Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.2014, Síða 17
Vikublað 18.–20. nóvember 2014 Fréttir Erlent 17
E
vrópubúum fækkar nú óðum
og því verða stöðugt færri
starfandi til að hugsa um þá
sem eldri eru. Hver kona þarf
að eignast að meðaltali 2,1
barn til að halda stofninum við, en
Evrópumeðaltalið er nú komið nið-
ur í 1,6. Ástandið í Þýskalandi er sér-
staklega slæmt, þar sem hver kona
eignast ekki nema 1,35 börn.
Á Norðurlöndum er þetta eilítið
skárra, meðaltalið þar er um 1,9 börn
á konu. Eigi að síður hefur þetta sín
áhrif á fólksfjöldann. Í Svíþjóð er
reiknað með að árið 2050 verði um
25 prósent landsmanna ellilífeyris-
þegar, en þeir eru í dag um 17 pró-
sent. Til að sinna þeim verður að
gerbreyta heilbrigðisþjónustunni,
þá sérstaklega á landsbyggðinni þar
sem erfiðast er fyrir fólk að komast
til lækna. Af þessu tilefni var haldin
ráðstefna í norrænu sendiráðun-
um í Berlín, þar sem sérfræðingar
frá Norðurlöndunum og Þýskalandi
komu saman til að kanna hvað þeir
gætu lært hver af öðrum.
Landsbyggðarlæknar fái
helmings kauphækkun
Ferdinand Gerlach er prófessor í
læknisfræði við Goethe-háskólann í
Frankfurt. Hann segir að í héraðinu
Hessen í Þýskalandi verði tveir þriðju
heimilislækna komnir á eftirlaun eft-
ir áratug en aðeins um helming-
ur þeirra muni finna sér eftirmann.
Hluti af vandamálinu sé sá að nú vilji
allir verða sérfræðingar en fáir vilji
verða heimilislæknar. Því verði of-
framboð af sérfræðingum í þéttbýli
en of fáir almennir læknar fyrir dreif-
býlin. Leggur hann því til að læknar
á landsbyggðinni fái kauphækkun,
allt upp í 50 prósent, sem hvata til að
vera um kyrrt. Leggur hann einnig til
fjárhagshvata svo að fólk fari frekar
í almennt læknanám og síður í sér-
hæfingu.
Stefán Þórarinsson var fulltrúi Ís-
lands á ráðstefnunni, en hann vann
lengi sem héraðslæknir á Aust-
fjörðum. Hann segir að mörgu leyti
sömu vandamál hrjá Ísland, en þau
hafi aukist til muna eftir hrun og sú
freisting að leggja stund á sérfræði-
nám í nágrannalöndunum og dvelja
þar áfram sé mikil. Ekki hafi verið
nóg gert hérlendis til að hvetja menn
til að gerast almennir læknar í sinni
heimasveit.
Raunverulegar Jesú-lækningar
Svíinn Per-Olof Egnell telur að hægt
sé að leysa vandann með tækninýj-
ungum. Hann starfar við Luleå-há-
skóla, en í Norður-Svíþjóð er land-
svæði á stærð við Ísland þar sem
einungis býr um um kvartmillj-
ón manns og því langt á milli staða.
Meðal þess sem hann leggur til er
það sem hann kallar „alvöru Jesú-
tækni“, þar sem lömuðum verði gert
fært að ganga á ný með ytri stoð-
grindum. Með aðstoð slíkra grinda
geti eldra fólk jafnframt borið helm-
ingi fleiri innkaupapoka og frekar
séð um sig sjálft.
Fyrst og fremst telur Egnell lausn-
ina þó liggja í því að veita heilbrigð-
isþjónustu á netinu, sem hann kallar
„eHealth“. Læknar geti þannig vitj-
að allra landsmanna heima hjá sér
netleiðis með aðstoð háhraðakapla,
en héraðið Norrbotten í Svíþjóð ku
vera með besta kerfi af þeim toga
í Evrópu. Þetta muni gefa mörg-
um kost á að búa heima hjá sér sem
annars þyrfti að vista á stofnunum,
og jafnframt veitt læknum tækifæri
til að sinna mun stærri svæðum en
áður.
Þessi þjónusta gerir það að verk-
um að fólk þarf að einhverju leyti að
sinna lækningum sínum sjálft, en þó
með leiðbeiningu læknis sem skoð-
ar það með aðstoð myndavéla. Ef til
vill væri best ef fólk gæti sótt læknis-
þjónustu á spítala, en í samfélagi þar
sem öldruðum fer fjölgandi og hér-
aðslæknum fækkandi eru líklega fáir
aðrir kostir í stöðunni en að leysa
vandann með tækninýjungum. n
Kreppa í heil-
brigðiskerfi Evrópu
n Þurfa tækninýjungar og launahækkun n Fólk gæti endað á að sinna lækningum sjálft
Valur Gunnarsson
valurgunnars@gmail.com
Þarf að fæða 2,1 barn Evrópubúum fækkar nú óðum og því verða stöðugt færri starfandi
til að hugsa um þá sem eldri eru. Hver kona þarf að eignast að meðaltali 2,1 barn til að halda
stofninum við.
„Alvöru
Jesú-tækni
Breytinga þörf Með „etækni“
þurfa læknar ekki lengur að taka á
móti sjúklingum á sjúkrahúsum eða
fara heim til þeirra, heldur geta þeir
vitjað allra landsmanna heima hjá sér
netleiðis með aðstoð háhraðakapla.
n Listi Forbes yfir 72 valdamestu einstaklinga heims n Pútín valdameiri en Obama