Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.2014, Síða 26
Vikublað 9.–11. desember 201426 Sport
S
íðasta sumar mistókst Paris
Saint-German að festa kaup
á ónefndri stórstjörnu. Margir
hafa nefnt vængmanninn
Angel Di Maria sem lengi var
orðaður við félagið áður en hann fór
til Manchester United. Það hefur ekki
fengist staðfest en það var hin nýja
Financial Fair Play-regla sem kom í
veg fyrir kaupin. Nú eru uppi tilgát-
ur um að aðeins sé tímaspursmál
hvenær reynt verður á lögmæti FFP
fyrir dómstólum.
Vefsíðan Bleach Report fjallar um
málið og veltir upp þeirri spurningu
hvort nýtt Bosman-mál sé í uppsigl-
ingu. Jean-Marc Bosman var leik-
maður sem höfaði mál fyrir dómstól-
um sem gerbreytti leikmannamarkaði
knattspyrnunnar til frambúðar og
leyfði frjálsa sölu. Sem sagt, leikmenn
gátu yfirgefið lið í lok samningstíma
án greiðslu. Málið snerist einnig um
frjálst flæði vinnuafls innan Evrópu-
sambandsins og varð til þess að ekki
var hægt að takmarka fjölda erlendra
leikmanna frá Evrópusambandslönd-
um.
Sagt stop við PSG
En aftur að FFP-málinu. PSG var við
það að ganga frá kaupunum fyrir
stjarnfræðilega upphæð og tryggja
óþekktu stjörnunni ein hæstu laun-
in í bransanum. En sem fyrr sagði
braut það gegn FFP-reglum Evrópska
knattspyrnusambandsins, UEFA.
PSG hafði þá þegar samþykkt að tak-
marka hallarekstur sinn við 4,5 millj-
arða króna, eða 30 milljónir evra. Fé-
lagið átti einnig að vera rekið á núlli
tímabilið eftir og sjá til þess að launa-
kostnaður yrði ekki hærri en tímabilið
2013/2014.
Allir aðilar málsins, PSG, leikmað-
urinn og liðið sem vildi selja voru ósátt
við niðurstöðuna. Þau ráð fengust frá
lögfræðingum þeirra að láta reyna á
málið fyrir dómstólum á svipuðum
grunni og Bosman-málið var byggt á.
Sem sagt lögunum um frjálst flæði at-
vinnuafls og samkeppnislögum.
Þrátt fyrir það varð ekkert um lög-
sóknir. Ástæðan gæti meðal annars
verið sú að Bosman eyddi mörgum
árum í réttarsalnum og hafði sjálfur
lítið upp úr því. Leikmaðurinn gæti
því mögulega hafa óttast réttarhöld.
Brot á lögum
Í júní síðastliðnum birti lög-
fræðingurinn Nicolas Petit, prófessor
í lögfræði við háskólann í Liege í
Frakklandi, grein þar sem hann fjall-
aði um Financial Fair Play og nokk-
uð líklegt að reglurnar brytu í bága
við samkeppnislög ESB. Ef reglurnar
yrðu kærðar þyfti framkvæmdastjórn
ESB líklega að taka ákvörðun um
hvort þær fengju að lifa eða ekki.
Lögfræðingurinn sem rak
Bosman-málið, Jean-Louis Dupont,
hefur þegar farið með kvörtun fyr-
ir framkvæmdastjórnina fyrir hönd
leikmanns en henni var hafnað á
þeim grundvelli að reglurnar fjöll-
uðu um leiðina en ekki leikmenn-
ina. Hann er því að undirbúa nýja
kvörtun fyrir hönd stuðningsmanna
PSG og Manchester City sem einnig
hafa verið settar skorður á grundvelli
FFP.
Ótrúlegar upphæðir
Forseti UEFA, Micel Platini, er harð-
asti stuðningsmaður FFP enda
reglurnar hans hugarfóstur. Þær eiga
að koma í veg fyrir gífurlegan tap-
rekstur stærstu liða heims og koma
í veg fyrir þær ótrúlegu upphæð-
ir sem sjást í viðskiptum með leik-
menn. Árið 2011 töpuðu stærstu
liðin í Evrópu samtals 1,7 milljörðum
evra eða 2.600 milljarða króna. Þótti
stjórnendum UEFA nóg komið en
margir hafa fagnað reglunum.
Í síðasta félagsskiptaglugga var eytt
2,8 milljörðum bandaríkjadala, eða
um 290 milljarða króna. Alls 82 pró-
sent þeirrar upphæðar var innan Eng-
lands, Frakklands, Þýskalands, Ítalíu
og Spánar. 72 prósent af þeirri upp-
hæð var svo eytt innan efstu deilda í
löndunum fimm.
Chelsea skiptir um taktík
Chelsea er einn þeirra klúbba sem
hefur til dæmis tekið málinu fagn-
andi þrátt fyrir að vera það lið sem
sennilega lagði grunninn að því um-
hverfi sem verið er að vinna gegn.
Liðið hefði lent í sömu vandræðum og
nýju risarnir, PSG og City, ef Roman
Ambramovich hefði keypt liðið árið
2013 en ekki 2003.
