Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.2014, Síða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.2014, Síða 18
Vikublað 2.–4. desember 201418 Skrýtið Örríki um víða verÖld n Sum stofnuð í gríni en önnur í mótmælaskyni n Ljósmyndari gaf út bók um efnið Í myndaðu þér ef þú gætir stofn- að eigið ríki með eigin reglum. Það kann að hljóma eins og efni í einhvers konar vísindaskáld- sögu en sannleikurinn er sá að um víða veröld eru til slík örríki. Þetta eru landsvæði sem að nafn- inu til eru sjálfstæð eða fullvalda en hafa ekki hlotið alþjóðlega viður- kenningu á sjálfstæði sínu. Sum þessara örríkja hafa verið stofnuð í einhvers konar mótmælaskyni, önnur til að fjölga ferðamönnum en flest bara til gamans. Þetta vakti athygli franska ljós- myndarans Leós Delafontaine sem ákvað árið 2012 að fara í ferða- lag og heimsækja þessar örþjóðir sem eru eins misjafnar og þær eru margar. Afraksturinn gaf hann út á bók sem kom út fyrir skemmstu en tólf örríki, af um 400 á heims- vísu, urðu fyrir valinu. Hér gefur að líta nokkrar myndir og sögur úr bók Delafontaines. n  Sealand-furstadæmið Fyrsta örþjóðin sem Delafontaine heimsótti var Sea- land-furstadæmið. Þetta óvenjulega örríki er staðsett á yfirgefnum palli um 15 kílómetra undan ströndum Bretlands, en umræddur pallur gegndi ákveðnu hlutverki á tímum síðari heimsstyrjaldarinnar. Stofnandi örríkisins var Paddy Roy Bates en hann kom sér fyrir á pallinum árið 1967. Árið 1999 tók sonur Paddys, Prince Michael, við stjórnartaumum furstadæmisins. Eftir að eldur kviknaði á pallinum reyndi Michael að selja hann en engir kaupendur fundust. Sealand- furstadæmið er með eigin fána, eigin gjaldmiðil og gefur jafn- vel út vegabréf. Fjórir íbúar eru í furstadæminu óviðurkennda. Einar Þór Sigurðsson einar@dv.is  Lýðveldið Saugeais Við landamæri Frakklands og Sviss, á svæði sem tilheyrir Frakklandi, stendur Saugeais-lýðveldið sem var stofnað í hálfgerðu gríni árið 1947. Ellefu bæir, með rúmlega fjögur þúsund íbúa, eru innan þess lands sem Saugeais gerir tilkall til. Í dag er Saugeais vinsæll ferðamannastaður og þurfa ferðamenn að greiða sérstakt gjald til að fá að skoða sig um. Lýðveldið Molossía  Eitt þekktasta örríki heims er lýðveldið Molossía sem stendur við eyðimerkurbæinn Dayton í Nevada í Bandaríkjunum. Molossía var stofnað af þremur unglingum árið 1977 en síðan þá hefur margt breyst. Nafni örrík- isins hefur verið breytt nokkrum sinnum, en upphaflega hét það Stórlýðveldið Vuldstein. Sá sem nú heldur um stjórnartaumana heitir Kevin Baugh og hefur hann helgað líf sitt Molossíu. Þannig hefur hann stofnað pósthús, tollgæslu og eigin sjónvarpsstöð.  Stofnaði þrjú ríki Bandaríkjamaðurinn Trav- is McHenry stofnaði sitt fyrsta örríki þegar hann var fimmtán ára. Síðan þá hefur hann stofnað þrjú, nú síðast Calsahara sem stendur á 24 ferkílómetra svæði í Kaliforníu sem amma hans gaf honum. Calsahara dregur nafn sitt einmitt af Kaliforníu og Sahara-eyðimörkinni – Calsahara. Örríkið er með eigin mynt og gefur einnig út frímerki, en á því má sjá mynd af sjálfum kóngin- um, Travis McHenry, skælbrosandi. Vildir þú búa þarna? Furstadæmið stendur á palli úti í ólgusjó úti fyrir ströndum Bret- landseyja. Paddy Roy Bates kom sér fyrir á pallinum árið 1967. Landamæravörður Lýðveldið Saugeais var stofnað í hálfgerðu gríni árið 1947. Ferðamenn þurfa að greiða gjald til að skoða sig um þar. Einræðisherra? Travis McHenry hefur stofnað þrjú ríki. Hann er kóngur Calsahara, örríkis í Kaliforníu. Aðskilnaður Í Molossíu er gefið skýrt til kynna að Molossia sé ekki hluti af Bandaríkjunum. Þar má meðal annars finna posthús og tollgæslu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.