Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.2014, Blaðsíða 8
8 Fréttir Vikublað 2.–4. desember 2014
T
ilkynningin sem stjórn Lög
reglustjórafélags Íslands
sendi á fjölmiðla til varnar
Sigríði Björk Guðjónsdóttur,
lögreglustjóra á höfuð
borgarsvæðinu, var samin í vinnu
tölvu nánasta samstarfsmanns henn
ar, Öldu Hrannar Jóhannsdóttur,
setts aðstoðarlögreglustjóra á höfuð
borgarsvæðinu. Þetta sést þegar au
kaupplýsingar inni í skjalinu sjálfu
eru skoðaðar. Alda Hrönn situr ekki í
stjórn Lögreglustjórafélagsins en hún
og Sigríður Björk hafa starfað saman
til margra ára, fyrst á Suðurnesjum,
þar sem Alda var aðstoðarlögreglu
stjóri og Sigríður lögreglustjóri, og nú
á höfuðborgarsvæðinu.
Halla Bergþóra Björnsdóttir,
sýslumaður á Akranesi og formað
ur stjórnar Lögreglustjórafélags Ís
lands, segist hafa fengið tölvu Öldu
lánaða til að semja tilkynninguna.
Þrátt fyrir að yfirlýsingin hafi verið
samin á tölvu aðstoðarlögreglustjór
ans á lögreglustöðinni á Hverfisgötu,
hafi Alda þó ekki komið nálægt gerð
hennar. „Ég kom ekki á nokkurn hátt
að samningu fréttatilkynningarinnar.
Ég gaf formanni Lögreglustjóra
félagsins leyfi til að nota mína vinnu
tölvu,“ segir Alda Hrönn í skriflegu
svari við fyrirspurn DV. „Ég sit ekki í
stjórn félagsins og hef aldrei setið. Ég
er einungis búin að vera meðlimur í
félaginu í tvo mánuði.“
Sigríður Björk situr í stjórn Lög
reglustjórafélagsins en formaður
félagsins sagði í samtali við RÚV
á dögunum að Sigríður hefði ekki
komið nálægt yfirlýsingunni. Nú
er hins vegar orðið ljóst að hún var
sett saman í höfuðstöðvum emb
ættis hennar hér í Reykjavík. „Við í
stjórninni að undanskilinni Sigríði
Björk nýttum nútímatækni við samn
ingu ályktunarinnar enda dreifð um
landið,“ segir Halla Bergþóra spurð
um það hvort stjórnarmenn hefðu
fundað um efni tilkynningarinnar
áður en hún fór í loftið.
Tilkynningin vakti furðu
Í tilkynningu Lögreglustjórafélagsins
voru fjölmiðlar sakaðir um að hafa
gert samskipti Sigríðar Bjarkar og
Gísla Freys Valdórssonar, fyrrverandi
aðstoðarmanns innanríkisráðherra,
tortryggileg vegna greinargerðar
sem lögreglustjórinn sendi aðstoðar
manninum. „Lögreglustjórar líta ein
faldlega svo á að ekki þurfi að efast
um umboð starfsmanna ráðuneyt
is til samskipta við lögreglustjóra,“
sagði meðal annars í yfirlýsingunni
sem formaður Lögreglustjórafélags
ins hefur sagt að ríkt hafi einhugur
um á meðal stjórnarmanna.
Tilkynningin vakti furðu ekki
síst vegna þess að sama dag hafði
Fréttablaðið greint frá því að enginn
yfirmaður lögreglu í lögreglu
stjóraumdæmunum sem blaðið
ræddi við vildi kannast við að starfs
maður ráðuneytis, aðstoðarmað
ur ráðherra dómsmála eða ráðherra
sjálfur hringi og biðji um gögn í saka
málarannsókn á vegum lögreglu
embættis. Þá sagði blaðið að sumir
lögreglustjórar, sem það hefði rætt
við, hefðu furðað sig á vinnubrögðum
Sigríðar Bjarkar. Ragnhildur Hjalta
dóttur, ráðuneytisstjóri í innanrík
isráðuneytinu, hafði nokkrum dög
um fyrr greint fréttastofu Stöðvar 2
frá því að aðstoðarmenn innanríkis
ráðherra hefðu ekki rétt til að óska
eftir upplýsingum af þessu tagi.