Með tilkomu FFP og til þess að
koma í veg fyrir endalausan taprekstur
tók Chelsea upp nýja stefnu í leik-
mannamálum sem felst í því að kaupa
efnilega leikmenn í stórum stíl og lána
þá áfram til seljandans eða annarra
liða. Samkvæmt heimasíðu liðsins
eru 19 slíkir leikmenn nú á lánssamn-
ingum víðs vegar um Evrópu. Þeir
sem komast svo ekki í liðið eru seld-
ir. Til dæmis fékk Chelsea 40 milljón-
ir punda fyrir þá Romelu Lukaku og
Kevin De Bryune fyrir þessa leiktíð.
Það er 2/3 af upphæðinni sem félag-
ið greiddi fyrir Cesc Fabregas og Diego
Costa. Bestu leikmenn úrvalsdeildar-
innar hingað til og síðustu púslin
sem þurfti til að koma Chelsea aftur á
meðal þeirra allra bestu.
Ásakanir um afskipti í Hollandi
En ekki virðist allt slétt og fellt í þess-
um málum hjá Chelsea. Hollenska
knattspyrnusambandið rannsakar
nú liðið Vitesse Arnheim en þangað
hefur Lundúnarisinn lánað og keypt
einnig ófáa leikmenn. Fyrrverandi
eigandi liðsins, Mereb Jordania, hef-
ur sakað Lundúnarisann um að hafa
fyrirskipað að Vitesse skyldi forðast að
komast í meistaradeildina árið 2013.
Þá hafa forráðamenn Ajax haldið
því fram að Chelsea hafi fyrirskipað að
Marco van Ginkel yrði seldur til þeirra
frekar en Ajax. Vitesse er nú í eigu Al-
exander Chigirinsky sem er viðskipa-
félagi Abramovich.
Vilja banna TPO-viðskipti
Það hefur verið gagnrýnt mikið að
á sama tíma og setja eigi reglur um
fjármál stórliða leyfist þeim að kaupa
upp unga leikmenn í stórum stíl, lána
til annarra liða og hreinlega ráðskast
með heilu liðin. Jafnvel heilu deild-
irnar.
Ekki er útlit fyrir að tekið verði á
þessu innan FFP en næst vill Platini
nú bæta banni við svokölluðum
TPO-viðskiptum. Það er að segja að
bannað sé fyrir þriðja aðila að eiga
„réttinn“ að leikmanninum. Slíkt hef-
ur þegar verið bannað í Englandi eft-
ir allt fjaðrafokið í kringum kaup West
Ham United á þeim Carlos Tevez og
Javier Mascherano á sínum tíma.
TPO-viðskipti hafa reynst nokkrum
liðum vel. Reyndar svo vel að Atletico
Madrid tókst hið ómögulega í fyrra.
Að ná spænska meistaratitlinum úr
höndum Real Madrid og Barcelona
þrátt fyrir að liðið sé bara með 1/10 af
tekjum risanna. Þá tókst liðinu næst-
um því að landa Meistaradeildartitl-
inum líka. Einnig hafa FC Proto og
Benfica náð frábærum árangri með
því að styðjast við slík viðskipti.
FIFA eru nú að fara að taka slaginn
með UEFA og því ljóst að TPO-við-
skipti eru á leiðinni út úr boltanum.
Baráttan töpuð
Þrátt fyrir að flestir telji mikla
þörf fyrir fjárhagslegt aðhald stór-
liða og ágæti FFP þá er allt útlit fyrir
að þær muni ekki lifa meðferð dóm-
stóla af. Þá er spurning hvort Platini
og félagar eigi spil uppi í erminni eða
hvort baráttan við peningaöflin sé
endanlega töpuð. n
Nýtt BosmaN-mál
n Financial Fair Play ólöglegt? n PSG varð af stórstjörnu n Saka Chelsea um óheiðarleg vinnubrögð
„High five“ fyrir Bosman! Tveir dýrustu leikmenn sögunnar, þeir Cristiano Ronaldo og
Gareth Bale, eru eflaust þakklátir Bosman. Málið færði knattspyrnumönnum aukið vald í
samningagerð.
Ásgeir Jónsson
asgeir@dv.is
Roman Abramovich Sennilega á enginn
einn meiri þátt í því að FFP-reglurnar voru
teknar upp þar sem mörg lið fylgdu fordæmi
Chelsea. Núna notast Chelsea hins vegar við
nýtt viðskiptamódel og tekur FFP opnum
örmum. Mynd ReuTeRS
Angel di Maria Komu
FFP-reglurnar í veg fyrir að Di
Maria færi til PSG?
Bosman-málið
Upphaf Bosman-málsins má rekja til
ársins 1990 þegar belgíski leikmaðurinn
Jean-Marc Bosman hugðist söðla um
leika í Frakklandi. Bosman lék með FC
Liege í heimalandinu en hugðist fara til
Dunkirk í Frakklandi. FC Liege stóð í vegi
fyrir Bosman. Hann fór með málið fyrir
dómstóla og lagði á endanum FC Liege,
belgíska knattspyrnusambandið og
Knattspyrnusamband Evrópu, UEFA.
Með þessu gerbreyttist allt varðandi
sölu og kaup leikmanna í Evrópu. Nú
gátu leikmenn farið á frjálsri sölu þegar
samningar þeirra runnu út. Þannig
styrktist samningsstaða leikmanna
gríðarlega auk þess sem þeir gátu gert
samninga við önnur lið fram í tímann.
Annað sem Bosman-málið breytti var
að ekki var lengur hægt að takmarka
fjölda erlendra leikmanna frá Evrópu-
sambandslöndum. Málið breytti því
landslagi knattspyrnunnar gríðarlega.
í uppsigliNgu?