Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.2014, Qupperneq 8
Vikublað 9.–11. desember 20148 Fréttir
Kaffitár skoðar réttar-
stöðu sína gegn Isavia
n Drífa hefur stefnt Isavia n Fyrirtæki vilja rökstuðning frá Isavia fyrir synjun um húsnæði
Þ
að var hagstæðara en önn-
ur tilboð sem bárust. Það
er valnefnd sem velur
það samkvæmt fyrirfram
ákveðnum stöðlum,“ segir
Friðþór Eydal, upplýsingafulltrúi
Isavia, aðspurður af hverju tilboði
íslenska veitingastaðarins Nord
og franska fyrirtækisins Lagardére
Services í veitingahúsarými í Leifs-
stöð var tekið.
Í valnefndinni sátu fjórir starfs-
menn Isavia: Hlynur Sigurðsson,
Hrönn Ingólfsdóttir, Stefán Jóns-
son og Sveinbjörn Indriðason.
Auk þess var einn erlendur ráð-
gjafi, Frank Grey, í valnefndinni en
hann kemur frá fyrirtæki sem heit-
ir CPI.
Sexföldun og málsókn
Líkt og DV greindi frá á föstu-
daginn þá á eiginkona aðstoðar-
kaupfélagsstjóra Kaupfélags Skag-
firðinga á Sauðárkróki, Sigurjóns
Rúnars Rafnssonar, ríflega 23 pró-
senta hlut í veitingastaðnum Nord.
Tilboði Nord og Lagardére Services
í útboði Isavia í haust á verslunar-
rými í Leifsstöð var tekið af val-
nefnd Isavia en saman munu þessi
tvö fyrirtæki eiga og reka Nord,
Segafredo-kaffihús, veitingastað
með sjálfsafgreiðslu sem og bar í
flugstöðvarbyggingunni. Nord fer
því frá því að reka einn veitinga-
stað í Leifsstöð og yfir í að reka
eina sex.
Útboð Isavia var afar umdeilt
fyrr í haust og voru ýmsir tilboðs-
gjafar ósáttir við vinnubrögðin við
það. DV greindi einnig frá því að
fyrirtækið Drífa ehf. hefði stefnt
Isavia fyrir meint ólögmæt vinnu-
brögð við úthlutun á leiguhús-
næðinu í Leifsstöð. Drífa ehf. vill
frá skaðabætur frá íslenska ríkinu
sem nema ætluðum hagnaði fyrir-
tækisins af vörusölu í Leifsstöð
næstu fjögur árin: Ríflega 900
milljónir króna. Áætluð vörusala
fyrirtækisins, sem sérhæfir sig í
sölu ýmiss konar prjónavöru og
minjagripa, er tæplega fimm millj-
arðar króna. Drífa ehf. hefur haft
vörur sínar til sölu í Leifsstöð síð-
an árið 1988.
Kaffitár skoðar stöðu sína
Önnur fyrirtæki, sem ekki fengu
úthlutað húsnæði í útboði Isavia,
skoða nú einnig réttarstöðu sína.
Aðalheiður Héðinsdóttir, eigandi
og stofnandi Kaffitárs, segir að
fyrir tækið hafi sent kærubréf til úr-
skurðarnefndar um upplýsinga-
mál vegna þess að fyrirtækið hafi
ekki fengið nægjanlega góðan
rökstuðning fyrir þeirri ákvörðun
Isavia að hafna umsókn þess um
húsnæði í Leifsstöð. Kaffitár hef-
ur rekið tvo kaffistaði í Leifsstöð;
annan í fríhöfninni sjálfri og hinn
utan hennar á jarðhæðinni þar
sem innritunarborðin eru staðsett.
Aðalheiður segir að Kaffitár
hafi ekki tekið ákvörðun um hvort
dómsmál verður höfðað: „Við höf-
um ekki tekið ákvörðun um það.
Við vorum að senda á föstudaginn
annað kærubréf til úrskurðarnefnd-
ar um upplýsingamál. Við sendum
kærubréf til nefndarinnar, Isavia
svaraði og nú erum við búin að
svara bréfi þeirra. Við ætlum að
sjá hvað kemur út úr því áður en
við ákveðum næstu skref. Við vilj-
um ekki ákveða hvort við förum í
skaðabótamál fyrr en við fáum úr-
skurð frá nefndinni.“
Um 20 prósent af veltu
Ástæðan fyrir því að Kaffitár leitar til
úrskurðarnefndar um upplýsinga-
mál er sú að skort hafi á rökstuðn-
ing frá Isavia fyrir niðurstöðunni að
velja ekki tilboð kaffifyrirtækisins.