Þá hefur verið bent á það að Sig
ríður hafi sent greinargerðina í trássi
við reglugerð um meðferð persónu
upplýsinga hjá lögreglu. Persónu
vernd hefur óskað eftir að embætti
lögreglustjórans á Suðurnesjum skýri
frá því hvaða upplýsingum var miðl
að til innanríkisráðuneytisins með
sendingu umræddrar greinargerðar.
Þá er þess óskað að fram komi hvern
ig sú miðlun er talin horfa við ákvæð
um laga um persónuvernd. Í fram
haldinu verður ákveðið hvort málið
verði tekið til formlegrar athugunar.
„Fékk tölvu Öldu lánaða“
Sem fyrr segir er Halla Bergþóra
Björnsdóttir formaður stjórnar Lög
reglustjórafélags Íslands. Hún sendi
yfirlýsinguna úr vinnunetfangi sínu
að loknum hefðbundnum vinnu
tíma klukkan 17.07 mánudaginn 24.
nóvember. Í skriflegu svari við fyrir
spurn DV staðfestir hún að tilkynn
ingin hafi verið samin á tölvu Öldu
Hrannar, aðstoðarlögreglustjóra á
höfuðborgarsvæðinu. „Það liggur
nú þannig í málinu að ég var á fundi
í borginni og ákvað að fara niður á
Hverfisgötu frekar en að fara upp
á Akranes til að ganga frá henni og
senda út. Þar fékk ég tölvu Öldu lán
aða,“ segir Halla sem tekur þó fram að
Alda Hrönn hafi hvergi komið nálægt
málinu: „Langar að taka það fram að
Alda kom hvergi nálægt samningu á
tilkynningunni.“
DV spurði Höllu hvort félagið
teldi það vera almennt og eðlilegt
verklag hjá lögreglustjóra að senda
persónuupplýsingar úr rannsóknar
og sönnunargögnum lögregluemb
ætta landsins til aðstoðarmanna
ráðherra án nokkurrar formlegrar
beiðni. Halla Bergþóra sagði tilkynn
ingu félagsins einungis hafa snúið
að almennum samskiptum: „Yfirlýs
ing stjórnar félagsins snýr eingöngu
að samskiptum ráðuneytis og lög
reglustjóra almennt. Hún þarfnast
ekki frekari skýringa.“ Þannig virð
ist yfirlýsingin ekki hafa snúið að
þeirri gagnrýni sem komið hefur
fram í fjölmiðlum varðandi miðlun
persónuupplýsinga, heldur einung
is að því hvort lögreglustjóri megi
almennt eiga í samskiptum við að
stoðarmann ráðherra og/eða aðra
starfsmenn ráðuneytis.
Tjáir sig ekki
Líkt og komið hefur fram sendi Sig
ríður Björk Gísla Frey yfirheyrslu
skýrslu og greinargerð varðandi
Tony Omos þann 20. nóvember í
fyrra eða stuttu eftir að Gísli Freyr
lak upplýsingum sem byggðu með
al annars á rannsóknargögnum frá
Suðurnesjum til fjölmiðla. Þá upp
lýsti hún lögregluna á höfuðborgar
svæðinu ekki um það meðan á rann
sókn málsins stóð að hún hefði sent
umrædda greinargerð en Gísli Freyr
hafði eytt gögnunum úr tölvupóst
hólfi sínu þegar lögreglurannsóknin
hófst.
DV spurði formann lögreglustjóra
félagsins meðal annars að því hvort
þetta væru eðlileg vinnubrögð en hún
sagðist ekki geta tjáð sig fyrir félag
ið. Ný stjórn Lögreglustjórafélags Ís
lands var kjörin á aðalfundi félagsins
föstudaginn 28. nóvember. Auk Höllu
Bergþóru eru stjórnarmenn þau
Kjartan Þorkelsson, lögreglustjóri á
Hvolsvelli, Ólafur Helgi Kjartansson,
lögreglustjóri á Suðurnesjum, Inger
L. Jónsdóttir, lögreglustjóri Austur
lands, og Úlfar Lúðvíksson, lögreglu
stjóri Vesturlands.
