Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.2014, Page 38
Vikublað 2.–4. desember 201438 Fólk
Vikingo frumsýnd
Fjölmenni var á frumsýningu nýjustu heimildamyndar Þorfinns Guðnasonar
N
ýjasta heimildamynd
Þorfinns Guðnasonar,
Vikingo, um Jón Inga
Gíslason sem hefur síð-
astliðin tuttugu ár stund-
að hanaat í Dómíníska lýðveldinu,
var frumsýnd í Kringlubíói í síðustu
viku. Nafn myndarinnar er dregið
af gælunafni Jóns Inga, sem hann
er þekktur undir þar í landi. Fjöl-
margir komu og fögnuðu með Þor-
finni á frumsýningu myndarinnar.
Hann glímir við erfitt krabbamein
en bar sig þó vel á frumsýningunni.
Hann hefur dvalið á spítala upp á
síðkastið og lauk til að mynda við
klippingu myndarinnar í hálfgerðri
rúmlegu. n
Kvikmyndagerðarmenn Þeir Ari Alexander og Friðrik Þór Friðriksson þekkja
bransann út í gegn og láta sig ekki vanta á frumsýningar.
Létt í lund
Myndlistarkonan
Þuríður Sigurðardóttir og
eiginmaður hennar, Friðrik
Ingvar Friðriksson, voru
glaðleg fyrir sýningu.
Popp og kók
Rithöfundurinn Andri
Snær Magnason
splæsti í stóran popp
fyrir sýninguna og
bauð Þorfinni með sér.
Samrýnd hjón Hjónin
Guðni Ágústsson og Margrét
Hauksdóttir kíktu í bíó.
Fagnað Lísa
Pálsdóttir og
Björgúlfur Eg-
ilsson fögnuðu
með Þorfinni
á frumsýn-
ingunni.
Tónlistarhjón
Einar Rúnarsson og
Andrea Gylfadóttir létu
sig ekki vanta.
Jólastemning í Turninum
Í
slenska lögfræðistofan bauð í
veglegt jólapartí í húsakynnum
sínum í Turninum í Kópavogi
síðastliðinn föstudag. Margt
var um manninn og gæddu gest-
ir sér á veitingum í anda jól-
anna. Nokkrir af helstu stjörnu-
lögfræðingum landsins litu við í
Turninn og nutu jólastemningar
eins og hún gerist best.
Laglegir lögfræðingar Fyrrverandi alheimsfegurðardrottningin Unnur Birna Vilhjálmsdóttir ásamt
manni sínum Pétri Rúnari Heimissyni og Hauki Erni Birgissyni, einum eigenda Íslensku lögfræðistofunnar.
Unnur Birna starfar á stofunni.
Feðgastund Haukur Örn ásamt feðgunum Gunnlaugi, Ívari og
Jóni Steinari Gunnlaugssyni, fyrrverandi hæstaréttardómara.
Flottar skvísur Nöfnurnar Svanhvít og Svan-
hvít gerður sér glaðan dag ásamt Írisi, í Turninum.
Jólalegir og glaðir Kormákur og
Kristján skáluðu í einum öl og stilltu sér
upp fyrir ljósmyndara.