„Við fengum engan rökstuðning.
Bara engan. Við fengum einkunn
fyrir hvert atriði. En við feng-
um engan rökstuðning fyrir því af
hverju við fengum þessar einkunn-
ir […] Röksemdafærsla Isavia er að
þetta hafi ekki verið útboð og að
þess vegna þurfi þeir ekki skila rök-
stuðningi fyrir niðurstöðum sín-
um.“
Í stefnu Drífu í málinu gegn
Isavia er einnig rakið hvernig það
fyrirtæki telur að skort hafi á rök-
stuðning frá Isavia fyrir þeirri
niðurstöðu að taka ekki tilboði
Drífu en fyrirtækið vildi fá þennan
rökstuðning til að glöggva sig á því
af hverju tilboði þess var ekki tek-
ið. Orðrétt segir í stefnunni: „Stefn-
andi er fullviss um að tilboð hans
voru hagkvæmustu sem bárust í
útboðinu. Það kom stefnanda því
mjög á óvart að tilboð hans skyldu
ekki vera valin. Stefnandi taldi því
nauðsynlegt að fá rökstuðning og
útskýringar fyrir þeirri ákvörðun
stefnda að taka ekki tilboðum
stefnanda.“
Miklir hagsmunir eru undir hjá
Kaffitári en Aðalheiður segir að
um 20 prósent af tekjum fyrirtæk-
isins komi í gegnum kaffihúsin í
Leifsstöð. Kaffitár rekur alls átta
staði, fimm í Reykjavík og þrjá á
Suðurnesjum. Hún segir að hingað
til hafi Kaffitár ekki einu sinni feng-
ið upplýsingar um við hvaða önn-
ur fyrirtæki það var að keppa. „Okk-
ur finnst flest benda til að ekki hafi
verið staðið rétt að þessu. Við fáum
ekki einu að vita við hverja við vor-
um að keppa,“ segir Aðalheiður.
Endurskoðun getur skoðað
málið
Isavia ohf., sem er hlutafélag í eigu
íslenska ríkisins, heyrir undir Ríkis-
endurskoðun sem ber að endur-
skoða, eða láta endurskoða, árs-
reikninga fyrirtækisins. Sveinn
Arason ríkisendurskoðandi segir
í samtali við DV að Ríkisendur-
skoðun geti jafnframt spurst fyrir
um starfsemi Isavia, eða einstaka
þætti í henni, ef svo ber undir, til
dæmis ef ábendingar berast um
meint, óeðlileg vinnubrögð. „Við
gætum spurst fyrir um það. Oftast
myndi það vera á grundvelli ein-
hverra ábendinga sem kæmu fram.“
Sveinn segir hins vegar að engar
slíkar ábendingar hafi komið fram
varðandi útboð Isavia í Leifsstöð. n
Ingi Freyr Vilhjálmsson
ingi@dv.is
Bíða niðurstöðu
úrskurðarnefndar
Aðalheiður Héðinsdóttir
segir að Kaffitár bíði niðurstöðu
úrskurðarnefndar um upplýsinga-
mál áður en ákvörðun verður tekin
um hugsanlegt skaðabótamál
gegn íslenska ríkinu út af útboð-
inu í Leifsstöð. Mynd SIgtryggUr ArI
Sérstök valnefnd Sérstök valnefnd sem í sátu fjórir fulltrúar frá Isavia og einn erlendur
ráðgjafi völdu úr tillögunum sem bárust um húsnæði í Leifsstöð. Mynd SIgtryggUr ArI JóhAnnSSon
„Okkur finnst
flest benda
til að ekki hafi verið
staðið rétt að þessu
Eins og náttúran hafði í hyggju
• Magnesíumsprey sem virkar strax!
• Slakandi, bætir svefn og slær á
fótaóeirð og sinadrátt
• Frábær upptaka
Sefurðu illa?
MagnesiumOil
Spray
Fæst í flestum apótekum, Lifandi Markaði, Heilsuhúsinu,
Fjarðarkaup og Systrasamlaginu
Nánari upplýsingar á www.gengurvel.is
og á Facebook síðunni Better You Ísland
PREN
TU
N
.IS
Goodnight