Halla Bergþóra segir nýja stjórn
ekki hafa fjallað um málið og að til
kynningin sé á ábyrgð fyrri stjórnar.
Þá stjórn skipuðu þau Halla Berg
þóra, Ólafur Helgi, Kjartan Þorkels
son, Bjarni Stefánsson og Sigríður
Björk. „Yfirlýsingin var frá þáverandi
stjórn félagsins. Hún hefur látið af
störfum. Ný stjórn hefur ekki fjallað
um þetta mál,“ segir Halla Bergþóra
sem er þó á því að ályktunin standi
enn fyrir sínu. n
n Formaður Lögreglustjórafélagsins segist hafa fengið tölvu aðstoðarlögreglustjórans lánaða
Áralangt samstarf
Alda Hrönn og Sigríður Björk störfuðu saman á Suðurnesjum
Hanna Birna Kristjánsdóttir, fráfarandi
innanríkisráðherra, skipaði Sigríði Björk
í embætti lögreglustjóra höfuðborgar-
svæðisins án auglýsingar. Stefán
Eiríksson hafði sagt starfi sínu
sem lögreglustjóri lausu í
kjölfar afskipta ráðherrans
af rannsókn lekamálsins,
en umboðsmaður Alþingis
hefur málið nú til skoðunar.
Sigríður tók formlega við
embættinu þann 1. september
síðastliðinn. Mánuði síðar var
fyrrverandi samstarfskona hennar
af Suðurnesjum, Alda Hrönn, sett sem
aðstoðarlögreglustjóri í stað Harðar
Jóhannessonar. Hörður var settur yfir
verkefnastjórn hjá ríkislögreglustjóra í
staðinn og það sagt tímabundið til eins
árs. Hörður var einn nánasti sam-
starfsmaður Stefáns á meðan hann fór
fyrir framkvæmd lögreglurannsóknar
á lekamálinu. Sigríður Björk og Alda
Hrönn áttu um árabil náið samstarf sem
lögreglustjóri og aðstoðarlögreglustjóri á
Suðurnesjum.
Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem
Sigríður er skipuð í embætti án
auglýsingar. Árið 2007 skipaði
Björn Bjarnason, þáverandi
dóms- og kirkjumálaráð-
herra, hana í embætti
aðstoðarríkislögreglustjóra
án þess að starfið hefði
verið auglýst. Þá skipaði
hann Sigríði sem lögreglustjóra
á Suðurnesjum árið 2008 í kjölfar
umdeildrar ákvörðunar um að auglýsa
stöðu Jóhanns R. Benediktssonar, þáver-
andi lögreglustjóra, lausa til umsóknar án
nokkurs tilefnis. Jóhann hafði þótt farsæll
í starfi og notið stuðnings á meðal starfs-
manna embættisins. Þrír lykilstarfsmenn
sögðu upp störfum vegna málsins. Alda
Hrönn tók stuttu síðar við starfi aðstoðar-
lögreglustjóra á Suðurnesjum.
Jón Bjarki Magnússon
jonbjarki@dv.is
Samin á lög-
reglustöðinni
Halla Bergþóra,
formaður Lögreglu-
stjórafélagsins,
segist hafa fengið
tölvu Öldu Hrannar,
aðstoðarlögreglu-
stjóra í Reykjavík,
lánaða til að skrifa
tilkynningu þar
sem Sigríði Björk,
lögreglustjóra á höf-
uðborgarsvæðinu
var komið til varnar.
Þá segir Halla að
stjórnarmenn hafi
samþykkt tilkynn-
inguna netleiðis, en
Ólafur Helgi er einn
stjórnarmanna. Tilkynningin var
samin í tölvu Öldu
„Þar fékk
ég tölvu
Öldu lánaða