Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.2014, Síða 38

Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.2014, Síða 38
Vikublað 2.–4. desember 201438 Fólk Vikingo frumsýnd Fjölmenni var á frumsýningu nýjustu heimildamyndar Þorfinns Guðnasonar N ýjasta heimildamynd Þorfinns Guðnasonar, Vikingo, um Jón Inga Gíslason sem hefur síð- astliðin tuttugu ár stund- að hanaat í Dómíníska lýðveldinu, var frumsýnd í Kringlubíói í síðustu viku. Nafn myndarinnar er dregið af gælunafni Jóns Inga, sem hann er þekktur undir þar í landi. Fjöl- margir komu og fögnuðu með Þor- finni á frumsýningu myndarinnar. Hann glímir við erfitt krabbamein en bar sig þó vel á frumsýningunni. Hann hefur dvalið á spítala upp á síðkastið og lauk til að mynda við klippingu myndarinnar í hálfgerðri rúmlegu. n Kvikmyndagerðarmenn Þeir Ari Alexander og Friðrik Þór Friðriksson þekkja bransann út í gegn og láta sig ekki vanta á frumsýningar. Létt í lund Myndlistarkonan Þuríður Sigurðardóttir og eiginmaður hennar, Friðrik Ingvar Friðriksson, voru glaðleg fyrir sýningu. Popp og kók Rithöfundurinn Andri Snær Magnason splæsti í stóran popp fyrir sýninguna og bauð Þorfinni með sér. Samrýnd hjón Hjónin Guðni Ágústsson og Margrét Hauksdóttir kíktu í bíó. Fagnað Lísa Pálsdóttir og Björgúlfur Eg- ilsson fögnuðu með Þorfinni á frumsýn- ingunni. Tónlistarhjón Einar Rúnarsson og Andrea Gylfadóttir létu sig ekki vanta. Jólastemning í Turninum Í slenska lögfræðistofan bauð í veglegt jólapartí í húsakynnum sínum í Turninum í Kópavogi síðastliðinn föstudag. Margt var um manninn og gæddu gest- ir sér á veitingum í anda jól- anna. Nokkrir af helstu stjörnu- lögfræðingum landsins litu við í Turninn og nutu jólastemningar eins og hún gerist best. Laglegir lögfræðingar Fyrrverandi alheimsfegurðardrottningin Unnur Birna Vilhjálmsdóttir ásamt manni sínum Pétri Rúnari Heimissyni og Hauki Erni Birgissyni, einum eigenda Íslensku lögfræðistofunnar. Unnur Birna starfar á stofunni. Feðgastund Haukur Örn ásamt feðgunum Gunnlaugi, Ívari og Jóni Steinari Gunnlaugssyni, fyrrverandi hæstaréttardómara. Flottar skvísur Nöfnurnar Svanhvít og Svan- hvít gerður sér glaðan dag ásamt Írisi, í Turninum. Jólalegir og glaðir Kormákur og Kristján skáluðu í einum öl og stilltu sér upp fyrir ljósmyndara.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.