Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.2014, Blaðsíða 12
Vikublað 9.–11. desember 201412 Fréttir
Ú
tlit er fyrir að hagnaður í ís-
lenskum sjávarútvegi gæti
dregist saman á næstu árum
ef fyrirtæki bregðast ekki
við samdrætti í afla. Kristján
Hjaltason benti á þennan samdrátt í
máli sínu á Sjávarútvegsráðstefnunni
nýverið en hann er einn af stofnend-
um hennar. Milli áranna 2013 og 2015
er líklega um 300.000 tonna samdrátt
í heildarframboði sjávarafurða frá Ís-
landi að ræða en Kristján segir mik-
ilvægt að íslensk fyrirtæki geri ráð-
stafanir. Heildarframboð sjávarfangs
frá Íslandi mun fara úr 1.440.000
tonnum árið 2013 í 1.180.000 tonn í
ár. Þá spáir Kristján enn frekar sam-
drætti árið 2015 eða niður í 1.140.000
tonn. Mestu munar um samdrátt
í uppsjávar veiðum en gríðarlegur
uppgangur hefur verið í þeim geira
undanfarin ár, helst vegna mikillar
makrílgengdar.
Heildarútflutningstekjur námu
278 milljörðum árið 2012 en 282
milljörðum árið 2013. Kristján spáir
því að útflutningsverðmæti verði um
260 milljarðar í ár og árið 2015.
Fyrirtæki bregðist við
„Markmið mitt var að vekja athygli
á því sem mun gerast svo fyrirtæki
geti undirbúið sig og gert ráðstafanir,
meðal annars með því að gera meiri
verðmæti úr minni afla,“ segir Krist-
ján í samtali við DV.
Kristján telur skilvirkustu leiðina
til að draga úr kostnaði að hagræða
í útgerðinni. „Mesti kostnaðurinn er
útgerðarkostnaður. Því þarf að skoða
hvort hagræða megi á því sviði. Nota
færri skip til að ná í aflann. Á móti
kemur að olíuverð fer lækkandi sem
dregur úr kostnaði.“
Uppgangur í ferskum þorski
„Varðandi vinnsluna er þetta spurn-
ing um að framleiða dýrari vöru og
fá hærra verð á hvert kíló. Sú þróun
sem við höfum séð í ferskum þorski
undanfarin ár er til dæmis mjög já-
kvæð,“ en fersk þorskflök og -bitar
eru verðmætasti einstaki afurða-
flokkurinn í greininni. Útflutningur á
ferskum þorskflökum og -bitum hef-
ur meira en tvöfaldast frá árinu 2008.
Þrátt fyrir þessa jákvæðu þróun megi
enn gera betur þar sem afurðaverð
þorsks á hvert hráefniskíló hafi lækk-
að á síðustu árum. Það stóð í 412 kr/
kg árið 2012 en 380 kr/kg árið 2013.
Þó nokkrar verðsveiflur hafa verið á
mörkuðum. Miklu munar um verð-
þróun á Frakklandsmarkaði sem er
mikilvægasti markaður íslenskra
fyrirtækja fyrir ferskar þorskafurð-
ir. Á Frakklandsmarkaði fór meðal-
kílóverð fyrir þorskhnakka (bita) úr
10 evrum árið 2011 í 7,5 evrur árið
2013 samkvæmt tölum frá Hagstof-
unni.
Skammtímagróði og óvissa
Kristján segir erfiðara að spá fyrir um
þróun á mörkuðum og jafnvel vara-
samt að elta verð of mikið. „Það er
ómögulegt að segja til um nákvæm-
lega hvernig verð mun þróast á mörk-
uðum. Íslensk fyrirtæki hafa í gegn-
um tíðina verið of gjörn á að elta verð
og skammtímagróða. Missa þannig
markaðsstöðu. Þó eru nokkur fyrir-
tæki sem standa sig mjög vel, halda
góðu verði og sterkri stöðu á sömu
mörkuðunum ár eftir ár.“
Ein helsta óvissan á næstu miss-
erum er varðandi markaði fyrir upp-
sjávarfisk þar sem Rússland er mikil-
vægasta markaðssvæðið og Úkraína
kemur næst í röðinni.
Markaðssetja uppruna
Þátt fyrir þessa óvissu og samdrátt í
afla sér Kristján mikið tækifæri í því
að huga að aukinni markaðssetningu
í íslenskum sjávarútvegi. Markaðs-
setja íslenska sérstöðu og aðgreina ís-
lenskar vörur sem sé flókið en verðugt
verkefni.
