Jökull - 01.12.1991, Síða 110
Jöklarannsóknafélags íslands. En þótt Einar hafi óskað að
víkja úr aðalstjórn kvaðst hann fús til þess að taka sæti í
varastjórn, ef þess væri óskað og aðstoða okkur við þann
hluta af fyrra starfi sem sneri að spjaldskrá og félagatali.
Björn Indriðason, sem setið hefur í varastjórn frá árinu
1981, baðst undan endurkosningu. Björn er einn af þeim
ósérhlífnu áhugamönnum, sem unnið hafa mikið sjálf-
boðastarf í félagi okkar í ótal ferðum á jökul, þar sem hann
hefur langt árabil ekið snjóbflum, gert við bilanir og gengið
í öll störf á sinn hógværa og lítilláta hátt, án þess að hafa
viljað láta mikið á því bera. A starfi slíkra manna lifir þetta
félag. I stjórninni hefur hann lagt á ráðin um mörg mál og
þótt hann hverfi nú úr henni vona ég að við getum áfram
leitað til hans um ráð við lausn á ýmsum málum.
Helgi Bjömsson
P.S.
Greinargerð formanns með tillögum að lagabreytingum
Stjórn Jöklarannsóknafélags Islands hefur ákveðið að
flytja breytingartillögur við lög félagsins. Þessar tillögur,
sem unnar voru af þremur stjórnarmönnum, Einari
Gunnlaugsyni, Jóni E. Isdal og Sveinbirni Björnssyni, hafa
verið sendar félögum í 33. fréttabréfi félagsins með
nægilegum fyrirvara eins og lög félagsins mæla fyrir.
Tillögurnar eru tvær.
1. Fyrst eru lög um heiðursfélaga og nefnd til þess að velja
þá. A undanförnum stórafmælum félagsins hafa 12
félagar verið heiðraðir fyrir störf sín í þágu félagsins.
Þeir eru Arni Kjartansson, Ami Stefánsson, Eggert V.
Briem, Guðmundur Jónasson, Gunnar Guðmundsson,
Hörður Hafliðason, Ingibjörg Sigurðardóttir, Magnús
Eyjólfsson, Magnús Jóhannsson, Olafur Nielsen,
Sigurjón Rist og Þórarinn Björnsson. Til þess að koma
reglu á hvernig staðið sé að heiðursviðurkenningu í
félaginu leggur stjórnin til að sett verði í lög ákvæði um
heiðursfélaga og skipuð nefnd til þess að velja þá.
Stjórnin telur að mat á tillögum um heiðursfélaga sé
best komið í valnefnd, eins konar öldungaráði virtra
félaga, sem Iengi hafa starfað í félaginu.
Jafnframt hefur stjóm félagsins ályktað að þeir félagar,
sem á 20, 25 og 30 ára afmælum félagsins voru
heiðraðir af þáverandi formanni og afhent jöklastjarna
því til staðfestingar hafi verið og séu heiðursfélagar
Jöklarannsóknafélags Islands.
2. Önnur tillagan um lagabreytingu er sú að endurvakin
verði ferðanefnd, sem undirbúi jöklaferðir félagsins.
Vorferðir félagins em orðnar svo umfangsmiklar að þær
þarf að undirbúa með löngum fyrirvara í samráði við
rannsóknanefnd, bílanefnd, skálanefnd, stjóm félagsins
og þátttakendur. Æskilegt væri því að stjórnin geti falið
nefnd manna að undirbúa ferðirnar og stjórna þeim,
frekar en að leggja það starf á eina af þeim nefndum,
sem fyrir eru eða allt á einn fararstjóra.
Jarðfræðafélag íslands
Frá starfsemi félagsins starfsárið 1990-1991
25. aðalfundur Jarðfræðafélags Islands var haldinn í stofu
101 í Odda þriðjudaginn 14. maí, 1991. Hér á eftir verður
sagt frá því helsta sem varðar starfsemi félagsins sl. starfsár.
Haldnir voru 7 stjórnarfundir og gefin voru út 4 frétta-
bréf. Einnig hefti með ágripum á vorráðstefnu félagsins.
Félagið tók á móti hópi jarðfræðinga frá Armeníu sem
hingað komu í boði félagsins.
FÉLAGSSTARF
Alls voru flutt 5 fræðsluerindi á vegum félagsins, tvö fyrir
jól og þrjú eftir jól og voru þau vel sótt. Eins dags ráðstefna
var haldin 12. apríl í tilefni af 25 ára afmæli félagsins.
Fyrsti fræðslufundur vetrarins var haldinn 30. október.
Þá fluttu Haukur Jóhannesson, jarðfræðingur á
Náttúrufræðistofnun og prófessor Sigurður Steinþórsson
við Háskóla Islands erindi um hið fræga Skaergaard innskot
108 JÖKULL, No. 41, 1991
á Austur-Grænlandi. Þeir vom í hópi sjö jarðfræðinga sem
fóru í ágúst 1990 til Austur-Grænlands til þess að skoða
Skærgárd og nutu þar leiðsagnar og hjálpsemi þeirra Kent
Brooks, prófessors við Kaupmannahafnarháskóla og dr.
Niel Irvine við Camegie Institution í Washington.
Annar fræðslufundurinn var haldinn 27. nóvember. Elsa
G. Vilmundardóttir og fleiri jarðfræðingar fluttu erindi um
ferð sem þeir fóru til Armeníu dagana 17.-27. september,
1990, íboði Jarðfræðifélags Armeníu.
Föstudaginn 30 nóvember flutti prófessor Eugen Seibold
erindi sem hann nefndi „New trends in Geology". Seibold er
framkvæmdastjóri evrópska vísindaráðsins og var staddur
hér vegna ársfundar Rannsóknaráðs og Vísindaráðs. Fyrir-
lesturinn var haldinn í nafni Jarðfræðafélags Islands og
Háskóla Islands.
Að venju var haldinn jólafundur í Skólabæ, að þessu