Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.2014, Qupperneq 29
Vikublað 18.–20. nóvember 2014 Lífsstíll 29
„Geðveikt gaman“
n Magnús tók þátt í The Color Run á Rimini n Hlaupið verður haldið hér á landi næsta sumar
Þ
etta var mjög skemmtilegt
og hressandi hlaup,“ seg-
ir Magnús Sigurbjörns-
son, sem tók þátt í The
Color Run á Rimini í sum-
ar. Hlaupið hefur verið haldið um
allan heim frá árinu 2011 og verð-
ur haldið hér á landi næsta sumar.
„Það var góð stemning í kringum
þetta og spiluð tónlist bæði fyr-
ir og eftir hlaup-
ið. Þetta var meira
og minna bara
gott partí fyrir alla,
unga sem aldna.“
bætir Magnús við
um hlaupið.
Ætlaði bara að
sóla sig
Það var þó ekki á
döfinni hjá hon-
um að taka þátt í
einhverju hlaupi
þegar hann lá í sól-
baði og afslöppun
á ströndinni á Rim-
ini. „Ég lenti eig-
inlega bara óvart í
þessu. Var að ferð-
ast um Ítalíu og var
staddur á Rimini
þar sem ég ætlaði
nú bara að sóla mig.
En sá þetta hlaup
auglýst og mætti á
svæðið. Það var mik-
ið að gerast í kringum
þetta og ekkert mál að
skrá sig á staðnum.“
Hann hafði ekki
heyrt um hlaupið
fyrr en hann sá það
auglýst á Rimini en
kynnti sér um hvað
það snerist áður en
hann skráði sig til
leiks. „Þetta hljóm-
aði frekar skemmti-
legt þegar ég sá aug-
lýsinguna.“ Magnús
ákvað því að slá til, enda fór
hlaupið nánast fram á ströndinni
sjálfri svo hann þurfti ekki annað
en að standa upp af sólbekknum
og hlaupa af stað.
Snýst ekki um hraða
Hann segist ekki vera mikill hlaup-
ari þó hann hlaupi eitthvað af og
til. En slíkt smáatriði kemur ekki
að sök í The Color Run, enda snýst
hlaupið hvorki um þol keppenda
né tímatöku, heldur bara að hafa
gaman og skemmta sér með lit-
ríkum hætti. „Þetta er talið vera
eitt hamingjusamasta hlaup í
heimi,“ segir Magnús og að hans
mati stendur það vel undir nafni.
„Þetta snýst ekkert um hraða, enda
var engin tímataka í hlaupinu. Ís-
lendingar verða að hafa það í huga,
að þetta er miklu meira skemmti-
hlaup heldur en keppnishlaup.
Íslendingar eiga það til að hafa
keppnisskapið í lagi,“ segir Magn-
ús kankvís.
Keppendur spreyjaðir
með litum
Hlaupið sjálft er fimm kílómetrar
og að sögn Magnúsar er farið gegn-
um fjórar litastöðvar á leiðinni þar
sem keppendur eru spreyjaðir með
mismunandi litum. „Á endanum
kemur maður svo í mark mjög lit-
ríkur og þetta er geðveikt gam-
an.“ Þeir sem ekki geta tekið þátt í
hlaupinu standa við brautina og
hvetja keppendur áfram, þannig að
allir eru með í gleðinni.
Magnús mælir með því að allir
sem hafa tök á því taki þátt í hlaup-
inu á Íslandi. Hann stefnir sjálfur á
að taka þátt og er spenntur að sjá
hvernig þetta mun takast. „Heilu
fjölskyldurnar geta þess vegna tek-
ið þátt saman. Það verður gaman
að sjá Reykjavík svona litríka í júní,“
segir hann að lokum. n
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
solrun@dv.is
Hvað er The
Color run?
The Color Run var fyrst hlaupið í mars
árið 2011. Var tilgangurinn að stuðla
að hamingju og heilbrigði með því að
fá heilu samfélögin til að koma saman
og taka þátt í hamingjuríkasta hlaupi
í heimi. Í lok síðasta árs hafði hlaupið
farið fram á 170 stöðum í yfir 30 löndum.
Um er að ræða 5 kílómetra hlaup án
tímatöku. Í lok hvers kílómetra eru
keppendur spreyjaðir upp úr og niður úr
í mismunandi litum og litagleðin er því
mikil í lok hlaups.
Gleðin heldur svo áfram eftur að hlaup-
inu lýkur, en þá er slegið upp mikilli hátíð
með tónlist, dansi og litakasti.
Það eru aðeins tvær reglur í
hlaupinu:
1. Byrja hlaupið í hvítum bol
2. Enda hlaupið eins og regnboginn
Hlaupið fer fram á Íslandi hinn 6. júní 2015.„ Íslendingar verða
að hafa það í
huga, að þetta er miklu
meira skemmtihlaup
heldur en keppnishlaup.
Litríkur Magnús segir hlaupið vel standa undir
því að vera hamingjuríkasta hlaup í heimi.
Mikil gleði Hlaupinu lýkur með litríkri hátíð.
Hamingjuríkasta hlaup í heimi
Ungir sem aldnir skemmta sér kon-
unglega í The Color Run. Mynd ReuteRS
www.gilbert.is
KLASSÍSK ÍSLENSK ÚR
FYRIR ÖLL TÆKIFÆRI