„Uppsjávarfiskurinn er mikil
magn vara og þar ertu oft með minni
sérstöðu. Hinum megin, eins og í
frysta bolfisknum, er Ísland yfirleitt
með gott orð á sér og fær yfirleitt
hátt verð. Ástæðan er jákvæð ímynd
og vöruvöndun. En menn hafa samt
ekki verið duglegir við að auglýsa eða
Verða að bregðast Við
n Samdráttur í afla n Mikil tækifæri í markaðsstarfi n Íslenskur uppruni ósýnilegur n Margföldun í útflutningi fersks þorsks
Ásgeir Jónsson
asgeir@dv.is
25.000.000
20.000.000
15.000.000
10.000.000
5.000.000
0
Flök (Ísl) Bitar (Ísl) Flök (Ísl) Bitar (Ísl)
0
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
EUR / kg
K
g
2008 2009 2010 2011 2012 2013
Aukningin hefur verið mjög mikil undanfarin ár.
Útflutningur á ferskum
þorskflökum og -bitum
TölUr FrÁ HagSToFU ÍSlandS
19
95
Þú
s.
to
nn
0
500
1.000
1.500
2.000
19
96
19
97
19
98
19
99
20
00
20
01
20
02
20
03
20
04
20
05
20
06
20
07
20
08
20
09
20
10
20
11
20
12
20
13
20
14
áæ
tl
un
20
15
sp
á
Heildarframboð sjávarfangs 1995–2015
Áætlað framboð 2014 og spá fyrir 2015 (tonn)
HeiMild FacTS oF SeaFood / kriSTJÁn HJalTaSon
Íslenskt? Vandasamt
getur verið að tengja
vöru við upprunaland en
flestir í íslenskum sjávar-
útvegi telja mikilvægt að
vinna markvisst að því.
Bjóða í
afmælisveislu
Íslandsfélag Rauða krossins
fagnar þeim tímamótum mið-
vikudaginn 10. desember að þá
eru liðin 90 ár frá stofnfundi fé-
lagsins sem fram fór í Eimskipa-
félagshúsinu árið 1924 þar sem
Sveinn Björnsson, síðar fyrsti
forseti lýðveldisins, var kjörinn
formaður Rauða krossins.
Rauði krossinn rekur allar
sjúkraflutningabifreiðar á Ís-
landi, heldur skyndihjálpar-
námskeið og sinnir aðhlynningu
í neyð.
„Má þar nefna félagslega að-
stoð til innflytjenda, aldraðra og
annarra sem upplifa félagslega
einangrun. Rauði krossinn veitir
hælisleitendum og flóttamönn-
um aðstoð og hefur frá 25. ágúst
í ár annast allt málsvarastarf fyr-
ir hælisleitendur. Athvörf eru
rekin fyrir fólk með geðraskanir,
Konukot er starfrækt fyrir heim-
ilislausar konur og hjálparsím-
inn 1717 hefur ófáum hjálpað,“
segir í tilkynningu frá samtök-
unum.
Að undanförnu hefur Rauði
krossinn á Íslandi átt fulltrúa í
Síerra Leóne þar sem ebólufar-
aldur geisar, verkefni hafa verið
rekin í Malaví og Sómalílandi
þar sem komið hefur verið á fót
heilsugæslu á hjólum og að-
búnaður skólabarna hefur verið
bættur. „Langtímaverkefni eru
einnig í fullum gangi í Hvíta-
Rússlandi, Kákasuslöndunum
og í stríðshrjáðri Palestínu. Þá
er ótalin neyðaraðstoð sem veitt
var í formi mannafla og sér-
fræðiþekkingar í Filippseyjum í
kjölfar fellibylsins Haiyan.“
Starfsmenn Rauða krossins
segja að án stuðnings frá ís-
lenskum almenningi hefðu
mörg verkefnanna aldrei orðið
að veruleika og segja að íslenskir
sjálfboðaliðar eigi skilið sérstakt
þakklæti fyrir störf sín á undan-
förnum 90 árum.
Á þessum tímamótum býður
Rauði krossinn til afmælisveislu
í húsi félagsins við Efstaleiti 9 í
Reykjavík á miðvikudaginn, 10.
desember, og eru allir hjartan-
lega velkomnir. Húsið verð-
ur opið milli 14 og 18 og verð-
ur kaffi og kræsingar í boði auk
ýmissa uppákoma.
Tónastöðin • Skipholti 50d • Reykjavík • sími 552 1185 • www.tonastodin.is
Láttu drauminn rætast.