Karl Grönvold og Kristján Sæmundsson tilnefndir af Jarðfræðafélagi. Skemmtinefnd: Halldór Ólafsson formaður, Bryndís Brandsdóttir, Margrét Isdal og Stefán Bjarnason. Endurskoðendur félagsins voru Elías B. Elíasson og Árni Kjartansson. Hinn 1. febrúar 1991 voru félagar 574, þar af 526 einstaklingar og 48 stofnanir. Auk þess fengu 7 fjölmiðlar sendan Jökul og fréttabréfið. Bréfafélagar, sem eingöngu fá fréttabréfið, voru 38. Félagar vom hinn 1. febrúar 23 fleiri en við sömu mánaðamót fyrra. Á árinu gengu 26 í félagið, en 3 sögðu sig úr því eða létust. RANNSÓKNIR Rannsóknir á vegum félagsins s.l. ár beindust eins og undanfarin ár að Grímsvötnum og mælingum á jökla- breytingum. Á fjárlögum voru veittar 160 000 kr. til jöklarannsókna. Af þeirri fjárveitingu var greiddur útlagður kostnaður sjálfboðaliða við mælingar á jökulsporðum, kostnaður við smíði sýnatökutækis og rafstöðvar í gagnasönunarstöðinni á Grímsfjalli. Vorferð Jörfi. Árleg rannsóknaferð Jörfi var farin til Grímsvatna dagana 9.-16. júní. Fararstjóri var Jón E. Isdal. Landsvirkjun lagði að vanda til snjóbíl og meiðhýsi. Unnið var að eftirtöldum verkefnum: 1. Hæð vatnsborðs Grímsvatna var mæld í borholu við gosstöðvarnar frá 1983 og á miðri íshellu Grímsvatna. Hinn 12. júní s.l. mældist hún 1434 m y.s. Vatnsborðið hafði því risið um 13 m frá því árið áður og náð 5 m hærra en við upphaf Grímsvatnahlaups árið 186. Hæsta staða sem mælst hefur við upphaf hlaups er 1445 m árið 1982. Þeirri hæð hafa Vötnin væntanlega náð nú og búast má því við hlaupi á hverri stundu. 2. Landmælt var 10 km langt snið norðaustur úr Vötnun- um í þeim tilgangi að finna hæðarbreytingar umhverfis Vötnin milli hlaupa. Stefnt er að því að endurmæla sniðið að loknu næsta hlaupi til þess að kanna áhrif hlaups á ísskrið inn að Vötnunum. Við höfum þegar gögn, sem sýna að þegar íshellan sígur í hlaupum, streymir ís inn að dældinni frá svæði, sem er margfalt stærra en Vötnin sjálf og utan við þau lækkar yfirborð JÖKULL, No. 41, 1991 105
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Jökull

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.